Lyngholt 1 - Veggur og lóðarmörk
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (830). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita lóðarhafa að Lyngholti 1 leyfi til að reisa 180 cm háan vegg við lóðarmörk en umsókn um stækkun lóðar er hafnað. Tillagan var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir
Bæjarráð Garðabæjar
02
17. (1832). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita lóðarhafa að Lyngholti 1 leyfi til að reisa 180 cm háan vegg við lóðarmörk en umsókn um stækkun lóðar er hafnað. Tillagan var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
8. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa að Lyngholti 1 um að reisa 180 cm háan skjólvegg á lóðarmörkum að Klukkuholti og fyrir horn að Lyngholti að lokinni grenndarkynningu með vísan í reglur um girðingar lóða á Álftanesi. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt af þeim sem grenndarkynning nær til. Ósk um gróðursetningu á opnu svæði við Suðurnesveg og ósk um að taka svæði utan lóðarmarka í fóstur er vísað til bæjarverkfræðings og garðyrkjustjóra. Skipulagsnefnd tekur undir þær hugmyndir sem fram koma í erindinu. Ósk um stækkun lóðar er hafnað.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skjólveggur verði reistur í samræmi við grenndarkynnt gögn.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
1. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa að Lyngholti 1 um að reisa 180 cm háan skjólvegg á lóðarmörkum að Klukkuholti og fyrir horn að Lyngholti. Með umsókn fylgir teikning af legu skjólveggjar þar sem séð er til þess að ekki myndist blindhorn við gatnamótin.Bent er á í erindinu að umtalsvert álag sé á viðkomandi lóð vegna umferðar á þrjá vegu.
Með vísan í rökstuðning í framlögðum gögnum, í fyrirliggjandi deiliskipulagsákvæði og í lið a. í 2.gr.Viðauka II við samþykkt nr.20/2017 vísar skipulagsstjóri tillögunni til grenndarkynningar.Grenndarkynna skal eigendum að Sviðholti, Lyngholti 3 og Klukkuholti 1 og 3.
Ósk um gróðursetningu á opnu svæði við Suðurnesveg og ósk um að taka svæði utan lóðarmarka í fóstur er vísað til bæjarverkfræðings og garðyrkjustjóra. Skipulagsstjóri tekur undir þær hugmyndir sem fram koma í erindinu.
Ósk um stækkun lóðar er hafnað.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.