Beint í efni

Viljayfirlýsing um uppbyggingu á golfsvæði GKG við Vífilsstaði.

Málsnúmer 1801172

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (830). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að viljayfirlýsingu um uppbyggingu á golfsvæði GKG við Vífilsstaði. Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki framlagða viljayfirlýsingu.

María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs kvaðst sitja hjá við afgreiðslu málsins og gerði grein fyrir afstöðu sinni.

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi framlagða viljayfirlýsingu.

Sturla Þorsteinsson, kvaddi sér hljóðs og lýsti yfir stuðningi við viljayfirlýsinguna og gerði grein fyrir afstöðu sinni.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum viljayfirlýsingu Garðabæjar og Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar um uppbyggingu á golfsvæði við Vífilsstaði.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

02

17. (1832). fundur

Bæjarstjóri kynnti drög að viljayfirlýsingu Garðabæjar og GKG um uppbyggingu á golfsvæði klúbbsins við Vífilsstaði.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

3. (825). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

5. (1820). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um skipun sameiginlegs starfshóps Garðabæjar og Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.

Starfshópurinn sem skal skipaður embættismönnun hefur það hlutverk að vinna sameiginlega að útfærslu og mótun tillagna að skipulagi og legu golfvallar innan skipulagssvæðis í landi Vífilsstaða.

Bæjarráð Garðabæjar

05

3. (1818). fundur

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

Fylgiskjöl