12. (1827). fundur
12. (1827). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
27.03.2018
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1707051
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - viðauki 2
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Kaupverð íbúðar að Stórási 7 - fært á fjárfestingu ársins kr. 35.000.000
Fjármagnað með lækkun á handbæru fé um sömu upphæð.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um lán til Íbúðalánsjóðs vegna kaupa á félagslegri leiguíbúð.
Málsnúmer 1707051
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - úthlutun styrkja.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2017.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erl. tungumálum kr. 300.000
Félag eldri borgara kr. 400.000
Kvennaráðgjöfin kr. 100.000
Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla kr. 150.000
Garðakórinn kr. 350.000
Samtök um kvennaathvarf kr. 400.000
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000
Stígamót kr. 150.000
Kvenréttindafélags Íslands kr. 100.000
Aflið, samtök gegn kynferðisofbeldi kr. 100.000
Garðálfar, kór eldri borgara á Álftanesi kr. 300.000
Málsnúmer 1710312
03
Bréf Íbúðalánasjóðs varðandi úthlutun stofnframlaga, dags. 19.03.18.
Í bréfinu kemur fram að umsókn Garðabæjar um stofnframlög hefur verið samþykkt með breyttum forsendum og nemur samþykkt stofnframlag kr. 33.572.685.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri undirriti samning við Íbúðalánasjóð um helstu réttindi og skyldur aðila í tengslum við veitingu stofnframlagsins.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um framlag úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til fjármögnunar á verkefninu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1803339
04
Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 21.03.18.
Bæjarráð samþykkir að veita Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa styrk að fjárhæð kr. 1.562.390 til greiðslu fasteignagjalda af golfskála.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1705268
05
Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi breytingu á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag - breytt lega Ásvallarbrautar o.fl., dags. 16.03.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1803346
06
Bréf Umboðsmanns Alþingis um aðstoð og upplýsingar varðandi ráðningarferli, dags. 19.03.18.
Í bréfinu er farið fram á nauðsynlega aðstoð við útvegun gagna í tengslum við skoðun umboðsmanns almennt á ferlum við ráðningar í stjórnunarstörf.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1802342
07
Bréf Smáragarðs ehf., um leyfi til landmótunar á lóðinni við Miðhraun 24, dags. 02.03.18.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðinni við Miðhraun 24 og vísar í því sambandi til 2. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Allar framkvæmdir skulu unnar í samráði við bæjarverkfræðing og vera í samræmi við skilmála deiliskipulags er gildir fyrir Molduhraun.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1803368
08
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála, 389. mál., dags. 22.03.18.
Lagt fram.
Málsnúmer 1803369
09
Minnisblað um húsnæðismál tómstundaheimilis Álftanesskóla.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsvið gerði grein fyrir minnisblaði um húsnæðismál tómstundaheimilis Álftanesskóla þar sem lagt er til að tengja saman fjórar lausar kennslustofur á lóðinni sem munu þá nýtast fyrir starfsemi tómstundaheimilis en tengibygginging er um 70 fermetrar. Áætlaður kostnaður er um 25,0 mkr.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í framkvæmdina samhliða undirbúningi að viðbyggingu við skólann. Framkvæmdin verður fjármögnum af fjárveitingu til skólahúsnæðis samkvæmt framkvæmdaáætlun 2018.
Bæjarverkfræðingur kynnti teikningar vegna viðbyggingar við Álftanesskóla en rýmisþörf liggur fyrir og er gert ráð fyrir að byggingin verði um 1900 fermetrar.
Bæjarráð samþykkir að auglýst verði útboð vegna framkvæmdanna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1502336
10
Samningur við UMF-Stjörnuna um rekstur og starfsemi íþróttavalla.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við UMF-Stjörnuna um rekstur íþróttavalla við Ásgarð, Hofsstaðaskóla og í Bæjargarði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1803358
11
Bréf Bjartrar framtíðar varðandi fyrirspurn um afgreiðslu á erindum sem vísað er til bæjarstjóra, dags. 21.03.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1803378
12
Bréf Bjartrar framtíðar varðandi fyrirspurn um félagslegt húsnæði, dags. 23.03.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1803040
13
Svar við fyrirspurn um laun bæjarfulltrúa og æðstu stjórnenda Garðabæjar.
Málsnúmer 1802032
14
Útsending frá HM á risaskjá á Garðatorgi
Upplýsingastjóri gerði grein fyrir minnisblaði vegna framkvæmdar á beinni útsendingu á Garðatorgi frá leik Íslands og Argentínu sem fram mun fara 16. júní nk.
Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir leyfismálum, samlegðaráhrifum við hátíðarhöld 17. júní, nauðsynlegum tæknibúnaði, kostnaði, umgjörð og reynslu annarra.
Bæjarráð samþykkir að gerð verði kostnaðaráætlun fyrir verkefnið og að áfram verði unnið að málinu í samstarfi við hagsmunaaðila á Garðatorgi.