Áætlun um greiningarvinnu vegna heilsueflandi samfélags
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
3. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1703076 Heilsueflandi samfélag.
Formaður kynnir samning Garðabæjar og Capacent um verkefnið "Velsæld í Garðabæ" Í fyrsta hluta verkefnisins fer fram kortlagning á stöðu þeirra þátta sem áhrif hafa á velsæld/heilsu íbúa Garðabæjar.
Fjölskylduráð lýsir ánægju sinni með fyrirhugað verkefni.
Leikskólanefnd Garðabæjar
02
13. fundur
Kynning á verkefninu Velsæld í Garðabæ hvernig framkvæmd þess er háttað og hver staða þess er í dag.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
18. fundur
Samningur Garðabæjar við Capacent um verkefnið Velsæld í Garðabæ kynntur.
Samningur Garðabæjar og Capacent um verkefnið ,,Velsæld í Garðabæ“ var lagður fram og kynntur. Markmið fyrsta fasa verkefnisins er að kortleggja stöðu þeirra þátta sem hafa áhrif á velsæld og heilsu íbúa Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
05
1. (1910). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði nánari grein fyrir málinu og upplýsti að íþrótta- og tómstundaráð hafi tekið jákvætt í málið á fundi 2. janúar sl.
Bæjarráð samþykkir að gerður verði samningur við Capacent á grundvelli fyrirliggjandi tillögu um kortlagningu á stöðu áhrifaþátta varðandi verkefnið Heilsueflandi Garðabær sem er hluti af Heimsmarkmiðunum.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til kynningar í viðeigendum nefndum.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
06
16. fundur
Áætlun um greiningarvinnu vegna heilsueflandi samfélags - Velsæld í Garðabæ
ÍTG lýsir ánægju sinni með áætlun um greiningarvinnu vegna heilsueflandi samfélags "Velsæld í Garðabæ" sem unnin verður í samvinnu við Capacent.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
08
13. (1828). fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar kynnti sameiginlegt minnisblað skólanefndar, íþrótta og tómstundaráðs og mannréttindar og forvarnanefndar um heilsueflandi samfélag. Í minnisblaðinu er lagt til að gerður verði samningur við embætti Landlæknis til að skapa umgjörð um verkefnið.
Bæjarráð tekur jákvætt í málið og samþykkir að gengið verði til samninga við Landlækni um verkefnið Garðabær - heilsueflandi samfélag.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
09
30. fundur
Til umræðu eru hugmyndir um að gera Garðabæ að "heilsueflandi" bæjarfélagi með formlegum hætti líkt og nágrannasveitarfélögin Kópavogur og Hafnarfjörður eru að gera.
Rætt var um hugmyndir um að gera Garðabæ að "heilsueflandi" bæjarfélagi með formlegum hætti líkt og nágrannasveitarfélögin eru að gera. Formaður ÍTG muni skoða málið nánar í samvinnu við formenn annarra nefnda bæjarins og íþróttafulltrúa.
Bæjarráð Garðabæjar
10
10. (1776). fundur
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi að þátttöku bæjarins í vinnustofu um heilsueflandi samfélag. Fram kom að skammur fyrirvari á boðun takmarki þátttöku sem er miður þar sem um mjög áhugavert málefni er að ræða.