Beint í efni

Sandskeiðslína 1 og Kolviðarhólslína 2. Viðræður við sveitarfélög

Málsnúmer 1611104

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (832). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

28. (1843). fundur

Bæjarráð samþykkir að verða við kröfu Landsnets hf. um afturköllun framkvæmdaleyfis fyrir Lyklafellslínu innan lögsögu Garðabæjar sem samþykkt á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 7. desember 2017.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

04

22. (1837). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

19. (821). fundur

Jóna Sæmundsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu að samþykkt.

„Með bréfi, dags. 29. desember 2016 sótti Landsnet hf. um framkvæmdaleyfi innan lögsögu Garðabæjar fyrir byggingu Lyklafellslínu. Um er að ræða byggingu háspennulínu 220/400 kV frá Lyklafelli í Mosfellsbæ að Hamranesi í Hafnarfirði. Á móti verða fjarlægðar Hamraneslína 1 og 2, sem liggja frá Geithálsi um Heiðmörk að Hamranesi, og Ísallína 1 og 2, frá tengivirki við Hamranes að álverinu.
Í umsókninni er vísað til 13. og 14. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, sbr. 6. og 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Umrædd framkvæmd er matskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og er fyrirliggjandi álit Skipulagstofnunar, dags. 17. september 2009 ásamt matsskýrslu Landsnets, dags. 10. ágúst 2009. Framkvæmdin er í samræmi við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og aðalskipulag Garðabæjar.
Í málinu liggja fyrir eftirfarandi gögn:
Umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi, dags. 29.12.2016.
Matsskýrsla frá 10.08.2009.
Álit Skipulagsstofnunar, dags. 17.09.2009.
Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits, dags. 09.06.2017.
Skýrsla Eflu - lýsing mannvirkja vegna útgáfu framkvæmdaleyfis, dags. í des. 2016.
Skýrsla Landsnets frá febrúar 2017 - fyrirhugaðar framkvæmdir við breytingar 2017-2019 á flutningskerfi við höfuðborgarsvæði.
Skýrsla Eflu um áhættumat vegna vatnsverndar.
Fulltrúar Landsnets hafa kynnt fyrirhugðar framkvæmdir á sameignlegum fundi skipulagsnefndar og umhverfisnefndar sem haldinn var fimmtudaginn 5. október sl. Við kynningu og umfjöllun um málið hefur verið farið yfir áhrif framkvæmdanna á vatnvernd og í starfsleyfi heilbrigðisnefndar eru sett skilyrði um verklag og mengunavarnir. Þá hefur einnig farið fram umræða um möguleika á að leggja jarðstreng en fyrir liggur umsögn Umhverfistofnunar um að stofnunin sé ekki hlynnt lagningu jarðstrengja í hraunum. Í því sambandi er m.a. bent á að loftlínur eru afturkræfari framkvæmdir í hraunum en jarðstrengir sbr. áætlanir um niðurrif Hamraneslínu 1 og 2. Það mat liggur einnig fyrir að lagning jarðstrengs er ekki ásættaleg lausn á þessu svæði m.t.t. hagsmuna vatnsverndar.
Þá var haldinn opin fundur í Sjálandskóla þriðjudaginn 21. nóvember 2017 þar sem fulltrúar Landsnets hf. kynntu fyrirhugaðar framkvæmdir við Lyklafellslína ásamt því sem fulltrúar Náttúrverndarsamtaka Suðvesturlands og Hraunavina kynntu sjónarmið sín og athugasemdir vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar við Lyklafellslínu.
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 13. og 14. gr. skipulagslaga, sbr. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 að Landsneti hf. verði veitt framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu innan lögsögu Garðabæjar enda verði framkvæmdin eins og lýst er í framkvæmdaleyfisumsókn, fylgi- og hönnunargögnum, og matskýrslu. Lögð er áhersla á að dregið verði sem kostur er úr neikvæðum áhrifum á umhverfið og framkvæmdaleyfið bundið skilyrðum sem fram koma í matskýrslu Landsnets, áliti Skipulagsstofnunar, leyfi Umhverfisstofnunar og starfsleyfi heilbrigðisnefndar.
Bæjarstjórn bendir á að með lagningu Lyklafellsínu mun Landsnet í framhaldinu sækja um að fjarlægja háspennulínur er liggja um Heiðmörk með þeim áhrifum að háspennulínur færast fjær útivstarsvæðum og mun möstrum í landi Garðabæjar fækka verulega.
Bæjarstjórn er kunnugt um við afgreiðslu málsins að framkvæmdaleyfi sem bæði Hafnarfjarðarbær og Mosfellsbær hafa samþykkt fyrir lagningu Lyklafellslínu hafa verið kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Bæjarstjórn lýsir því yfir að hún telji það í samræmi við góða stjórnsýsluhætti að umdeild mál meðal íbúa landsins eins og lagning Lyklafellslínu sæti kæru og fái málsmeðferð og endanlega niðurstöðu með úrskurði æðra stjórnvalds.“

Steinþór Einarsson, tók til máls.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls.

María Grétarsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun sem er lögð er fram sameiginlega af
bæjarfulltrúum Bjartrar framtíðar, Samfylkingar og Fólksins í bænum.

„Vatnsból höfuðborgarsvæðisins eru meðal mikilvægustu auðlinda þjóðarinnar. Engin skynsamleg rök hafa verið færð fyrir nauðsyn Lyklafellslínu 1 eins og fram kom á íbúafundi með umhverfissamtökum og Landsneti þann 21. nóvember sl. Aðrir kostir en háspennulínur ofanjarðar og utan hættusvæðis vatnsverndar hafa ekki verið kannaðir. Gera þarf áhættu- og kostnaðarmat á öðrum valkostum. Matsskýrsla framkvæmdarinnar er samkvæmt dómi Hæstaréttar ekki lögmætur grundvöllur til veitingar framkvæmdaleyfis. Sveitarstjórnum er skylt samkvæmt skipulagslögum að ganga úr skugga um að framkvæmd sé sú sama og fjallað var um í matsskýrslu. Sveitarstjórnum ber einnig að gæta að almennum hagsmunum íbúa og öðrum almannahagsmunum.
Bæjarfulltrúar Bjartrar framtíðar, Samfylkingar og Fólksins í bænum skora á Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Garðabæjar að krefjast nýrra úrræða frá Landsneti við lausn framangreinds máls og samþykkja ekki framkvæmdaleyfi til byggingar háspennulínu ofanfjarðar um vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins.“

Sigurður Guðmundsson, tók til máls.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs að nýju.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Halldór Jörgensson, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls að nýju.

Framkomin tillaga um að veita leyfi til framkvæmda við lagningu Lyklafellslínu er samþykkt með sjö atkvæðum (JS,ÁHJ,SHJ,SG,GVG,SÞ,AG) gegn fjórum (GEH,HJJ,SE,MG).


Bæjarstjórn Garðabæjar

06

17. (819). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu málsins með vísan til samþykktar samkvæmt 1. tl. fundargerðarinnar um að boðað verði til opins fundar með hagsmunaaðilum um málið.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

07

40. fundur

Umhverfisnefnd leggur til að haldin verði opin fundur með sveitafélögum sem málið varðar þar sem Landsnet og Hraunavinir ásamt Náttúrverndarsamtökum Suðvesturlands kynna framkvæmdir og athugasemdir.

Bæjarráð Garðabæjar

08

40. (1806). fundur

Málið og framlögð tillaga rædd.

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

09

39. (1805). fundur

Fulltrúar Landsnets hf. hafa komið á fund bæjarráðs og á sameiginlegan fund skipulagsnefndar og umhverfisnefndar og kynnt nánar fyrirhugaðar framkvæmdir.

Við afgreiðslu málsins liggja fyrir eftirfarandi gögn.
Umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi, dags. 29.12.2016.
Matsskýrsla frá 10.08.2009.
Álit Skipulagsstofnunar, dags. 17.09.2009.
Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits, dags. 09.06.2017.
Skýrsla Eflu - lýsing mannvirkja vegna útgáfu framkvæmdaleyfis, dags. í des. 2016.
Skýrsla Landsnets frá febrúar 2017 - fyrirhugaðar framkvæmdir við breytingar 2017-2019 á flutningskerfi við höfuðborgarsvæði.
Skýrsla Eflu um áhættumat vegna vatnsverndar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum (ÁHJ, SHJ, SG) að leggja til við bæjarstjórn með vísan til 13. og 14. gr. skipulagslaga, sbr. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita Landsneti hf. framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu innan lögsögu Garðabæjar enda verði framkvæmdin eins og lýst er í framkvæmdaleyfisumsókn, fylgi- og hönnunargögnum, og matsskýrslu. Lögð er áhersla á að dregið verði sem kostur er úr neikvæðum áhrifum á umhverfið og framkvæmdaleyfið bundið skilyrðum sem fram koma í matsskýrslu Landsnets, áliti Skipulagsstofnunar, leyfi Umhverfisstofnunar og starfsleyfi heilbrigðisnefndar.
Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Garðabæjar og svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.

María Grétarsdóttir og Guðrún Elín Herbertsdóttir, greiða atkvæði á móti útgáfu á framkvæmdaleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

13. fundur

Með bréfi, dags. 29. desember 2016 sótti Landsnet hf. um framkvæmdaleyfi innan lögsögu Garðabæjar fyrir byggingu Lyklafellslínu. Um er að ræða byggingu háspennulínu 220/400 kV frá Lyklafelli í Mosfellsbæ að Hamranesi í Hafnarfirði. Á móti verða fjarlægðar Hamraneslína 1 og 2, sem liggja frá Geithálsi um Heiðmörk að Hamranesi, og Ísallína 1 og 2, frá tengivirki við Hamranes að álverinu.
Í umsókninni er vísað til 13. og 14. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, sbr. 6. og 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Umrædd framkvæmd er matskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfiáhrifum nr. 106/2000 og er fyrirliggjandi álit Skipulagstofnunar, dags. 17. september 2009 ásamt matsskýrslu Landsnets, dags. 10. ágúst 2009. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Garðabæjar.
Í málinu liggja fyrir eftirfarandi gögn.
Umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi, dags. 29.12.2016.
Matsskýrsla frá 10.08.2009.
Álit Skipulagsstofnunar, dags. 17.09.2009.
Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits, dags. 09.06.2017.
Skýrsla Eflu - lýsing mannvirkja vegna útgáfu framkvæmdaleyfis, dags. í des. 2016.
Skýrsla Landsnets frá febrúar 2017 - fyrirhugaðar framkvæmdir við breytingar 2017-2019 á flutningskerfi við höfuðborgarsvæði.
Skýrsla Eflu um áhættumat vegna vatnsverndar.
Fulltrúar Landsnets hafa kynnt fyrirhugðar framkvæmdir á sameignlegum fundi skipulagsnefndar og umhverfisnefndar sem haldinn var fimmtudaginn 5. október sl. Við kynningu og umfjöllun um málið hefur verið farið yfir áhrif framkvæmdanna á vatnvernd og í starfsleyfi heilbrigðisnefndar eru sett skilyrði um verklag og mengunavarnir. Þá hefur einnig farið fram umræða um möguleika á að leggja jarðstreng en fyrir liggur umsögn Umhverfistofnunar um að stofnunin sé ekki hlynnt lagningu jarðstrengja í hraunum. Í því sambandi er m.a. bent á að loftlínur eru afturkræfari framkvæmdir í hraunum en jarðstrengir sbr. áætlanir um niðurrif Hamraneslínu 1 og 2. Það mat liggur einnig fyrir að lagning jarðstrengs er ekki ásættaleg lausn á þessu svæði m.t.t. hagsmuna vatnsverndar.
Skipulagnefnd telur því að jarðstrengir í línustæði Lykafellslínu séu ekki umhverfislega betri kostur en fyrirhuguð loftlína.
Meirihluti skipulagsnefndar samþykkir með vísan til 13. og 14. gr. skipulagslaga, sbr. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 að leggja til við bæjarstjórn að Landsneti hf. verði skuli veitt framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu innan lögsögu Garðabæjar enda verði framkvæmdin eins og lýst er í framkvæmdaleyfisumsókn, fylgi- og hönnunargögnum, og matskýrslu. Lögð er áhersla á að dregið verði sem kostur er úr neikvæðum áhrifum á umhverfið og framkvæmdaleyfið bundið skilyrðum sem fram koma í matskýrslu Landsnets, áliti Skipulagsstofnunar, leyfi Umhverfisstofnunar og starfsleyfi heimbrigðisnefndar. Baldur Ó Svavarsson situr hjá við afreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

11

38. (1804). fundur

Á fund bæjarráðs mættu Nils Gústafsson, Þórarinn Bjarnason og Þórður Bogason, fulltrúar Landsnets og fjölluðu um og gerðu nánari grein fyrir umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu. Um er að ræða byggingu raflínu frá Lyklafelli í Mosfellsbæ að Hamranesi í Hafnarfirði. Á móti verða fjarlægðar Hamraneslína 1 og 2, sem liggja frá Geithálsi um Heiðmörk að Hamranesi, og Ísallína 1 og 2, frá tengivirki við Hamranes að álverinu.

Fyrir liggja eftirfarandi gögn:
Umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi, dags. 29.12.2016.
Matsskýrsla frá 10.08.2009.
Álit Skipulagsstofnunar, dags. 17.09.2009.
Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits, dags. 09.06.2017.
Skýrsla Eflu - lýsing mannvirkja vegna útgáfu framkvæmdaleyfis, dags. í des. 2016.
Skýrsla Landsnets frá febrúar 2017 - fyrirhugaðar framkvæmdir við breytingar 2017-2019 á flutningskerfi við höfuðborgarsvæðinu.
Skýrsla Eflu um áhættumat vegna vatnsverndar.

Umsókn um framkvæmdaleyfi er til meðferðar hjá skipulagsnefnd og verður tekin til afgreiðslu á fundi nefndarinnar fimmtudaginn 12. október nk.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

12. fundur

Fundurinn var sameiginlegur fundur skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
Fulltrúar Landsnets kynntu fyrir báðum nefndum fyrirhugaða framkvæmd Lyklafellslínu og undirbúning hennar. Fyrir hönd Landsnets voru, Þórarinn Bjarnason, verkefnastjóri hjá Landsneti, Ólafur Árnason umhverfisfræðingur og fagstjóri hjá Eflu og Þórður Bogason, lögmaður hjá Lögmönnum Höfðabakka.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

13

38. fundur


Landsnet kynnti fyrir nefndinni fyrirhugaða framkvæmd Lyklafellslínu. Fyrir hönd Landsnets voru, Þórarinn Bjarnason, verkefnastjóri, Ólafur Árnason, umhverfisfræðingur og Þórður Bogason, lögfræðingur.

Bæjarráð Garðabæjar

14

44. (1761). fundur