Beint í efni

Garðatorg 2a - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1711112

Ferill máls

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

1. fundur

Garðhýsi fer yfir byggingarreit og lokar fyrir glugga í hjólageymslu.
Óskað er umsagnar á erindinu.

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir 30 m2 sólskála á sérnotaflöt íbúðar 103. Á meðfylgjandi gögnum má skilja að um er að ræða gustlokun líkt og leyft hefur verið á svölum í sömu byggingu. Hér er þó um C-rými að ræða en ekki B-rými eins og svalir í byggingunni eru.
Með vísan í viðauka II við samþykkt nr.20/2017 hafnar skipulagsstjóri tillögunni þar sem að hér er um C-rými að ræða.
Benda má á að skoða mætti hvort samþykkja ætti skyggni sambærilegt og er á efstu svölum hússins og að undir því væri hægt að útbúa gustlokað rými. Það rými yrði þá að sambærilegri stærð og önnur gustlokuð rými í byggingunni.