Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðar fyrir uppsátur og naust.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
28. (1936). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er varðar lóð fyrir uppsátur og naust var auglýst. Athugasemdir sem bárust hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og er auglýst tillaga samþykkt óbreytt.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis sem gerir ráð fyrir lóð og byggingarreit fyrir nausti sem er ætlað að hýsa aðstöðu fyrir Kajakklúbbinn Sviða. Lögð fram athugasemd sem borist hefur ásamt umsögn Umhverfisstofnunar en lóðin er staðsett við mörk friðlýsts svæðis.
Í umsögn kemur fram að meta þurfi umfang starfseminnar sem breytingin leiðir af sér.
Í athugasemd er lýst efasemdum um að breytingin sé í anda deiliskipulagsins og að umferð fari fram hjá Hausastöðum og lokað verði fyrir hringakstur.
Skipulagsnefnd bendir á að kajakklúbburinn starfi nú þegar og hafi aðstöðu við mörk fólkvangsins í Hliði. Sú staðsetning leggst af með nýrri staðsetningu. Hér er eingöngu um kajakróður að ræða en ekki vélknúin farartæki sem eru óheimil samkvæmt friðlýsingarskilmálum. Það er mat nefndarinnar að áhrif af starfsemi kajakklúbbsins séu óveruleg.
Varðandi naustið þá er það sýn nefndarinnar að naust ásamt uppsátri sé algerlega í anda byggðar í Garðaholti og deiliskipulagsins og styrki það yfirbragð sem deiliskipulagið leggi áherslu á. Þannig er umrætt naust minna að flatarmáli og hæð en sá hjallur sem fyrir er í nágrenninu. Ekki er fyrirhugað samkvæmt tillögunni að loka fyrir hringakstur á svæðinu og gert verður ráð fyrir að aðal aðkoman verði frá Hliðsnesvegi.
Skipulagasnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna óbreytta.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipuags Garðahverfis sem gerir ráð fyrir lóð og byggingarreit fyrir naust sem ætlað er að vera aðstaða fyrir kajaksiglingaklúbbinn Sviða.
Ein athugasemd hefur borist og hún lögð fram. Umsögn Umhverfisstofnuar hefur borist og hún lögð fram.
Umsögnum og tillögu vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
2. (861). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir lóð fyrir uppsátri og naust á fjörukambi í landi Katrínarkots. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Garðahverfi er verndarsvæði í byggð og skal tillagan send Minjastofnun til umsagnar.
Bæjarráð Garðabæjar
06
3. (1912). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir lóð fyrir uppsátri og naust á fjörukambi í landi Katrínarkots. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Garðahverfi er verndarsvæði í byggð og skal tillagan send Minjastofnun til umsagnar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
1. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir lóð fyrir uppsátur og naust á fjörukambi í landi Katrínarkots. Lóðin er 100 m2 að stærð og gert ráð fyrir byggingarreit 5,25x6 m. Þar verði heimilt að reisa naust sem verði 30 m2 að hámarksgrunnfleti, mænishæð 3 m, vegghæð 1,5 m. Lóðin er utan marka friðlýsts svæði búsvæðaverndar Skerjafjarðar. Garðahverfi nýtur verndar sem verndarsvæði í byggð og samkvæmt 4.mgr. 6.gr.laga um verndarsvæði í byggð skal auglýsa hina fyrirhuguðu framkvæmd. Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar skv. 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Leita skal umsagnar Minjastofnunar vegna verndarsvæðis í byggð og Umhverfisstofnunar vegna nálægðar við friðlýst svæði.
Baldur Ó.Svavarsson bókar eftirfarandi: "Enn er verið að leggja til breytingar á deiliskipulagi Garðahverfis. Bendi á að hér þarf byggingarskilmála sem horfa til byggðamynsturs 20.aldar og þeirra furðulegu kvaða sem gilda um nýbyggingarnar á svæðinu."
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
09
13. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir lóð fyrir uppsátur og naust á fjörukambi í landi Katrínarkots. Lóðin er 100 m2 að stærð og gert ráð fyrir byggingarreit 5,25x6 m. Þar verði heimilt að reisa naust sem verði 30 m2 að hámarksgrunnfleti, mænishæð 3 m, vegghæð 1,5 m. Lóðin er utan marka friðlýsts svæði búsvæðaverndar Skerjafjarðar.
Garðahverfi nýtur verndar sem verndarsvæði í byggð og samkvæmt 4.mgr. 6.gr.laga um verndarsvæði í byggð skal auglýsa hina fyrirhuguðu framkvæmd.
Skipulagsstjóri mælir með því að tillagan verði auglýst sem breyting deiliskipulags skv. 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga.
Málinu vísað til skipulagsnefndar.