Beint í efni

28. (1936). fundur

14.07.2020
Bæjarráð Garðabæjar

28. (1936). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

14.07.2020

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2005044

01

Aratún 6 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Hjalta Kristjánssyni, kt. 300172-5559, leyfi fyrir viðbyggingu (nýr bílskúr og stækkun húss) við núverandi einbýlishús að Aratúni 6.

Málsnúmer 2007087

02

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu á umsókn um byggingarleyfi á lóðinni við Dalsbyggð 21.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna stoðveggja og viðbyggingar við núverandi hús að Dalsbyggð 21 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem deiliskipulag fyrir svæðið liggur ekki fyrir. Umsóknin skal grenndarkynnt eigendum Dalsbyggðar 17, 19, 23 og Hæðarbyggðar 40,42 og 44.

Málsnúmer 2003355

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna stækkunar byggingarreits á lóðinni við Austurhraun 5.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 5. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2006690

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss.

Lögð fram.

Málsnúmer 2006575

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi beiðni landeiganda um að hefja vinnu við gerð deiliskipulags útivistarsvæðis o.fl. í Urriðavatnsdölum.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að leggja til við lendeiganda að gerð verði lýsing á skipulagsverkefninu samkvæmt 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1909193

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðar fyrir uppsátur og naust.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er varðar lóð fyrir uppsátur og naust var auglýst. Athugasemdir sem bárust hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og er auglýst tillaga samþykkt óbreytt.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Málsnúmer 2006646

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu Kópavogsbæjar um breytingu á deiliskipulagi fyrir Glaðheima.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari greining á áhrifum tillögunnar á byggð í Garðabæ sérstaklega m.t.t. til umferðarflæði um Arnarnesveg og Reykjanesbraut.

Málsnúmer 2005309

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 vegna svæðis við Traðarreit-eystri.

Lögð fram.

Málsnúmer 2003255

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 vegna svæðis við Fannborgarreit - Traðarreit-vestri. Vinnslutillaga

Lögð fram.

Málsnúmer 2007148

10

Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi skipulagslýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi um tvöföldun Reykjanesbrautar.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2007158

11

Framlög til stjórnmálaflokka árið 2020.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu á greiðslu til stjórnmálasamtaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2020.

Sjálfstæðisflokkur kr. 2.239.009

Garðabæjarlistinn kr. 1.015.653

Miðflokkur kr. 245.338

Samtals: kr. 3.500.000

Fyrir liggja gögn til staðfestingar á að ofangreind stjórnmálasamtök hafa sinnt upplýsingaskyldu sinni gagnvart Ríkisendurskoðun samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.

Málsnúmer 2007194

12

Lokun Garðahraunsvegar - athugasemdir og ábendingar.

Lagðar fram fjölmargar athugasemdir og ábendingar vegna lokunar Garðahraunsvegar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda viðkomandi aðilum svarbréf þar sem fram komi að umrædd lokun sé í samræmi við deiliskipulag fyrir íbúðarbyggð í Garðahrauni og eru bæjaryfirvöld skuldbundin gagnvart íbúum svæðisins að láta lokunina koma til framkvæmda. Breyting á deiliskipulagi þar sem lokun var ákveðin var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 16. mars 2017 og var hún kynnt á sínum tíma og á ekki að koma óvart.

Með lokuninni er einnig horft til umferðaröryggissjónarmiða en gegnumakstur um Garðahraunsveg, þar sem eru mörg gatnamót að íbúðarhúsagötum, hefur verið hraður og hættulegur.

Bæjarráð samþykkir að fela tækni- og umhverfissviði að skoða nánar möguleika á lagfæringum á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar til að bæta umferðaröryggi.

Málsnúmer 2006707

13

Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2020.

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2020.