11. fundur
11. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
28.09.2017
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1302243
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Lögð fram tillaga að aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 að lokinni auglýsingu sem stóð frá 8.maí til 19.júní sl ásamt athugasemdum og umsögnum. Alls bárust 55 erindi með athugasemdum og 15 erindi með umsögnum stofnana og sveitarfélaga.
Lögð fram tillaga að viðbrögðum við athugasemdum og svörum við þeim.
Eftirfarandi breytingar eru lagðar til á tillögunni auk smærri lagfæringa:
-Nýr stofnstígur færður inn á uppdrátt sunnan Hraunhóla. Stofnstígur um Lynghóla felldur út.
-Grænigarður á Garðaholti skilgreindur sem opið svæði, almenningsgarður.
-Reitur 2.07: Hámarkshæð verðir 4 hæði í stað 5.
-Ákvæði fyrir landnotkunarreiti á vatnasviði Urriðakotsvatns um að gera skuli ráð fyrir sjálfbærum ofanvatnslausnum og að allt vatn sem skilar sér út ístöðuvatnið sé hreint og ómengað.
-Afmörkun landnotkunarreits fyrir íbúðarbyggð efst í Hegranesi breytt og skilgreining óbyggða svæðisins sem „opin svæði“ felld út.
Viðbótarákvæði fyrir 2.17 Op (Arnarneshæð) : Þjónustubyggingar fyrir samfélagsþjónustu eru heimilaðar.
-Ákvæði bætt við landnotkunarreit 5.20-Hv þess efnis að mögulegt verði að leggja golfbraut um lág nærri golfvelli ef það samrýmist reglum um friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangur.
-Notað verður heitið Urriðavatn í stað Urriðakotsvatns.
-Í Urriðaholti verður eftirfarandi breytt: Reitur 5.07: Svæði í uppbyggingu. Grunnskóli og leikskóli. Landnotkunarreitum 5.08VÞ og 5.05 Íb breytt til samræmis við deiliskipulag og deiliskipulagstillögur.
Í kafla 5.7.3: Urriðaholt ekki tilgreint sérstaklega í tenglsum við jarðsprungusvæði.
Lega reiðstígs við“ Flóttamannaveg“ verður lagfærð sem og tengingar stíga við uppland.
-Á landnotkunarreit 2.03 S, Sjálandsskóli verður tiltekið að einnig sé gert ráð fyrir íbúðarhúsi.
-Lega bláþráðar við Skógtjörn breytt, aðalleið upp fyrir íbúðarlóðir en hliðarleið með ströndinni m.a. við Lambhaga.
-Lega stofnstígs og reiðstígs sunnan við Landnotkunarreiti 1.38 Íb (Grandastykki) og 1.37 Íb (Brekka,Kirkjubrú) færist að byggðinni.
-Skilgreint verður 12.000 m² hámarksbyggingarmagn á Svæði 5.09 (Setbergsholt)
-Landnotkunarreitur 5.03 Vþ Kauptún stækkar sem nemur um 1 ha til vesturs frá lóðinni Kauptún 4. Opið svæði minnkar sem því nemur.
-Stofnstígstenging milli Vífilsstaðahlíðar og Urriðaholts verði færð inn á uppdrætti.
-Landnotkunarreitur 1.07 Íþ Tjarnarvöllur(golfvöllur) er stækkaður sem nemur 1 ha til austurs sunnan við landnotkunarreit 1.06 Jörfi.
-Felldur út reitur 1.09 S við Kasthústjörn.
-Gerð verður grein fyrir aðkomu veiturfyrirtækja í kafla 4.4.: Kafli 5.6.
-Afmörkun landnotkunarreits 1.73 K, Garðakirkjugarður breytt lítillega næst Garðavegi og tillit tekið til hins forna Garðatúngarðs..
-Fjarlægð byggðar frá strönd á Álftanesi verður skilgreind 50 m í stað 30-50 m.
-Útivistarstígar í nágrenni Búrfells færðir inn á uppdrátt m.a. hin forna Selvogsgata. Stígar tengjast þannig stígum sem deiliskipulag Kaldársels í Hafnarfirði gerir ráð fyrir.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja "Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030" ásamt umhverfisskýrslu í samræmi við 32.gr. Skipualagslaga nr.123/2010 með þeim breytingum sem lagðar eru til frá auglýstri tillögu. Við gildistöku Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 falla úr gildi Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016 og Aðalskipulag Álftaness 2005-2024.
Málsnúmer 1706139
02
Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu. Lagðar fram athugasemdir sem borist hafa. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1709128
03
Haukanes 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókna að breytingum íbúðarhússins. Umsókninni er vísað til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. skipulagalaga nr.123/2010 þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi í hverfinu. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum Haukaness 13, 14, 15, 17 og 18.
Málsnúmer 1709310
04
Lyngholt 1 - Veggur og lóðarmörk
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1709257
05
Hliðsnes 2 - Bátaskýli
Skipulagsnefnd beinir því til tækni-og umhverfissviðs að unnin verði tillaga að deiliskipulagi Hliðsness áður en byggingarleyfi verða veitt í Hliðsnesi.
Málsnúmer 1706130
06
Mávanes 21 - Umsókn um byggingarleyfi
Byggingarleyfisumsókn og athugasemdum sem borist hafa vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1708475
07
Urriðaholtsstræti 22-24-26 - umsókn um dsk breytingu
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 sem nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 22, 24 og 26.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
Breytt aðkoma að lóðum nr. 22 og 24.
Minni háttar breyting byggingarreita allra lóða.
Nýjir byggingarreitir fyrir opin bílskýli á lóðum nr. 22 og 24.
Aukið byggingarmagn bílskýla um 500 m2.
Fjölgun íbúða um 6 (úr 45 í 51 íbúð) Um tvær á hverri lóð.
Inngyrðir breyting á fjölda heimilaðra minni og stærri íbúða milli lóða.
Lögð fram rök umsækjanda fyrir breytingartillögunni.
Höfundur byggingar er Arkís sem er um leið deiliskipualgshöfundur. Deiliskipulagshöfundar veitir jákvæða umsögn um tillöguna.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.gr.Skipulagslaga nr 123/2010.
Málsnúmer 1611184
08
Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Brú yfir Fossvog, lýsing á skipulagsverkefni
Skipulagsnefnd fagnar tillögunni og gerir ekki frekari athugasemdir.
Málsnúmer 1704011
09
Varpið(Eyvindarh/Eyvindarst) deiliskipulag
Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf kynnti tillögu að deiliskipulagi svæðis sem nær til Eyvindarholts, Tjarnar, Asparvíkur og Stekks við Bessastaðatjörn sem hann hefur unnið að beiðni skipulagsstjóra. Tillagan gerir ráð fyrir lóðum fyrir 3 einbýlishús hjá Eyvindarholti auk þess hús sem fyrir er þar og tveimur parhúsalóðum á milli Stekkjar og Asparvíkur. Alls verður því um 7 nýjar íbúðarhúseiningar að ræða auk þeirra 4 sem fyrir eru. Tillagan gerir ráð fyrir einum aðkomuvegi fyrir byggðina sem tengist Norðurnesvegi.
Skipulagsnefnd leggur til að heiti deiliskipulagsins verði "Holtstún" eins og lagt er til að aðkomuvegurinn verði nefndur og hljóta öll hús númer við þá götu.(Holtstún 1-11).
Skiplagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd fellur frá gerð verkefnislýsingar þar sem að allar forsendur liggja fyrri í gildandi aðalskipulagi og þeirri aðalskipulagstillögu sem nú hefur verið samþykkt í skipulagsnefnd í samræmi við 2.mgr. sömu greinar.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1709351
10
Álftanes-Miðsvæði. Deiliskipulag
Þórhallur Sigurðsson arkitekt hjá Andersen & Sigurðsson Arkitekter í Friðriksbergi og Steinar Sigurðsson arkitekt hjá Teikn arkitektaþjónustu komu á fund nefndarinnar. Þeir hafa tekið að sér að vinna tillögu að deiliskipulagi miðsvæðis Álftaness á grundvelli vinningstillögu þeirra í samkeppni þeirri sem fór fram fyrr á þessu ári.
Skipulagsstjóri og deiliskipulagráðgjafar gerir grein fyrir fyrstu skrefum deiliskipulagsvinnunnar.
Skipulagsnefnd leggur til að allt svæðið sem deiliskipulagssamkeppnin nær til verði deiliskipulagt samhliða en skynsamlegt getur verið að skipta því upp í nokkur deiliskipulagssvæði.
Skipulagsnefnd vísar verkefninu til úrvinnslu hjá deiliskipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði. Fyrsta skrefið verður að vinna verkefnislýsingu sem lögð verður fram í skipulagsnefnd.