5. (1914). fundur
5. (1914). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
04.02.2020
Kl. 08:00 - 09:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
Óvissustig almannavarnarnefndar vegna kórónaveiru.
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, deildarstjóri almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins sátu fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
Gestir fundarins gerðu grein fyrir þýðingu þess að lýst hefur verið yfir óvissustigi almannavarna vegna kórónaveiru. Farið var nánar yfir viðbrögð almannavarnarnefndar og nauðsyn á auknu samstarfi stofnanna og samræmdri upplýsingamiðlun til almennings.
Málsnúmer 2001395
02
Óvissustig almannavarnarnefndar vegna landriss á Reykjanesi.
Gestir fundarins gerðu grein fyrir þýðingu þess að lýst hefur verið yfir óvissustigi almannavarna vegna landriss vestan við fjallið Þorbjörn á Reykjanesi. Kom fram að óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúruvöldum, sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað.
Málsnúmer 1808087
03
Fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda. (kl. 08:30 - kynning)
Á fund bæjarráðs mættu Andri Árnason, lögmaður og Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda hjá Garðabæ.
Harpa Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, gerði grein fyrir forsendum útboðs og gögnum sem lágu fyrir á tilboðstíma. Guðbjörg Brá fór nánar yfir tímalínu vegna samskipta við verktaka og ágreining um grundun hússins.
Andri Árnason gerði nánari grein fyrir ágreiningi í málinu út frá lögfræðilegum sjónarmiðum og fór yfir rök fyrir niðurstöðu um að ekki væri fyrir hendi forsendubrestur málinu, m.t.t. fyrirliggjandi ráðgjafar varðandi jarðtæknileg atriði. Andri lýsti þeirri skoðun að rétt væri á þessu stigi, m.t.t. sérfræðiráðgjafar verkfræðinga o.fl., að hafna kröfu verktaka um viðbótarkostnað vegna grundunar hússins.
Gestir fundarins viku af fundi. Harpa Þorsteinsdóttir, vék einnig af fundi.
Umræður voru um málið.
Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun:
„Garðabæjarlistinn fagnar því að bæjarstjóri verði við kröfu um upplýsingagjöf vegna þeirrar stöðu sem framkvæmd fjölnota íþróttahúss er komin í. Það er fyrst nú að bæjarstjóri upplýsir bæjarráð formlega um gang mála, þrátt fyrir að fundir og formleg bréfaskrif hafi átt sér stað frá því í september 2019 á milli verktaka og verkkaupa vegna ágreinings um grundun hússins. Réttast hefði verið af bæjarstjóra að upplýsa allt bæjarráð fyrr.“
Áslaug Hulda Jónsdóttir áskildi sér rétt til gagnbókunar síðar og benti á að málið hafi verið tekið á dagskrá bæjarráðs tvívegis á fundi í janúar, á vinnufundi bæjarstjórnar 28. nóvember 2019 og á fundi bæjarráðs 21. maí 2019.
Málsnúmer 1908041
04
Maríugata 34 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Íbúðum ehf., kt. 600115-0220, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 37 íbúðum að Maríugötu 34-40.
Málsnúmer 1902106
05
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi friðlýsingaskilmála og breyttum mörkum fólkvangsins Hliðs, dags. 28.01.20.
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar varðandi auglýsingu sem birt hefur verið um tillögu að uppfærðum friðlýsingaskilmálum og breyttum mörkum fólkvangsins Hliðs í Garðabæ. Í auglýsingunni kemur fram að frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 30. apríl 2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2001501
06
Samningur um markaðssamstarf og upplýsingamiðlun í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2001434
07
Umsagnarbeiðni varðandi umsókn um rekstrarleyfi fyrir Sjáland, veitingahús.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2001505
08
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 35/1970 um Kristnisjóð o.fl., með síðari breytingum (ókeypis lóðir), 50. mál., dags. 31.01.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2001396
09
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, með síðari breytingum. 457. mál., dags. 24.01.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 1810055
10
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um aðgerðir og eftirfylgni með stefnu Garðabæjar gegn sóun.
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn:
„Í hvaða aðgerðir hefur verið farið í stofnunum bæjarins við innleiðingu stefnu Garðabæjar gegn sóun?
Hvernig hefur stefnunni verið fylgt eftir hingað til?“
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Málsnúmer 2001492
11
Tillaga Garðabæjarlistans um úttekt á öllum kostnaði vegna sorphirðu sveitarfélagsins.
Lögð fram eftirfarandi tillaga.
„Bæjarráð samþykkir að láta rýna og taka út allan kostnað varðandi sorphirðu sveitarfélagsins.“
Greinargerð
Samhliða nýlega framlagðri stefnu Garðabæjar gegn sóun er ekki síður mikilvægt að rýna reglulega alla kostnaðarliði við sorphirðu. Umfangsmiklir fjármunir eru þar undir. Nýlega var sorphirðugjald hækkað á íbúa þar sem fyrri álagning stóð ekki undir kostnaði.
Mikilvægt er að rýna af ábyrgð kostnaðarliði þeirra verkþátta samhliða því þegar teknar eru ákvarðanir um hærri gjaldtöku á íbúa.
Á fundinum var lagt fram yfirlit yfir kostnað við sorphreinsun og sorpeyðingu fyrir árin 2018 og 2019 ásamt yfirliti yfir kostnað við sorphreinsun hjá stofnunum bæjarins fyrir sömu ár.
Málsnúmer 2001503
12
Tillaga Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Fyrir hönd Garðabæjarlistans legg ég fram tillögu um að gerð verði sérstök úttekt á þeim sambýlum sem starfrækt eru í sveitarfélaginu þar sem lagt verði mat á hvort íbúar sambýlanna fái tilskilda þjónustu eftir þjónustuþörf hvers og eins.“
Greinargerð
Mikilvægt er að hafa sem tærustu mynd af því hvernig sveitarfélaginu gengur að þjónusta fatlað fólk. Niðurstöður ánægjukönnunarinnar staðfesta enn og aftur að betur þarf að gera í málefnum fatlaðs fólks. Því til staðfestingar má einnig vísa til viðtals frá 24. janúar síðastliðinn á Stöð 2 við forstöðumann sambýlis í sveitarfélaginu. Þar kemur fram að þjónusta við fatlaða einstaklinga er ekki eins og lög um réttindi fatlaðs fólks kveða á um. Því er mikilvægt að fá yfirsýn yfir þá þjónustu sem sambýli Garðabæjar eru að veita. Ekki síst til þess að skapa tækifæri til að vinna að því að standa undir þeirri lögbundinni kröfu sem um búsetu fatlaðs fólks gildir.
Eins og segir í 9. gr laga í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir:
9. gr.
Búseta.
“Fatlað fólk á rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir og félagslegri þjónustu sem gerir því kleift að búa á eigin heimili og stuðlar að fullri aðlögun þess og þátttöku í samfélaginu. Um húsnæði fyrir fatlað fólk gilda ákvæði skipulags- og byggingarlaga, lög um húsnæðismál og lög um almennar íbúðir, eftir því sem við á.?
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar í fjölskylduráði.
Málsnúmer 2001502
13
Tillaga um útboð trygginga Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir tillögu um að láta fara fram útboð á tryggingum Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að segja upp samningi við Vátryggingafélag Íslands hf. um tryggingavernd með sex mánaða fyrirvara miðað við 1. janúar 2021.
Málsnúmer 1911348
14
Bréf sóknarnefndar Garðasóknar varðandi beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda 2020, dags. 21.11.20.
Bæjarráð samþykkir að veita Garðasókn styrk að fjárhæð kr. 953.009 til greiðslu fasteignagjalda árið 2020.
Málsnúmer 2001421
15
Bréf Skátafélagsins Vífils og Hjálparsveitar skáta um niðurfellingu fasteignagjalda 2020, dags. 27.01.20.
Bæjarráð samþykkir að veita Skátafélaginu Vífli og Hjálparsveit skáta styrk að fjarhæð kr. 4.103.756 til greiðslu fasteignagjalda árið 2020.
Málsnúmer 2001448
16
Bréf Bessastaðasóknar varðandi beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda 2020, dags. 28.01.20.
Bæjarráð samþykkir að veita Bessastaðasókn styrk að fjárhæð kr. 275.530 til greiðslu fasteignagjalda árið 2020.
Málsnúmer 2001509
17
Tilkynning frá Sveitafélaginu Ölfus varðandi endurskoðun aðalskipulags, dags. 31.01.20
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.