Maríugata 34-40 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
03
5. (1914). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Íbúðum ehf., kt. 600115-0220, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 37 íbúðum að Maríugötu 34-40.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
1. fundur
Lagðar fram aðalteikningar sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsið Maríugata 34. Samkvæmt teikningu er gert ráð fyrir einu bílastæði fyrir tvær íbúðir sem eru 90 m2 og eina íbúð sem er 90,3 m2. Samkvæmt grein 4.6.7. í skipulagsskilmálum Urriðaholts Austurhluta skal gera ráð fyrir tveimur bílastæðum fyrir íbúðir stærri en 90 birtum fermetrum og einu stæði fyrir minni en 9m birtum fermetrum. Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar þegar gerð er krafa um fjölda bílastæða í bílakjallara enda er stærð íbúðar aðeins lítillega stærri (90,3m2) eða jafnstór (90,0 m2) en ákvæði deiliskipulags gerir ráð fyrir. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.