Beint í efni

Opnun tilboða í tryggingar Garðabæjar.

Málsnúmer 2001502

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

16. (1925). fundur

Eftirfarandi tilboð lögð fram í útboði um tryggingar Garðabæjar.

Sjóvá Almennar tryggingar hf. kr. 48.046.050
TM tryggingar hf. kr. 54.101.477
Vátryggingafélag Íslands hf. kr. 55.953.203

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Sjóvá Almennra trygginga hf. Allir skilmálar útboðsins voru uppfylltir. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

02

5. (1914). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um að láta fara fram útboð á tryggingum Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að segja upp samningi við Vátryggingafélag Íslands hf. um tryggingavernd með sex mánaða fyrirvara miðað við 1. janúar 2021.