40. fundur
40. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Alþjóðaskólnum Þórsmörk
14.02.2018
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Elísa Ösp Valgeirsdóttir - fulltrúi kennara
- Andrea Róbertsdóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Dagskrá
01
Skóladagatal 2018-2019
Skólanefnd samþykkir skóladagatal 2018-2019 með fyrirvara um að ekki komi athugasemdir frá skólaráðum skólanna.
02
Skólaþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2017
Skýrsla skólaþings Sambandsins 2017 lögð fram til kynningar. Skýrslunni vísað til skóladeildar og skólastjórnenda og óskað eftir minnisblaði varðandi stöðuna í Garðabæ útfrá áhersluþáttum skýrslunnar.
03
Þróunarsjóður grunnskóla 2018
Skóladeild falið að koma með tillögu að spurningum í könnun sem verður lögð fyrir skólafólk til þess að leggja mat á áhrif þróunarsjóðs. Umræða um aðferðir við mat á verkefnum.
05
PISA 2018 fyrir 15 ára nemendur
Skólanefnd hvetur skólstjórnendur í Garðabæ til að skapa jákvæða og hvetjandi umgjörð í kringum fyrirlögn PISA, finna leiðir til að viðhorf nemenda til fyrirlagningar sé jákvætt þannig að þeir leggji sig fram um að gera sitt besta.
06
Kynningar og innritun í grunnskóla 2018
Rætt um kynningar á skólunum og innritunartímabil
07
Kynning á Alþjóðaskólanum
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti.