13. (1828). fundur
13. (1828). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
10.04.2018
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Urriðaholtsstræti 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita U22 ehf., kt. 650117-1230 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 17 íbúðum að Urriðaholtsstræti 22.
02
Álftanesskóli - Skólasvæði Breiðumýri - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir viðbyggingu alls 1.851 fermetrar að stærð við Álftanesskóla.
03
Haukanes 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Pétri Þór Sigurðssyni, kt. 290354-4479 leyfi fyrir endurbótum á núverandi einbýlishúsi að Haukanesi 12.
04
Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hleina vegna lóðarinnar við Hraunvang 7, dags. 23.03.2018
Bæjarráð vísar bréfinu til meðferðar í skipulagsnefnd.
05
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi nýja reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk, dags. 03.04.18.
06
Ársreikningur Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. fyrir árið 2017.
07
Tillögur skólanefndar grunnskóla um úthlutun styrkja úr þróunarsjóði.
Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla 2018. Skólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 25.000.000 úr sjóðnum til 21 verkefnis.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar gerði grein fyrir vinnu skólanefndar við úrvinnslu og mat umsókna.
Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð grunnskóla.
08
Svar við fyrirspurn um framkvæmdir við Móaflöt, dags. 07.03.18.
09
Tillaga bæjarfulltrúa Steinþórs Einarssonar um að ráðstafa hluta arðgreiðslu frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnarmála.
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar ungmennaráðs, íþrótta- og tómstundaráðs, skólanefndar, og mannréttinda- og forvarnanefnda og felur viðkomandi nefndum að koma með tillögur um fjárveitingu til verkefna t.d. á sviði heilsueflandi samfélags.
Bæjarráð samþykkir að lokinni umfjöllun í nefndum verði fræðslu- og menningarsviði falið að koma með sameigninlega tillögur um verkefni ásamt kostnaðaráætlun.
Fylgiskjöl
10
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um lögheimili og aðsetur, 345. mál, dags. 27.03.18.
Lagt fram.
11
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, 394. mál, dags. 27.03.18.
Lagt fram.
12
Bréf UMF-Stjörnunnar um dreifingu á fjölnota plastpokum, dags. 24.03.18.
13
Bréf Hagkaups um rekstur vínbúðar í verslunarrými Hagkaups við Litlatún, dags. 23.03.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
14
Bréf kærunefndar útboðsmála varðandi kæru á niðurstöðu í útboði vegna endurnýjunar á gervigrasi, dags. 28.03.18.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri gæti hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
15
Útboð framkvæmda við endurnýjun lagna o.fl. við Smáraflöt og Lindarflöt.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir áætlun um framkvæmdir við endurnýjun lagna o.fl. við Smáraflöt og Lindarflöt og endurnýjun hluta stofnlagnar neðan við Flatir.
Bæjarráð samþykkir að framkvæmdir við verkin verði boðnar út.
16
Garðabær - Heilsueflandi samfélag
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar kynnti sameiginlegt minnisblað skólanefndar, íþrótta og tómstundaráðs og mannréttindar og forvarnanefndar um heilsueflandi samfélag. Í minnisblaðinu er lagt til að gerður verði samningur við embætti Landlæknis til að skapa umgjörð um verkefnið.
Bæjarráð tekur jákvætt í málið og samþykkir að gengið verði til samninga við Landlækni um verkefnið Garðabær - heilsueflandi samfélag.
Fylgiskjöl
17
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um ársskýrslu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga fyrir árið 2017, dags. 21.03.18.
Lögð fram.
18
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um frest vegna tilnefninga til nýsköpunarverðlauna, dags. 05.04.18.
19
Bréf Skátafélagsins Vífils varðandi nýja útilífsmiðstöð í Heiðmörk, dags. 05.04.18.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að láta hefja vinnu við hönnun o.fl. við nýja útilífsmiðstöð í Heiðmörk í samráði við fulltrúa Skátafélagsins Vífils.
Fylgiskjöl
20
Viljayfirlýsing um undirbúning vegna uppbyggingu á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarstjóri kynnti samþykkt stjórnar SSH þar sem lagt er til að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu undirriti sameignlega viljayfirlýsingu um undirbúning vegna uppbyggingar í samræmi við tillögur sem kynntar hafa verið um framtíðarsýn fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins.