Beint í efni

16. (1925). fundur

28.04.2020
Bæjarráð Garðabæjar

16. (1925). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020

28.04.2020

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID19 - neyðarstig almannavarna.

Með fundarboði fylgdu minnisblöð og reglur varandi nýjar takmarkanir sem taka gildi frá og með 4. maí nk. Gert er ráð fyrir að starf í leik- og grunnskólum verði með eðlilegu hætti og að íþróttastarf barna á grunnskólaaldri geti hafist. Þá er gert ráð fyrir opnun félagsmiðstöðva og safna.

Sviðsstjórar gerðu grein fyrir stöðunni á sínum sviðum og svöruðu fyrirspurnum.

Málsnúmer 1902069

02

Aðgerðaráætlun sviða vegna úttektar á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Garðabæjar.

Lögð fram uppfærð aðgerðaráætlun vegna tillagna sem bæjarstjórn hefur samþykkt í tengslum við úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins. Í aðgerðaráætluninni kemur fram tímarammi, ábyrgðaraðili og lýsing á framgangi verkefna.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Harpa Þorsteinsdóttir, Ingvar Arnarson og Sigurður Guðmundsson, voru á fjarfundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2004350

03

Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi margvíslegar aðgerðir til að styðja sveitarfélög, dags. 24.04.20.

Lögð fram.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir umræðu um stöðu sveitarfélaganna í stjórn SSH og stjórn Sambandsins varðandi kröfur um stuðning ríkisins við starfsemi sveitarfélaga.

Málsnúmer 2001288

04

Hraungata 50 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir að afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Smíðaben ehf., kt. 460112-0600, leyfi fyrir byggingu parhúss að Hraungötu 50.

Málsnúmer 2001289

05

Hraungata 48 -Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir að afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Smíðaben ehf., kt. 460112-0600, leyfi fyrir byggingu parhúss að Hraungötu 48.

Málsnúmer 2001502

06

Opnun tilboða í tryggingar Garðabæjar.

Eftirfarandi tilboð lögð fram í útboði um tryggingar Garðabæjar.

Sjóvá Almennar tryggingar hf. kr. 48.046.050

TM tryggingar hf. kr. 54.101.477

Vátryggingafélag Íslands hf. kr. 55.953.203

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Sjóvá Almennra trygginga hf. Allir skilmálar útboðsins voru uppfylltir. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2004252

07

Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi tillögur að endurhæfingarstefnu, dags. 20.04.20.

Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði.

Málsnúmer 1904109

08

Úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020.

Bæjarráð samþykkir að veita eftirfarandi aðilum styrki samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun 2020.

Garðálfar , kór eldri borgra á Álftanesi kr. 300.000

Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi kr. 150.000

Kvennaráðgjöfin kr. 200.000

Garðakórinn kr. 350.000

Samtök um kvennaathvarf kr. 500.000

Stígamót kr. 200.000

Félag eldri borgara í Garðabæ kr. 500.000

Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000

Bjarkahlíð -miðstöð fyrir þolendur ofbeldis kr. 300.000

Bæjarráð samþykkir að vísa styrkbeiðni Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.

Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindi KFUM & KFUK og Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins um styrk að þessu sinni.

Bæjarráð samþykkir að vísa styrkbeiðni Hjálparstarfs kirkjunnar til frekari skoðunar við ákvörðun á framlagi til styrktarsjóðs Garðasóknar og Bessastaðasóknar.

Bæjarráð samþykkir að fresta að svo stöddu afgreiðslu á styrkbeiðni Samtaka um stuðningssetur fyrir ungt fólk.

Málsnúmer 2004348

09

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021-25, 643. mál., dags. 23.04.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2004347

10

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um nýtingu úrræða vegna Covid 19.

Eftirfarandi fyrirspurn lögð fram.

Óskað er eftir yfirliti yfir áhrif og umfang nýtingar bæjarbúa á eftirfarandi úrræði í mars, apríl og mögulega maí ef kostur er.

a. Skert þjónustugjöld

b. Aukin fjárhagsaðstoð

c. Frestun gjalddaga

Lagt fram svar við fyrirspurninni.

Bæjarstjóri upplýsti í lok fundur um stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús, viðræður við hagsmunaaðila á Garðatorgi og viðræðum við Íslenskar fasteignir ehf. og Þingvang um úthlutun lóða og uppbyggingu í Breiðumýri.

Fylgiskjöl