Beint í efni

1. fundur

07.03.2018
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

1. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

07.03.2018

Kl. 15:00 - 15:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Eysteinn Haraldsson
  • Guðjón Erling Friðriksson

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1709310

01

Lyngholt 1 - Veggur og lóðarmörk

Lögð fram umsókn lóðarhafa að Lyngholti 1 um að reisa 180 cm háan skjólvegg á lóðarmörkum að Klukkuholti og fyrir horn að Lyngholti. Með umsókn fylgir teikning af legu skjólveggjar þar sem séð er til þess að ekki myndist blindhorn við gatnamótin.Bent er á í erindinu að umtalsvert álag sé á viðkomandi lóð vegna umferðar á þrjá vegu.

Með vísan í rökstuðning í framlögðum gögnum, í fyrirliggjandi deiliskipulagsákvæði og í lið a. í 2.gr.Viðauka II við samþykkt nr.20/2017 vísar skipulagsstjóri tillögunni til grenndarkynningar.Grenndarkynna skal eigendum að Sviðholti, Lyngholti 3 og Klukkuholti 1 og 3.

Ósk um gróðursetningu á opnu svæði við Suðurnesveg og ósk um að taka svæði utan lóðarmarka í fóstur er vísað til bæjarverkfræðings og garðyrkjustjóra. Skipulagsstjóri tekur undir þær hugmyndir sem fram koma í erindinu.

Ósk um stækkun lóðar er hafnað.

Málsnúmer 1711272

02

Brekkuás 7 - Umsókn um dsk breytingu - B-rými

Lagðar fram teikningar sem fylgja byggingarleyfisumsókn. Sótt er um breytingu á deiliskipulagi Ása (Hraunsholts eystrra) sem gerir ráð fyrir að gluggalaus neðanjarðarrými í kjallara reiknist ekki til nýtingarhlutfalls enda hafa þau engin grenndaráhrif. Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 3.mgr.43 gr. er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annara en umsækjanda og Garðabæjar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt nr.20/2017.

Málsnúmer 1711112

03

Garðatorg 2a - Umsókn um byggingarleyfi

Garðhýsi fer yfir byggingarreit og lokar fyrir glugga í hjólageymslu.

Óskað er umsagnar á erindinu.

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir 30 m2 sólskála á sérnotaflöt íbúðar 103. Á meðfylgjandi gögnum má skilja að um er að ræða gustlokun líkt og leyft hefur verið á svölum í sömu byggingu. Hér er þó um C-rými að ræða en ekki B-rými eins og svalir í byggingunni eru.

Með vísan í viðauka II við samþykkt nr.20/2017 hafnar skipulagsstjóri tillögunni þar sem að hér er um C-rými að ræða.

Benda má á að skoða mætti hvort samþykkja ætti skyggni sambærilegt og er á efstu svölum hússins og að undir því væri hægt að útbúa gustlokað rými. Það rými yrði þá að sambærilegri stærð og önnur gustlokuð rými í byggingunni.

Málsnúmer 1802291

04

Engimýri 7 - fyrirspurn um stækkun.

Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir stækkun efri hæðar. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Skipulagsstjóri vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Engimýrar 5 og 6. Heimilt verður að stytta tíma grenndarkynningar ef eigendur þeirra eigna sem grenndarkynning nær til árita á uppdrátt að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna.