Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ

Málsnúmer 2001503

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

3. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 2001503 Tillaga Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ.

Sviðstjóri kynnir minnisblað um innra og ytra eftirlit með þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ. Fram kemur m.a. að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu (utan Reykjavíkur) eru með sameiginlegt innra gæðaeftirlit með heimilum, vinnustöðum, eftirskólaúrræðum og skammtímavistunum fatlaðs fólks í þessum sveitarfélögum. Starfsmaður gæðaeftirlits gerir úttekt á viðkomandi stöðum og skilar skriflegri niðurstöðu til sveitarfélaganna og veitir leiðbeiningar um úrbætur ef svo ber undir. Fjölskylduráð óskar eftir að fá kynningu á helstu niðurstöðum þegar þær liggja fyrir.

Fjölskylduráð lýsir ánægju sinni með verklag þess innra eftirlits með þjónustu við fatlað fólk sem fer fram hjá Garðabæ og telur ekki ástæðu til að fara í sérstaka úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ.

Formaður skýrir frá áformum um frekari uppbyggingu íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Garðabæ.

Bæjarráð Garðabæjar

02

5. (1914). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Fyrir hönd Garðabæjarlistans legg ég fram tillögu um að gerð verði sérstök úttekt á þeim sambýlum sem starfrækt eru í sveitarfélaginu þar sem lagt verði mat á hvort íbúar sambýlanna fái tilskilda þjónustu eftir þjónustuþörf hvers og eins.“

Greinargerð
Mikilvægt er að hafa sem tærustu mynd af því hvernig sveitarfélaginu gengur að þjónusta fatlað fólk. Niðurstöður ánægjukönnunarinnar staðfesta enn og aftur að betur þarf að gera í málefnum fatlaðs fólks. Því til staðfestingar má einnig vísa til viðtals frá 24. janúar síðastliðinn á Stöð 2 við forstöðumann sambýlis í sveitarfélaginu. Þar kemur fram að þjónusta við fatlaða einstaklinga er ekki eins og lög um réttindi fatlaðs fólks kveða á um. Því er mikilvægt að fá yfirsýn yfir þá þjónustu sem sambýli Garðabæjar eru að veita. Ekki síst til þess að skapa tækifæri til að vinna að því að standa undir þeirri lögbundinni kröfu sem um búsetu fatlaðs fólks gildir.

Eins og segir í 9. gr laga í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir:
9. gr.
Búseta.
“Fatlað fólk á rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og félagslegri þjónustu sem gerir því kleift að búa á eigin heimili og stuðlar að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu. Um húsnæði fyrir fatlað fólk gilda ákvæði skipulags- og byggingarlaga, lög um húsnæðismál og lög um almennar íbúðir, eftir því sem við á.?

Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar í fjölskylduráði.