Beint í efni

Tilkynning Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samning um akstursþjónustu fatlaðs fólks, dags. 01.09.20.

Málsnúmer 1805129

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

36. (1944). fundur

Í tilkynningunni kemur fram að stjórn SSH hefur veitt Strætó bs. heimild til að undirrita samning við Hópbíla ehf. um sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð Garðabæjar

02

26. (1934). fundur

Á fund bæjarráðs kom Erlendur Pálsson, sviðsstjóri farþegaþjónustu Strætó bs. og kynnti nánar útboðsferli vegna aksturþjónustu fatlaðs fólks. Eftir yfirferð tilboða var samþykkt 20.júní sl. að taka tilboði Hópbíla ehf.

Bæjarfulltrúarnir Gunnar Valur Gíslason, Jóna Sæmundsdóttir og Sara Dögg Svanhildardóttir sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

3. (862). fundur

Björg Fenger gerði grein fyrir reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu, ásamt samkomulagi sveitarfélaga, samkomulagi við Strætó bs., þjónustulýsingu og erindisbréfi stjórnar akstursþjónustunnar. Um er að ræða sameiginlegar reglur sveitarfélaganna Reykjavíkurborgar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarnesbæjar og Garðabæjar.

Björg fór nánar yfir breytingar sem gerðar hafa verið á reglum um akstursþjónustu og þjónustulýsingu eftir kynningu í bæjarráði.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks, samkomulag við Strætó bs., samkomulag sveitarfélaga, þjónustulýsingu og erindisbréf stjórnar með fyrirvara um samþykki allra annarra hlutaðeigandi sveitarfélaga.

Bæjarráð Garðabæjar

04

6. (1915). fundur

Fyrir er tekið bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi akstursþjónustu fatlaðs fólks ásamt fylgigögnum, dags. 10. febrúar 2020.

Björg Fenger, bæjarfulltrúi og formaður stjórnar Strætó bs., sat fund bæjarráðs undir þessum lið. Björg gerði nánari grein fyrir tillögu um að Strætó bs. annist útboð á þjónustunni og fór yfir framlögð gögn.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að heimila Strætó bs. að annast sameiginlegt útboð með Reykjavík, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk á grundvelli fyrirliggjandi draga að samningi, sameiginlegum reglum og þjónustulýsingu.

Bæjarráð vísar drögum að samningi, sameiginlegum reglum og þjónustulýsingu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

05

1. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1805129 áframhaldandi samstarf um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Frá´árinu 2014 hafa fimm sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu staðið sameiginlega að akstursþjónustu fatlaðs fólks en Strætó bs hefur annast rekstur akstursins m.a. þjónustuver og skipulag þjónustunnar. Samningur um akstursþjónustuna við verktakana rann út 31. desember 2019 en hefur verið framlengdur til 1. júlí 2020. Áfundi stjórnar SSH 7. okt. sl. var samþykkt að Reykjavík, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnes myndu vinna áfram að því að bjóða sameiginlega út akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Lögð eru fram drög þessara sveitarfélaga að sameiginlegri þjónustulýsingu, sameiginlegum reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks og sameiginlegum reglum um skólaakstur fatlaðra grunnskólabarna.
Samráðshópurinn fjallar um fyrirliggjandi drög.

Fjölskylduráð Garðabæjar

06

1. fundur

Lagt er fram mál nr. 1805129 áframhaldandi samstarf um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Málið verður sent til umfjöllunar hjá Samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.

Bæjarráð Garðabæjar

07

2. (1911). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Björg Fenger, bæjarfulltrúi og kynnti nánar reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks og þjónustulýsingu vegna útboðs. Um er að ræða sameiginlegt útboð Reykjavíkurborgar, Garðabæjar, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar á akstursþjónustu fyrir íbúa sveitarfélaganna sem uppfylla það skilyrði að fötlun þeirra falli að skilgreiningu 2.gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, og að þeir eigi ekki rétt á niðurgreiddri akstursþjónustu frá öðrum aðilum eða rétt á akstri samkvæmt öðrum lögum, reglugerðum eða reglum.

Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks.

Bæjarráð Garðabæjar

08

42. (1857). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Reynir Kristinsson, ráðgjafi frá Nor ehf. og gerði grein fyrir tillögum um fyrirkomulag samstarfs sveitarfélaganna um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.

Bæjarráð samþykkir að taka þátt í vinnu við undirbúning útboðs á áframhaldandi sameignlegri ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu.

Gunnar Valur Gíslason og Björg Fenger, bæjarfulltrúar sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 - 3.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

09

41. (1856). fundur

Bæjarráð samþykkir að boða til frekari kynningar um málið á næsta fundi bæjarráðs.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

10

17. (1832). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar hjá fjölskyldusviði.

Fylgiskjöl