2. fundur
2. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
07.02.2020
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - varamaður
- Gunnar Hólmsteinn Ársælsson - varamaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Móar, endurskoðað deiliskipulag
Lögð fram drög að deiliskipulagi Móa sem nær til fullbyggðs svæðis í Kjarrmóum og Lyngmóum sem Arkitektastofan Arkþing vinnur að. Þar sem að deiliskipulag var samþykkt í bæjarstjórn áður en fyrsta aðalskipulag Garðabæjar tók gildið árið 1987 telst deiliskipulag á svæðinu ekki í gildi og því hefur verið ákveðið að vinna nýja tillögu.
Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
02
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti.
Formaður skipulagsnefndar gerði grein fyrir fundi með formanni skipulagsráðs og skipulagsstjóra Kópavogs og formanni Skógræktarfélags Garðabæjar. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með Vegagerðinni,SSH, Hafnarfirði og Kópavogi vegna stofnbrautakerfis. Ábendingar sem borist hafa lagðar fram. Umsögn Vegagerðarinnar dags.29.janúar sl lög fram. Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
03
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 2. Grundir
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðarbæjar 2016-2030 í Grundahverfi að lokinni auglýsingu í samræmi við 31.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir sem gerir ráð fyrir því að svæði 2.03 S (2.09 Op (opið svæði)stækkar um 0,6 ha og nær upp með Hraunsholtslæk, svæði 2.09 Op minnkar sem því nemur og svæði 2.10 Íb minnkar lítilslega.
Tillagan var auglýst samhliða breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til sama svæðis frá 14.nóvember 2019 til 6.janúar 2020.
Umsagnir sem borist hafa á auglýsingartíma lagðar fram.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 2.mgr.32.gr.sömu laga.
04
Ægisgrund 1-5, dsk br (Svæði L6)
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til svæðis frá Ægisgrund að Vífilsstaðavegi. Tillagan gerir ráð fyrir því að opið svæði við Hraunsholtslæk breytist í skólalóð þar sem stefnt er að að reisa húsnæði Alþjóðaskólans. Lögun tveggja nýrra lóða við Ægisgrund breytist.
Tillagan var auglýst samhliða breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis frá 14.nóvember 2019 til 6.janúar 2020.
Engar athugasemdir bárust.
Lögð fram húsakönnun og fornleifaskráning sem unnin hefur verið vegna tillögunnar.
Lagðar fram umsagnir frá Umhverfisstofnun og Minjastofnun um tillögurnar. Einnig lagðar fram umsagnir frá Vegagerðinni og heilbrigðiseftirliti vegna lýsingar verkefnisins.
Skipulagsnefnd telur að hvorki umsagnir, fornleifaskýrsla né húsakönnun kalli á breytingu á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skiplagslags nr.123/2010.
05
Lundahverfi - nýtt deiliskipulag.
Lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Lundahverfi að lokinni auglýsingu skv. 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan var auglýst 4. nóvember 2019 og gefinn frestur til 16. desember 2019 til að koma með athugasemdir við tillöguna.
Innan athugsemdarfrests bárust þrjú erindi með athugasemdum frá eigendum og íbúum raðhúsanna að Reynilundi 11, 13 og 15. Athugasemdirnar eru samhljóða þar sem því er mótmælt að byggingarreitur húsanna sé afmarkaður við húsin sjálf og þess krafist að byggingarreitur húsanna verði stækkaður. Einnig var gerð athugasemd við varðveislumat húsakönnunar Lundahverfis.
Lagt fram erindi dags. 5.febrúar 2020 frá Hildi Sólveigu Pétursdóttir hrl.fyrir hönd eiganda Reynilundar 17 Albínu Thordarson sem er um leið arkitekt raðhúslengjunnar.
Á deiliskipulagsuppdrætti samkvæmt auglýstri tillögu má sjá að almenna reglan, hvað einbýlishús varðar, er að byggingarreitur er ekki afmarkaður við húsin sjálf heldur gefur hann möguleika á stækkun húsanna að uppfylltum skilmálum deiliskipulagsins. Hvað raðhús varðar að þá er það ýmist hvort byggingareitur afmarkast við húsin sjálf eða ekki. Almennt var við afmörkun byggingarreita byggt á eldri mæliblöðum.
Í tilviki raðhúslengjunnar Reynilundur 11, 13, 15 og 17 þykir með vísan til sjónarmiða sem fram koma í athugasemdum eigenda raðhúsanna nr. 11, 13 og 15 fellst skipulagsnefnd á að rýmka byggingarreit húsanna þannig að byggingarreitur við suðurhlið húsanna verði dreginn sem bein lína. Með því móti skapast möguleiki til að stækka bílskúr húsanna um 10 m2.
Umrædd breyting á byggingarreit ofangreindrar raðhúsalegnju sem getur heimilað stækkun húsa á baklóð um 10 m2 er minniháttar þegar horft er til deiliskipulagsins í heild sinni. Breytingin hefur á engan hátt áhrif á yfirbragð eða götumynd viðkomandi húsa. Það er því ekki um að ræða breytingu í grundvallaratriðum sem hefði gert kröfu um endurauglýsingu tillögunnar samkvæmt 4. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis með ofangreindri breytingu í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Eldra deiliskipulag Lundahverfis sem samþykkt var í bæjarstjórn telst ekki í gildi sbr. úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis-og auðindamála 23/2010 og því ekki ástæða til að fella það sérstaklega úr gildi.
Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.
06
Lóð fyrir búsetukjarna
Lagt fram minnisblað tækni-og umhverfissviðs þar sem stillt er upp 5 valkostum fyrir staðsetningu búsetukjarna fyrir hreyfihamlaða.
Skipulagsnefnd mælir með því að tillögur lóða í Ásahverfi, við Brekkuás annarsvegar og Bergás hinsvegar verið skoðaðar frekar.
07
Breiðabólstaðir - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu hesthúss í íbúðarhús að Breiðabólsstöðum.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við breytingu á notkun, þ.e. að hesthúsinu sé breytt í íbúðarhúsnæði enda er húsið inni á landnotkunarreit íbúðarbyggðar í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.
08
Sjávargata 13 - stækkun - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn frá húseiganda þar sem spurt er hvort heimilað verði að stækka byggingarreit hússins. Skipulagsnefnd leggst gegn því að byggingarlína meðfram Sjávargötu sé rofin eins og tillaga gerir ráð fyrir auk þess sem nálægð við hús númer 9 verði of mikil og ekki í samræmi við bil milli húsanna í deiliskipulagi. Svar skipulagsnefndar er því neikvætt.
09
Fyrirspurn til Skipulagsstjóra - Eikarás 10 - garðskáli
Lögð fram tillaga að garðhhýsi við háan stoðvegg við lóðarmörk að ofanverðu.
Skipulagsnefnd leggur til að tillagan geri ráð fyrir fallvörnum (handriði) ofan á stoðvegg sem hindrar líka að unnt sé að ganga beint út á þak garðhýsiss.
Skipulagsnefnd metur tillöguna með ofangreindri breytingu sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra, Ásahverfis í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum Eikaráss 8, 11, 13 og 15 og Greniáss 13,15,17 og 19.
10
Gilsbúð 9, stækkun á lóð og byggingareit - breytt deiliskipulag Gilsbúðar 9
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
11
Hraunhólar 8, breyting á deiliskipulagi Hraunholts eystra
Vísað til frekar skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
12
Markarflöt 51, fyrirspurn um viðbyggingu
lögð fram tillaga að breytingu deiliskiplags Flata sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit á baklóð fyrir viðbyggingu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu á deiliskiplagi Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Markarflatar 28, 30, 49 og 53.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
13
Holtsvegur 53 - stækkun bílageymslu - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um breytingu á fyrirkomulagi sorpgeymslu og stækkun neðanjarðar bílageymslu fjölbýlishúss að Holtsvegi 53. Lögð fram umsögn deiliskipulaghöfundar sem mælir ekki gegn breytingunni og telur hana í raun til bóta. Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar samþykkir skipulagsnefnd tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr. Grenndarkynning er felld niður í samræmi við 3.mgr.44.gr.sömu laga þar sem að tillagan varðar ekki hagsmuni annara en umsækjanda og Garðabæjar.
15
Umferðaröryggisáætlun
Kynningarfundur og opið hús vegna vinnu við umferðaröryggisáætlun verður haldinn miðvikudaginn 18. mars næstkomandi í Sveinatungu.
16
Ölfus, endurskoðun aðalskipulags. Skipulagslýsing
Skipulagsnefnd. gerir ekki athugasemd.
17
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 1
Lögð fram.
17.1 - 2001499 - Fyrirspurn til Skipulagsstjóra - Eikarás 10 - garðskáli
Sótt var um garðskýli við lóðarmörk að ofanverðu árið 2012, þá kallað svalalokun og um leið var sótt um smáhýsi við sömu lóðarmörk. Því erindi var hafnað. Í einbýlishluta Ásahverfis eru á annan tug smáhýsa en þau eru öll minni en 12 m2 og flest nærri lóðarmörkum. Stöðveggur á lóðarmörkum að ofanverðu er allt að 3 metra hár og án fallvarna. Skipulasgstjóri vísar fyrirspurn til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
17.10 - 1911186 - Víkurgata 4 -Umsókn um byggingarleyfi
Lagðar fram aðalteikningar sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Einnig erindi frá hönnuði þar sem óskað er eftir undanþágu frá ákvæðum deiliskipulagins hvað varðar uppbrot útveggja.
Skipulagsstjóri vísar málinu til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
17.2 - 2001287 - Ránargrund 1 -Umsókn um byggingarleyfi
Lagðar fram reyndarteikningar af íbúðarhúsi á lóðinni Ránargrund þar sem garðskýli fer lítilega út fyrir byggingarreit. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis (samþykkt uppdrátta) verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað þetta atriði varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
17.3 - 2001131 - Aratún 36 -Umsókn um byggingarleyfi
Lagðar fram aðalteikningar sem fylgja byggingarleyfisumsókn að Aratún 36 þar sem að bílageymsla fer út fyrir byggingarreit til austurs og norðurs. Skiplagsstjóri mælir með því að bygging sé innan byggingarreits. Að öðrum kosti þarf lóðarhafi að sækja um deiliskipulagsbreytingu.
17.4 - 1912289 - Iðnbúð 2 -Umsókn um byggingarleyfi
Lagðar fram aðalteikingar sem fylgja byggingarleyfisumsókn að Iðnbúð 2. Svalir á efri hæð ná út fyrir byggingarreit og sorpgeymsla er utandyra. Ekki er sérstaklega kveðið á um svalir eða skyggni í deiliskipulagi en kveðið á um að byggingar skulu vera innan byggingarreits. Kveðið er á um að sorpgeymsla sbr.gr.4.5.í skilmálum sé innanhúss og 30 m2 leiksvæði á lóð sbr.grein 5.1.
Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað sorpgeymslu og svalir varðar. Sýna skal leiksvæði á lóð. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
17.5 - 2001227 - Smiðsbúð 3 - skipulagsmál
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina Smiðsbúð 3 sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits. Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu Iðnbúðar/Smiðsbúðar sbr.2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar tillögunni til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum Iðnbúðar 2, 4 og 6 og Smiðsbúðar 1, 2,4,5,6 og 8.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
17.6 - 2001370 - Dýjagata 2-6 - hæð handriða á bílskúr
Lögð fram fyrirspurn frá byggingarfulltrúa um handrið ofan á bílageymslu að Dýjagata 2-6 en nágranni telur að þau séu ekki í samræmi við deiliskipulagsskilmála. Samkvæmt deiliskipulagi gilda almennir skilmálar um handrið fyrir handrið á stakstæðum bílageymslum en þar segir að gegnsæi skuli aldrei vera minna en 50%. Lagðar fram ljómyndir sem nágranninn hefur tekið á staðnum.Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
17.7 - 2001498 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Kinnargata 18 - bílskúr
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa þar sem spurt er hvort heimilað yrði að færa bílgeymslu yfir á annan lóðarhelming eins og er í öðrum einbýlishúsum í sama botnlanga. Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
17.8 - 1910158 - Kinnargata 24 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðar fram aðalteikningar sem fylgja byggingarleyfisumsókn og erindi hönnuðar. Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis hafi verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað útskot stofuglugga efri hæðar og stoðsúlu varðar sem getið er í erindi hönnuðar dagsett 13.janúar 2020 . Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
17.9 - 1908041 - Maríugata 34 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðar fram aðalteikningar sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsið Maríugata 34. Samkvæmt teikningu er gert ráð fyrir einu bílastæði fyrir tvær íbúðir sem eru 90 m2 og eina íbúð sem er 90,3 m2. Samkvæmt grein 4.6.7. í skipulagsskilmálum Urriðaholts Austurhluta skal gera ráð fyrir tveimur bílastæðum fyrir íbúðir stærri en 90 birtum fermetrum og einu stæði fyrir minni en 9m birtum fermetrum. Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar þegar gerð er krafa um fjölda bílastæða í bílakjallara enda er stærð íbúðar aðeins lítillega stærri (90,3m2) eða jafnstór (90,0 m2) en ákvæði deiliskipulags gerir ráð fyrir. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.