Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi beiðni landeiganda um að hefja vinnu við gerð deiliskipulags útivistarsvæðis o.fl. í Urriðavatnsdölum.

Málsnúmer 2006575

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (1936). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að leggja til við lendeiganda að gerð verði lýsing á skipulagsverkefninu samkvæmt 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

7. fundur

Lagt fram erindi frá Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa þar sem óskað er eftir heimild landeigenda til þess að vinna sjálfur að gerð deiliskipulags fyrir fyrirhugaðan fólkvang og fyrir endurskoðun gildandi deiliskipulags golfvallarins í Urriðakotsdölum. Skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart erindinu en bendir á að samkvæmt 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þá skal landeigandi leggja fram lýsingu á skipulagsverkefninu í bæjarstjórn á sama tíma og beiðni um heimild til að vinna tillögu að deiliskipulagi. Nefndin leggur því til að landeigandi leggi lokahönd á skipulagslýsingu í samráði við tækni- og umhverfissvið sem lögð verður fram í bæjarstjórn um leið og beiðni landeiganda.