Beint í efni

Tillaga um að ráðstafa hluta arðgreiðslu frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnamála.

Málsnúmer 1804073

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

20. (1835). fundur

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði varðandi tillögur um ráðstöfun hluta af arðgreiðslu frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnamála.

Bæjarráð felur fræðslu- og menningarsviði að vinna að nánari útfærslu og framkvæmd tillagna.

Fylgiskjöl

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

43. fundur

Skólanefnd lýsir yfir ánægju með að arðgreiðslum skuli ráðstafað með þessum hætti og leggur áherslu á að horft sé á snemmtæka íhlutun hvað varðar hegðun, sjálfsmynd og líðan barna.

Bæjarráð Garðabæjar

03

13. (1828). fundur

Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar ungmennaráðs, íþrótta- og tómstundaráðs, skólanefndar, og mannréttinda- og forvarnanefnda og felur viðkomandi nefndum að koma með tillögur um fjárveitingu til verkefna t.d. á sviði heilsueflandi samfélags.

Bæjarráð samþykkir að lokinni umfjöllun í nefndum verði fræðslu- og menningarsviði falið að koma með sameigninlega tillögur um verkefni ásamt kostnaðaráætlun.

Fylgiskjöl