Beint í efni

26. (1934). fundur

30.06.2020
Bæjarráð Garðabæjar

26. (1934). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

30.06.2020

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2006570

01

Bréf Sorpu bs. varðandi tillögur vegna fjármála félagsins, dags. 25.06.20.

Á fund bæjarráðs komu Birkir Jón Jónsson, stjórnarformaður Sorpu bs., Helgi Þór Ingason, framkvæmdastjóri Sorpu bs. og Birgir Björn Sigurjónsson fulltrúi í fjármálateymi Sorpu bs.

Gerðu þeir grein fyrir eftirfarandi tillögum.

Tillaga (1) um viðauka við eigendasamkomulag frá 25. október 2013 vegna meðhöndlunar úrgangs í Álfsnesi.

Tillaga (2) um aðgerðir til að takast á við vanda vegna ófjármagnaðra fjárfestinga Sorpu bs. Í tillögunni kemur fram skipting fjárframlaganna milli sveitarfélaga.

Tillaga (3) um gjaldskrárbreytingar til að mæta kostnaði vegna hertra krafna um meðferð úrgangs.

Tillögurnar lagðar fram til kynningar.


Bæjarfulltrúarnir Gunnar Valur Gíslason, Jóna Sæmundsdóttir og Sara Dögg Svanhildardóttir sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Björg Fenger, vék af fundi við umræðu um málið.


Málsnúmer 1805129

02

Kynning á samþykki Strætó bs. á tilboði í sameiginlega akstursþjónustu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Á fund bæjarráðs kom Erlendur Pálsson, sviðsstjóri farþegaþjónustu Strætó bs. og kynnti nánar útboðsferli vegna aksturþjónustu fatlaðs fólks. Eftir yfirferð tilboða var samþykkt 20.júní sl. að taka tilboði Hópbíla ehf.

Bæjarfulltrúarnir Gunnar Valur Gíslason, Jóna Sæmundsdóttir og Sara Dögg Svanhildardóttir sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2001444

03

Covid 19 - hættustig almannavarna.

Upplýsingastjóri sagði frá aðgerðum sem gripið hefur verið til í vinnuskólanum í framhaldi af smiti starfsmanns. Um 50 unglingar ásamt ákveðnum fjölda flokkstjóra hafa þurft að fara í sóttkví til og með 10. júlí nk. Þá var ákveðið að öll ungmenni fengu frí úr vinnu dagana 29. og 30. júní. Fjölmargir starfsmenn hafa farið í skimun.

Ítrekuð hafa verið áhersluatriði til starfsmanna bæjarins um grunnreglur samfélagssáttmála varðandi góðan handþvott, handsprittun o.fl.

Bæjarfulltrúi, Sara Dögg Svanhildardóttir, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2006427

04

Bréf Góðvildar styrktarsjóðs varðandi aðgengi fyrir alla á leikvöllum, ódags.

Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs og til sumarvinnuhóps sem vinnur að úttekt á aðgengi fyrir fatlað fólk í stofnun bæjarins og almenningssvæðum í bænum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702065

05

Dómur Hæstaréttar í máli Garðabæjar gegn íslenska ríkinu varðandi rekstur Ísafoldar, dags. 16.06.20.

Málsnúmer 2006382

06

Tillaga skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi gjaldskrá skólaárið 2020-2021.

Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar um gjaldskrá fyrir skólaárið 2020-2021. Gjaldskráin hækkar um 3%.

Málsnúmer 2006212

07

Opnun tilboða í endurnýjun vallarlýsingar fyrir gervigrasvöll á Álftanesi.

Eftirfarandi tilboð lögð fram.

Reykjafell ehf. Tilboð metið ógilt og hafnað.

Metatron ehf. kr. 42.773.066

Kostnaðaráætlun kr. 49.830.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Metatron ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 1912313

08

Tilkynning Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um nýjar og endurskoðaðar áætlanir um framlög, dags. 24.06.20.

Lögð fram.

Málsnúmer 2006465

09

Stefna Lögmanna Laugardal til ógildingar á úrskurði yfirfasteignamatsnefndar varðandi álagningu fasteignaskatts á húsnæði að Iðnbúð 5.

Bæjarráð felur Andra Árnasyni, lögmanni að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2006575

10

Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um að hefja vinnu við gerð deiliskipulags, dags. 22.06.20.