Eikarás 10 - dsk breyting, garðskáli
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (866). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðarinnar við Eikarás 10. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarráð Garðabæjar
02
14.(1923). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis vegna lóðarinnar við Eikarás 10. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfi) sem gerir ráð fyrir byggingareit fyrir garðskála að lokinni grenndarkynningu. Engar athugsemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
3. (862). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfi) í tilefni umsóknar um byggingu garðhýsis á lóðinni við Eikarás 10, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
06
6. (1915). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfi) í tilefni umsóknar um byggingu á garðhýsis á lóðinni við Eikarás 10, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
2. fundur
Lögð fram tillaga að garðhhýsi við háan stoðvegg við lóðarmörk að ofanverðu.
Skipulagsnefnd leggur til að tillagan geri ráð fyrir fallvörnum (handriði) ofan á stoðvegg sem hindrar líka að unnt sé að ganga beint út á þak garðhýsiss.
Skipulagsnefnd metur tillöguna með ofangreindri breytingu sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra, Ásahverfis í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum Eikaráss 8, 11, 13 og 15 og Greniáss 13,15,17 og 19.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
10
1. fundur
Sótt var um garðskýli við lóðarmörk að ofanverðu árið 2012, þá kallað svalalokun og um leið var sótt um smáhýsi við sömu lóðarmörk. Því erindi var hafnað. Í einbýlishluta Ásahverfis eru á annan tug smáhýsa en þau eru öll minni en 12 m2 og flest nærri lóðarmörkum. Stöðveggur á lóðarmörkum að ofanverðu er allt að 3 metra hár og án fallvarna. Skipulasgstjóri vísar fyrirspurn til umfjöllunar í skipulagsnefnd.