5. (1820). fundur
5. (1820). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
06.02.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Hellagata 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Admin ehf., kt. 550304-2870, leyfi til að byggja raðhús að Hellagötu 8.
02
Hellagata 10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Admin ehf., kt. 550304-2870, leyfi til að byggja raðhús að Hellagötu 10.
03
Hellagata 12 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Admin ehf., kt. 550304-2870, leyfi til byggja raðhús að Hellagötu 12.
04
Hellagata 14 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Admin ehf., kt. 550304-2870, leyfi til byggja raðhús að Hellagötu 14.
05
Keldugata 15 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lísbet Bergsveinsdóttur, kt. 071141-2769 leyfi til að byggja einbýlishús að Keldugötu 15.
06
Mosagata 9 - 11 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Mosagötu ehf., kt. 630317-0530 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 23 íbúðum að Mosagötu 9-11.
07
Sjónarvegur 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Seles 2 ehf., kt. 540416-0440, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Sjónarvegi 1.
08
Sjónarvegur 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Seles 2 ehf., kt. 540416-0440, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Sjónarvegi 3.
09
Erindi Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar um samstarf o.fl. við skipulag á Vífilsstaðalandi, dags. 11.01.18.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um skipun sameiginlegs starfshóps Garðabæjar og Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.
Starfshópurinn sem skal skipaður embættismönnun hefur það hlutverk að vinna sameiginlega að útfærslu og mótun tillagna að skipulagi og legu golfvallar innan skipulagssvæðis í landi Vífilsstaða.
10
Bréf Bessastaðasóknar um niðurfellingu fasteignagjalda 2018, dags. 29.01.18.
Bæjarráð samþykkir að veita Bessastaðasókn styrk að fjárhæð kr. 230.600 til greiðslu fasteignagjalda árið 2018.
Fylgiskjöl
11
Bréf heilbrigðiseftirlits um uppgjör við Brú lífeyrissjóð, dags. 31.01.18.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindi heilbriðiseftirlitsins um viðræður vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð og vísar málinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
12
Tilkynning frá velferðarráðuneytinu um ársskýrslu innflytjendaráðs 2017, dags. 31.01.18.
Lögð fram.
13
Bréf Alþingis um tillögu til þingsályktunar um þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta, 50. mál., dags. 31.01.18.
Lagt fram.
14
Tillaga Bjartrar framtíðar um útsendingu frá HM á risaskjá á Garðatorgi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
„Í tilefni af fyrsta landsleik Íslands í lokakeppni HM í Rússlandi í sumar, leggur Björt framtíð til að bæjarfélagið beiti sér fyrir skipulagningu viðburðar á Garðatorgi, þar sem íbúum og öðrum áhugasömum verði boðin sýning á leiknum á stórum skjá.“
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að kanna málið samráði við hagsmunaaðila á Garðatorgi.
Fylgiskjöl
15
Reglur um styrki til starfsmanna í skólum - tillaga um breytingu
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um breytingu á reglum um styrki til starfsmanna í skólum.
Viðbót við A-lið:
„eða stunda fjarnám á háskólastigi í öðru uppeldis eða umönnunarnámi.“
Fylgiskjöl
16
Þróunarsjóður grunnskóla 2018 - tillaga um breytingu
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um breytingu á reglum um þróunarsjóð grunnskóla.
Viðbót við 6. gr.
„og til opinberrar birtingar á lokaskýrslum.“