Beint í efni

39. (1805). fundur

17.10.2017
Bæjarráð Garðabæjar

39. (1805). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

17.10.2017

Kl. 08:00 - 08:40

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1706199

01

Keldugata 13 - Umsókn um byggingarleyfi (breyting)

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Burstabæ ehf., kt. 500300-2210 leyfi til að byggja einbýlishús að Keldugötu 13 - breyting.

Málsnúmer 1709005

02

Sjónarvegur 5-Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggingu ehf., kt. 561287-1479 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 14 íbúðum að Sjónarvegi 5.

Málsnúmer 1706130

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Mávanes 21.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fresta afgreiðslu á umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús við Mávanes 21 meðan ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag.

Umsóknin hefur verið grenndarkynnt og bárust athugasemdir nágranna þar sem viðbyggingu er mótmælt.

Málsnúmer 1706139

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Haukanes 24.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fresta afgreiðslu á umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs og byggingu nýs einbýlishúss að Haukanesi 24 meðan ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag.

Umsóknin hefur verið grenndarkynnt og bárust athugasemdir nágranna þar sem byggingarmagni á lóð er mótmælt.

Málsnúmer 1702279

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Brekkubyggð 28.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar bílskúrs við raðhúsið við Brekkubyggð 28. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst athugasemd frá nágrönnum varðandi byggingarmagn og trjágróður og hefur tilmælum í samræmi við athugasemd verið komið á framfæri við umsækjanda.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék sæti við afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1510027

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að rammaskipulagi Lyngássvæðis.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að rammaskipulagi Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.

Málsnúmer 1611104

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.

Fulltrúar Landsnets hf. hafa komið á fund bæjarráðs og á sameiginlegan fund skipulagsnefndar og umhverfisnefndar og kynnt nánar fyrirhugaðar framkvæmdir.

Við afgreiðslu málsins liggja fyrir eftirfarandi gögn.

Umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi, dags. 29.12.2016.

Matsskýrsla frá 10.08.2009.

Álit Skipulagsstofnunar, dags. 17.09.2009.

Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits, dags. 09.06.2017.

Skýrsla Eflu - lýsing mannvirkja vegna útgáfu framkvæmdaleyfis, dags. í des. 2016.

Skýrsla Landsnets frá febrúar 2017 - fyrirhugaðar framkvæmdir við breytingar 2017-2019 á flutningskerfi við höfuðborgarsvæði.

Skýrsla Eflu um áhættumat vegna vatnsverndar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum (ÁHJ, SHJ, SG) að leggja til við bæjarstjórn með vísan til 13. og 14. gr. skipulagslaga, sbr. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita Landsneti hf. framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu innan lögsögu Garðabæjar enda verði framkvæmdin eins og lýst er í framkvæmdaleyfisumsókn, fylgi- og hönnunargögnum, og matsskýrslu. Lögð er áhersla á að dregið verði sem kostur er úr neikvæðum áhrifum á umhverfið og framkvæmdaleyfið bundið skilyrðum sem fram koma í matsskýrslu Landsnets, áliti Skipulagsstofnunar, leyfi Umhverfisstofnunar og starfsleyfi heilbrigðisnefndar.

Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Garðabæjar og svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.

María Grétarsdóttir og Guðrún Elín Herbertsdóttir, greiða atkvæði á móti útgáfu á framkvæmdaleyfi.

Málsnúmer 1504148

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Lundahverfi.

Málsnúmer 1703262

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir ljósabúnaði fyrir gervigrasvelli í Ásgarði og Bæjargarði.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita leyfi til framkvæmda við uppsetningu ljósabúnaðar við nýja gervigrasvelli við Ásgarð og í Bæjargarði

Málsnúmer 1710094

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur - Laugavegur-Skipholt.

Lögð fram.

Málsnúmer 1709307

11

Svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Steinþórs Einarssonar um stöðu skipulagsmála, dags. 06.10.17.

Málsnúmer 1710076

12

Tilkynning frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um tillögur um breytingar á úthlutun jöfnunarframlaga, dags. 06.10.17.

Málsnúmer 1707051

13

Tillögur umhverfisnefndar um framkvæmdaáætlun 2018

Bæjarráð vísar tillögunum til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1710137

14

Bréf Þjóðskrár Íslands varðandi útgáfu skýrslu um fasteignamat 2018, dags. 10.10.17.

Lagt fram.

Fylgiskjöl