3. (862). fundur
3. (862). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
20.02.2020
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Gunnar Valur Gíslason
- Almar Guðmundsson
- Björg Fenger
- Guðfinnur Sigurvinsson
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Harpa Þorsteinsdóttir
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.
Jóna Sæmundsdóttir, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Forseti lagði til að samþykkt verði afbrigði frá dagskrá og að nýr liður bætist við dagskrá og verði 3. tl. fundargerð fjölskylduráðs frá 15.01.2020. Bæjarstjórn samþykkir tillögu forseta.
Forseti bauð Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, varabæjarfulltrúa velkomna á sinn fyrsta fund í bæjarstjórn Garðabæjar.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. febrúar 2020 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 11/2 ´20.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin sem er 13. tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
1.10 - 1902148 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar að Markarflöt 51.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flatahverfis í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við einbýlishúsið að Markarflöt 51, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
1.11 - 1912164 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 53.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Holtsveg 53.
Grenndarkynning fellur niður samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða lóðarhafa.
Fylgiskjöl
1.3 - 1504148 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu.
Byggingarreitir raðhúsanna við Reynilund 11, 13, 15 og 17 eru stækkaðir þannig að byggingarreitur við suðurhlið húsanna (baklóð) verður dreginn sem bein lína og getur þá komi til stækkunar bílskúrs um 10 m2.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 2 (7.2.2020) - Lundahverfi - nýtt deiliskipulag..pdf
- 2020 02 05 Bréf Hildar Sólveigar Pétursdóttur til skipulagsnefndar.pdf
- 2020 02 04 Bréf Albínu Thordarson til skipulagsnefndar v Reynilundar 11.pdf
- Fylgiskjal 2 Reynilundur 11 uppdráttur 26-10-2017.pdf
- Fylgiskjal 1-undirskriftir eigenda nr.13 og 15 20-09-2017.pdf
- Athugasemdir til framlagningar á fundi bæjarráðs Garðabæjar á morgun 11-02-2020.pdf
1.4 - 2001378 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um stækkun byggingarreits að Sjávargötu 13.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðareiganda að Sjávargötu 13 um stækkun byggingarreits.
Fylgiskjöl
1.5 - 2001382 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytta notkun fasteignar að Breiðabólsstöðum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að leyfa að hesthúsi að Breiðabólsstöðum verði breytt í íbúðarhúsnæði enda er húsnæðið staðsett á landnotkunarreit íbúðarbyggðar samkvæmt aðalskipulagi.
Fylgiskjöl
1.6 - 2001499 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðarinnar að Eikarási 10.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfi) í tilefni umsóknar um byggingu garðhýsis á lóðinni við Eikarás 10, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
1.7 - 1809192 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis á Grundum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna svæðis við Ægisgrund. Tillagan gerir ráð fyrir að afmarkað verði nýtt svæði við Hraunsholtslæk fyrir samfélagsþjónustu.
Fylgiskjöl
1.8 - 1710090 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna Ægisgrundar 1-5.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 1.mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, þar sem gert verður ráð fyrir að opið svæði við Hraunsholtslæk breytist í svæði fyrir lóð Alþjóðaskólans á Íslandi ásamt því að áfram er gert ráð fyrir einbýlishúsalóðum á svæðinu. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 18/2 ´20.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl, könnun meðal starfsfólks Garðabæjar - starfstengd viðhorf og líðan á vinnustað, 15. tl., tillögu Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks og 16. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um framkvæmdaáætlun.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 15. tl., tillögu Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks og 16. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um framkvæmdaáætlun.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi könnun meðal starfsfólks Garðabæjar - starfstengd viðhorf og líðan á vinnustað, 13. tl., bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins varðandi drög að frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga og 15. tl., tillögu Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., könnun meðal starfsfólks Garðabæjar - starfstengd viðhorf og líðan á vinnustað og 15. tl., tillögu Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 15. tl., tillögu Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 15. tl., tillögu Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks.
Björg Fenger, ræddi 15. tl., tillögu Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 15. tl., tillögu Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks.
Almar Guðmundsson, ræddi 15. tl., tillögu Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks og 11. tl., erindi Heilabrota ehf. varðandi kynningu á starfsemi félagsins.
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, ræddi 15. tl., tillögu Garðabæjarlistans um lýðheilsu hinsegin fólks.
Fundargerðin sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 15/1 ´20.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., endurskoðun lýðræðistefnu Garðabæjar.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 11/2 ´20.
Björg Fenger kvaddi sér hljóðs og færði körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hamingjuóskir með glæsilegan sigur í bikarkeppni meistaraflokks karla og 10. flokki drengja.
Þá ræddi Björg 1. tl., úthlutun afreksstyrkja og 4. tl., endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 4. tl., endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar.
Fundargerðin er lögð fram.
07
Fundargerð skipulagsnefndar frá 7/2 ´20.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., lóð fyrir búsetukjarna.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 3. tl., breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis við Ægisgrund, 4. tl., breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóða við Ægisgrund og 6. tl., lóð fyrir búsetukjarna.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 6. tl., lóð fyrir búsetukjarna.
Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., lóð fyrir búsetukjarna og 2. tl., breytingu á aðalskipulagi vegna Vífilsstaðalands.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 6. tl., lóð fyrir búsetukjarna.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., lóð fyrir búsetukjarna.
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, ræddi 6. tl., lóð fyrir búsetukjarna.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 6. tl., lóð fyrir búsetukjarna.
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/2 ´20.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., tillögu að friðlýsingu Búrfells, Búrfellsgjár og Selgjár og 10. tl., tillögu um að draga úr plastmengun hjá stofnunum Garðabæjar. Guðfinnur þakkaði starfsmönnum bæjarins sem unnið hafa að undirbúningi og framgangi málsins fyrir þeirra frábæru störf.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., úttekt á kostnaði vegna sorphirðu sveitarfélagsins.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 11. tl., úttekt á kostnaði vegna sorphirðu sveitarfélagsins.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 11. tl., úttekt á kostnaði vegna sorphirðu sveitarfélagsins.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 30/1 ´20.
Björg Fenger, ræddi 6. tl., innleiðingu á rafrænu greiðslukerfi og 7. tl., mótun nýrrar fargjaldastefnu fyrir Strætó bs.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., samstarf vegna Borgarlínu og 2. tl., niðurstöður árangursmats stjórnar.
Björg Fenger, ræddi 4. tl., samstarf vegna Borgarlínu og 2. tl., niðurstöður árangursmats stjórnar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 6. tl., innleiðingu á rafrænu greiðslukerfi.
Björg Fenger, ræddi 6. tl., innleiðingu á rafrænu greiðslukerfi og svaraði fyrirspurn um málið.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., niðurstöður árangursmats stjórnar.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 30/1, 7/2 og 12/2 ´20.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2 tl, fg. frá 12/2, ráðningu tímabundins framkvæmdastjóra og 3. tl. fg. frá 12/2, greiningu á fjárhag.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., fg. frá 12/2, greiningu á fjárhag.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., fg. frá 12/2, greiningu á fjárhag.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
11
Fundargerð stjórnar SSH frá 3/2 ´20.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., sóknaráætlun og 7. tl., samninga um notendastýrða persónulega aðstoð.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., sóknaráætlun.
Almar Guðmundsson, ræddi 7. tl., samninga um notendastýrða persónulega aðstoð og 3. tl., stjórnsýslu byggðasamlaganna.
Fundargerðin er lögð fram.
12
Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu.
Björg Fenger gerði grein fyrir reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu, ásamt samkomulagi sveitarfélaga, samkomulagi við Strætó bs., þjónustulýsingu og erindisbréfi stjórnar akstursþjónustunnar. Um er að ræða sameiginlegar reglur sveitarfélaganna Reykjavíkurborgar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarnesbæjar og Garðabæjar.
Björg fór nánar yfir breytingar sem gerðar hafa verið á reglum um akstursþjónustu og þjónustulýsingu eftir kynningu í bæjarráði.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks, samkomulag við Strætó bs., samkomulag sveitarfélaga, þjónustulýsingu og erindisbréf stjórnar með fyrirvara um samþykki allra annarra hlutaðeigandi sveitarfélaga.