Beint í efni

Engimýri 7 - fyrirspurn um stækkun.

Málsnúmer 1802291

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (830). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Engimýri 7. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Bæjarráð Garðabæjar

02

16. (1831). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Engimýri 7. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að breytingu einbýlishússins að Engimýri 7 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Engar athugsemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi sé veitt.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

1. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir stækkun efri hæðar. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Skipulagsstjóri vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Engimýrar 5 og 6. Heimilt verður að stytta tíma grenndarkynningar ef eigendur þeirra eigna sem grenndarkynning nær til árita á uppdrátt að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna.