Beint í efni

20. (1835). fundur

29.05.2018
Bæjarráð Garðabæjar

20. (1835). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

29.05.2018

Kl. 08:00 - 08:35

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1804242

01

Bréf Árna Tómasar Sveinbjörnssonar varðandi sumarlaun vegna undirbúnings fyrir ólympíukeppni í efnafræði, dags. 20.04.18.

Bæjarráð samþykkir að verða við erindi bréfritara um greiðslu sumarlauna 2018 vegna undirbúnings fyrir þátttöku í olympíukeppni í efnafræði.

Málsnúmer 1805279

02

Bréf Löggarðs varðandi eldvarnir í fasteigninni að Miðhrauni 4, dags. 15.05.18.

Bæjarráð felur tækni- og umhverfissviði að útvega umbeðnar upplýsingar og gögn.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1805288

03

Bréf Hilde Berit Hundstuen varðandi skráningu fasteignar, dags. 22.05.18.

Bæjarráð getur ekki séð ástæðu til að breyta húsnúmerum fasteignarinnar enda alvanalegt að einstaka eignir með sama landnúmer en sérstök fasteignanúmer sé tilgreindar undir sama húsnúmeri.

Bæjarstjóra falið að svara erindinu.

Málsnúmer 1601493

04

Bréf Hilde Berit Hundstuen varðandi hraðahindrun í Hraunhólum, dags. 31.08.16.

Bæjarráð vísar til þess að almennt eru ekki settar hraðahindranir í lokaðar húsagötur nema við mjög sérstakar aðstæður sem ekki geta talist vera fyrir hendi við Hraunhóla.

Bæjarstjóra falið að svara bréfinu.

Málsnúmer 1710153

05

Bréf afmælisnefndar vegna fullveldis Íslands um þátttöku sveitarstjórna í verkefninu, dags. í maí 2018.

Bæjarráð tekur undir tilmæli að minnast fullveldis Íslands í tengslum við viðburði á vegum bæjarfélagsins á árinu 2018.

Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í skólanefnd, leikskólanefnd, ungmennaráði, menningar- og safnanefnd og iþrótta- og tómstundaráði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1805262

06

Ársreikningur 19. júní sjóðs 2017.

Málsnúmer 1804073

07

Tillaga um að ráðstafa hluta arðgreiðslu frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnamála.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði varðandi tillögur um ráðstöfun hluta af arðgreiðslu frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnamála.

Bæjarráð felur fræðslu- og menningarsviði að vinna að nánari útfærslu og framkvæmd tillagna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1802032

08

Útsending frá HM á risaskjá á Garðatorgi.

Upplýsingastjóri gerði grein fyrir undirbúningi vegna útsendingar frá HM á risaskjá á Garðatorgi.