3. fundur
3. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
26.02.2020
Kl. -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Eymundur Sveinn Einarsson - varamaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Íbúakönnun þjónustukönnun Gallup 2019
Tekið er fyrir mál nr. 2001275 Íbúakönnun Gallup 2019.
Árleg íbúakönnun/þjónustukönnun Gallup er lögð fram til kynningar. Formaður kynnir helstu niðurstöður úr árlegri þjónustukönnun Gallup sem gerð er á viðhorfum íbúa til þjónustu í 20 stærstu sveitarfélögunum.
02
Tillaga Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ
Tekið er fyrir mál nr. 2001503 Tillaga Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ.
Sviðstjóri kynnir minnisblað um innra og ytra eftirlit með þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ. Fram kemur m.a. að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu (utan Reykjavíkur) eru með sameiginlegt innra gæðaeftirlit með heimilum, vinnustöðum, eftirskólaúrræðum og skammtímavistunum fatlaðs fólks í þessum sveitarfélögum. Starfsmaður gæðaeftirlits gerir úttekt á viðkomandi stöðum og skilar skriflegri niðurstöðu til sveitarfélaganna og veitir leiðbeiningar um úrbætur ef svo ber undir. Fjölskylduráð óskar eftir að fá kynningu á helstu niðurstöðum þegar þær liggja fyrir.
Fjölskylduráð lýsir ánægju sinni með verklag þess innra eftirlits með þjónustu við fatlað fólk sem fer fram hjá Garðabæ og telur ekki ástæðu til að fara í sérstaka úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ.
Formaður skýrir frá áformum um frekari uppbyggingu íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Garðabæ.
03
Umsókn um fjárhagsaðstoð tannlæknastyrkur
Tekið er fyrir mál nr. 2001223 umsókn um fjárhagsaðstoð - tannlæknastyrkur. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
04
Staða biðlista í félagslegu leiguhúsnæði
Staða biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði
Tekið er fyrir mál nr. 2002291 staða biðlista í félagslegu leiguhúsnæði. Sviðstjóri leggur fram upplýsingar um stöðu biðlista sem nýlega hefur verið uppfærður.
05
Áætlun um greiningarvinnu vegna heilsueflandi samfélags
Tekið er fyrir mál nr. 1703076 Heilsueflandi samfélag.
Formaður kynnir samning Garðabæjar og Capacent um verkefnið "Velsæld í Garðabæ" Í fyrsta hluta verkefnisins fer fram kortlagning á stöðu þeirra þátta sem áhrif hafa á velsæld/heilsu íbúa Garðabæjar.
Fjölskylduráð lýsir ánægju sinni með fyrirhugað verkefni.