Útsending frá HM á risaskjá á Garðatorgi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
20. (1835). fundur
Upplýsingastjóri gerði grein fyrir undirbúningi vegna útsendingar frá HM á risaskjá á Garðatorgi.
Bæjarráð Garðabæjar
02
12. (1827). fundur
Upplýsingastjóri gerði grein fyrir minnisblaði vegna framkvæmdar á beinni útsendingu á Garðatorgi frá leik Íslands og Argentínu sem fram mun fara 16. júní nk.
Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir leyfismálum, samlegðaráhrifum við hátíðarhöld 17. júní, nauðsynlegum tæknibúnaði, kostnaði, umgjörð og reynslu annarra.
Bæjarráð samþykkir að gerð verði kostnaðaráætlun fyrir verkefnið og að áfram verði unnið að málinu í samstarfi við hagsmunaaðila á Garðatorgi.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
5. (1820). fundur
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
„Í tilefni af fyrsta landsleik Íslands í lokakeppni HM í Rússlandi í sumar, leggur Björt framtíð til að bæjarfélagið beiti sér fyrir skipulagningu viðburðar á Garðatorgi, þar sem íbúum og öðrum áhugasömum verði boðin sýning á leiknum á stórum skjá.“
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að kanna málið samráði við hagsmunaaðila á Garðatorgi.