17. (1832). fundur
17. (1832). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
15.05.2018
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1805050
01
Bréf Urriðaholts ehf. varðandi staðarvísi fyrir háholt Urriðaholts, dags. 09.05.18.
Á fund bæjarráðs mætti Jón Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Urriðaholts og gerði grein fyrir hugmyndum og markmiðum með gerð staðarvísis fyrir byggð og umhverfi á háholti Urriðaholts.
Bæjarráð vísar staðarvísi fyrir háholt Urriðaholts til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1710299
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir reiðvegi um Grunnuvatnaskarð og Grunnuvötn.
Lögð fram.
Málsnúmer 1709310
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi vegg og lóðarmörk við Lyngholt 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita lóðarhafa að Lyngholti 1 leyfi til að reisa 180 cm háan vegg við lóðarmörk en umsókn um stækkun lóðar er hafnað. Tillagan var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 1711043
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um fjölgun íbúða við Urriðaholtsstræti 34 úr 12 í 15 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 796.995 á íbúð m.v. BVT 688,4 í maí 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1801385
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um fjölgun íbúða við Kinnargötu 27 úr 6 í 7 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 796.995 á íbúð m.v. BVT 688,4 í maí 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1704011
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Holtstún á Álftanesi.
Bæjaráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Holtstún á Álftanesi samkvæmt 3. mgr. 41 gr. skipulaglaga nr. 123/2010. Í athugasemdafresti barst ein athugasemd um breytingu á lóðarmörkum og aðkomu sem fallist er á. Um er að ræða minnháttar tilvik sem krefst ekki endurauglýsingu tillögunar samkvæmt 4. mgr, 41. gr. skipulagslaga. Niðurstaða bæjarstjórnar skal auglýst
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1805053
07
Bréf Fólksins í bænum varðandi upplýsingar um rekstrarúttektir byggðasamlaganna, dags. 05.05.18.
Lagt fram svar framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 11.05.2018.
María Grétarsdóttir fer fram á að fá afrit af öllum gögnum er varðar rekstraúttektir byggðasamlaganna ásamt aðgerðaráætlunum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801001
08
Kjörskrá vegna kosninga til sveitarstjórnar 26. maí 2018.
Bæjarritari lagði fram eintak af kjörskrá fyrir Garðabæ vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram eiga að fara 26. maí 2018. Á kjörskrá eru samtals 11.598 kjósendur. Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ er fjöldi kjósenda 9.539 og í Álftanesskóla 2.059. Kjósendum hefur fjölgað um 1150 frá síðustu kosningum til sveitarstjórnar 2014. Bæjarráð staðfestir með vísan til 7. gr. laga um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5/1998, kjörskrá Garðabæjar til að gilda við kosningar til sveitarstjórnar sem fram eiga að fara laugardaginn 26. maí 2018. Kjörskráin skal auglýst og liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg frá 16. maí nk. til kjördags.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1805084
09
Bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar um ársreikning 2017 og framlag ársins 2018, dags. 04.05.18.
Málsnúmer 1805087
10
Bréf Inspectionem ehf. um kynning á þjónustu við gerð brunavarnaáætlunar, dags. 27.04.18.
Málsnúmer 1805088
11
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Kristnisjóð o.fl. (ókeypis lóðir), 269. mál., dags. 03.05.18.
Lagt fram.
Málsnúmer 1805048
12
Umsókn Jónu Rósu Stefánsdóttur um launað námsleyfi.
Bæjarráð samþykkir að veita umsækjanda launað námsleyfi í fjóra mánuði á skólaárinu 2018-2019. Nánari útfærsla skal vera samkvæmt samkomulagi umsækjanda og leikskólastjóra.
Málsnúmer 1805115
13
Bréf Alþjóðaskólans um að breyta bílskúr við Þórsmörk í aðstöðu fyrir kennslu, dags. 09.05.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til frekari skoðunar á tækni- og umhverfissviði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1707192
14
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um reglugerð fyrir Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 09.05.18.
Bæjarráð samþykkir að sækja um styrk úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs vegna byggingar búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Unnargrund.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1804072
15
Svar við fyrirspurn um samstarfssamning Garðabæjar við UMF Stjörnuna.
Lagt fram svar UMF-Stjörnunnar, dags. 15. apríl sl.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705302
16
Bréf Helgu Sigurðardóttur og Sigurðar Eggertssonar um að heimkeyrslu að Tjarnarlandi Álftanesi, dags. 03.05.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og tækni- og umhverfissviðs. Jafnframt er bréfinu vísað til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1805091
17
Bréf stjórnar körfuboltadeildar UMFÁ um stuðning við starfsemi deildarinnar, dags. 07.05.18.
Bæjarráð samþykkir tillögu um hækkun á rekstrarstyrk til UMFÁ um kr. 1.000.000 til að styrkja og efla starfsemi körfuboltadeildar félagsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1803379
18
Tilboð í framkvæmdir við viðbyggingu Álftanesskóla.
Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 8. maí sl voru eftirfarandi tilboð lögð fram.
Eykt, ehf. kr. 865.932.549 þar af reikningsvinna kr. 39.990.000
Munck á Íslandi, ehf. kr. 835.188.771 þar af reikningsvinna kr. 40.267.040
Flotgólf, ehf. kr. 930.528.996 þar af reikningsvinna kr. 35.855.030
Jáverk, ehf. kr. 783.192.000 þar af reikningsvinna kr. 91.750
Kostnaðaráætlun kr. 768.583.629 þar af reikningsvinna kr. 37.270.000
Lagt er fram minnisblað Mannvits um yfirferð tilboð þar sem lagt er til að taka tilboði Jáverks.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Já verks ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1805129
19
Bréf SSH varðandi áframhaldandi samstarf um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk, dags. 11.05.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar hjá fjölskyldusviði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705048
20
Greinargerð um verkefni sem fjármögnuð voru að hluta samkvæmt tillögu á árinu 2017 um að ráðstafa arði frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnarmála.
Málsnúmer 1805131
21
Bréf Rekjavíkurborgar varðandi skýrslu um svifryk um áramót, dags. 07.05.18.
Málsnúmer 1801172
22
Uppbygging á golfsvæði GKG við Vífilsstaði.
Bæjarstjóri kynnti drög að viljayfirlýsingu Garðabæjar og GKG um uppbyggingu á golfsvæði klúbbsins við Vífilsstaði.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.