Mávanes 21 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
4. (1865). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byco Assert Ltd, kt. 560810-9700 leyfi til að stækka núverandi einbýlishús að Mávanesi 21.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
16. (818). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fresta afgreiðslu á umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús við Mávanes 21 meðan ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag.
Umsóknin hefur verið grenndarkynnt og bárust athugasemdir nágranna þar sem viðbyggingu er mótmælt.
Bæjarráð Garðabæjar
03
39. (1805). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fresta afgreiðslu á umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús við Mávanes 21 meðan ekki liggur fyrir staðfest deiliskipulag.
Umsóknin hefur verið grenndarkynnt og bárust athugasemdir nágranna þar sem viðbyggingu er mótmælt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
13. fundur
Málinu frestað þar til að deiliskipulag Arnarness sem nú er í auglysingu hefur tekið gildi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Byggingarleyfisumsókn og athugasemdum sem borist hafa vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingum á einbýlishúsinu að Mávanesi 21 að lokinni grenndarkynningu. Athugasemdir hafa borist frá nágrönnum og erindi þeirra lagt fram. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
07
26. (1792). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi einbýlishús að Mávanesi 21 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
8. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókna vegna breytinga við Mávanes 21. Gert er ráð fyrir niðurgrafinni viðbyggingu á vesturhluta byggingarreits í framhaldi af núverandi byggingu. Grunnflötur um 135 fermetrara. Viðbygging er í samræmi við deiliskipulag Arnarness sem samþykkt var árið 2014 en hefur verið fellt úr gildi. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir Arnarnes er tillögnni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 . Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Mávaness nr. 19, 20, 22, 23, 24 og 25.