Tillögur skólanefndar grunnskóla um úthlutun styrkja úr þróunarsjóði.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
13. (1828). fundur
Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla 2018. Skólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 25.000.000 úr sjóðnum til 21 verkefnis.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar gerði grein fyrir vinnu skólanefndar við úrvinnslu og mat umsókna.
Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð grunnskóla.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
42. fundur
Til fundarins komu fulltrúar þeirra grunnskóla í Garðabæ sem áttu umsóknir í sjóðinn kynntu verkefnin stuttlega og svöruðu spurningum nefndarmanna. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði úr þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ krónum 25.000.000.- í samræmi við reglur sjóðsins. Að þessu sinni bárust alls 43 umsóknir í sjóðinn sem allar voru teknar til afgreiðslu. Heildarupphæð umsókna var tæpar 60 milljónir. Lagt er til að 21 verkefni fái styrk. Skólanefnd fagnar fjölda áhugverðra umsókna sem bera merki um metnaðarfullt skólastarf í Garðabæ.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
03
41. fundur
Í ár er sótt um styrki til 43 verkefna að upphæð 59.684.352.- Úthlutun verður lokið fyrir 1. apríl.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
05
40. fundur
Skóladeild falið að koma með tillögu að spurningum í könnun sem verður lögð fyrir skólafólk til þess að leggja mat á áhrif þróunarsjóðs. Umræða um aðferðir við mat á verkefnum.
Bæjarráð Garðabæjar
06
5. (1820). fundur
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um breytingu á reglum um þróunarsjóð grunnskóla.
Viðbót við 6. gr.
„og til opinberrar birtingar á lokaskýrslum.“
Fylgiskjöl
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
07
39. fundur
Reglur endurskoðaðar með tilliti til opinberrar birtingar verkefna.