13. fundur
13. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
30.12.2019
Kl. 13:30 - 14:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
- Arnar Hannes Halldórsson - verkfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1909193
01
Kajak klúbburinn Sviði - aðstaða
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir lóð fyrir uppsátur og naust á fjörukambi í landi Katrínarkots. Lóðin er 100 m2 að stærð og gert ráð fyrir byggingarreit 5,25x6 m. Þar verði heimilt að reisa naust sem verði 30 m2 að hámarksgrunnfleti, mænishæð 3 m, vegghæð 1,5 m. Lóðin er utan marka friðlýsts svæði búsvæðaverndar Skerjafjarðar.
Garðahverfi nýtur verndar sem verndarsvæði í byggð og samkvæmt 4.mgr. 6.gr.laga um verndarsvæði í byggð skal auglýsa hina fyrirhuguðu framkvæmd.
Skipulagsstjóri mælir með því að tillagan verði auglýst sem breyting deiliskipulags skv. 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga.
Málinu vísað til skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1910415
02
Arnarnes deiliskipulagsbreyting vegna aðkomutákns
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness að lokinni grenndarkynningu. Athugasemd hefur borist. Vísað til skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1912277
03
Þrastanes 14 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Lögð fram umsókn um starfsleyfi fyrir fótaaðgerðarstofu að Þrastanesi 14. Fram kemur að um 4-6 viðskiptavini á dag er að ræða.
Samkvæmt grein 4.16. í greinargerð deiliskipulags Arnarness kemur fram að rekstur sem leiðir af sér umferðaraukningu um húsagötur eða ónæði er með öllu óheimil nema með leyfi bæjarstjórnar.
Skipulagsstjóri telur að umferð af umræddri starfsemi sé óveruleg og að nóg bifreiðarstæði eru á lóðinni eins og hún er útfærð. Auk þess er aðkoma frá Lundanesi sem telst ekki húsagata skv.deiliskipulagi.
Vísað til bæjarráðs/bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1802197
04
Sjónarvegur 10- Umsókn um byggingarleyfi
Samkvæmt reyndarteikningum og úttektarskýrslu er útfærsla suðaustursvala á húsi númer 14 með þeim hætti að þær uppfylla ekki kröfu um 50% gegnsæi handriða. Hönnuður bendir á að ástæða þess sé sú að það sé til þess að draga úr ónæði vegna ljósagangs frá bílastæðum frá bílastæði á lóð að ofanverðu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við samþykkt reyndarteikningar verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ákvæði um gegnasæi handriða á suðaustursvölum varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1910059
05
Keldugata 1 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir einbýlishús að Keldugötu 1. Umsókn gerir ráð fyrir 2 geymslum utan byggingarreits á bak við stoðvegg. Með vísan í aðrar sambærilegar afgreiðslur umsókna gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað umræddar geymslur utan byggingarreits varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
(Áður hefur skipulagsstjóri beitt sama ákvæði hvað varðar tilfærslu húss út fyrir byggingarreit)
Málsnúmer 1912213
06
Urriðaholt norðurhluti 3 - afmörkun svæðis - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Norðurhluta 3 sem gerir ráð fyrir breytingar á deiliskipulagsmörkum við Urriðaholtsstræti í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta 4 sem samþykkt hefur verið að auglýsa. Mörk deiliskipulags fylgja mörkum lóða við sunnanvert Urriðaholtsstræti eftir breytingu en er handan strætisins í gildandi deiliskipulagi.
Skipulagsstjóri lítur svo á að þegar að skipulagsnefnd samþykkti að vísa tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta 4 til auglýsingar á fundi 12.desember sl hafi nefndin um leið samþykkt að vísa tillögu að breytingu deiliskipulagsmarka Norðurhluta 3 til auglýsingar.
Málsnúmer 1912216
07
Urriðaholt vesturhluti - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta þar sem gert er ráð fyrir breytingum á ákvæðum varðandi skjólveggi. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar þann 12.desember 2019 á tillögu sama efnis lítur skipulagsstjóri svo á að heimild til auglýsingar tillögunnar hafi verið samþykkt.
Málsnúmer 1912214
08
Urriðaholt austurhluti 1 - afmörkun svæðis - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta 1 sem gerir ráð fyrir breytingar á deiliskipulagsmörkum neðan við Maríugötu í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta 4 sem samþykkt hefur verið að auglýsa.
Skipulagsstjóri lítur svo á að þegar að skipulagsnefnd samþykkti að vísa tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta 4 til auglýsingar hafi nefndin um leið samþykkt að vísa tillögu að breytingu deiliskipulagsmarka Austurhluta 1 til auglýsingar.
Málsnúmer 1912217
09
Urriðaholt norðurhluti 1 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 1 þar sem gert er ráð fyrir breytingum á ákvæðum varðandi skjólveggi. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar þann 12.desember 2019 á tillögu sama efnis lítur skipulagsstjóri svo á að heimild til auglýsingar tillögunnar hafi verið samþykkt.
Málsnúmer 1912218
10
Urriðaholt norðurhluti 2 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2 þar sem gert er ráð fyrir breytingum á ákvæðum varðandi skjólveggi. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar þann 12.desember 2019 á tillögu sama efnis lítur skipulagsstjóri svo á að heimild til auglýsingar tillögunnar hafi verið samþykkt.
Málsnúmer 1912219
11
Urriðaholt norðurhluti 3 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 þar sem gert er ráð fyrir breytingum á ákvæðum varðandi skjólveggi. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar þann 12.desember 2019 á tillögu sama efnis lítur skipulagsstjóri svo á að heimild til auglýsingar tillögunnar hafi verið samþykkt.
Málsnúmer 1912220
12
Urriðaholt austurhluti 1 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Austurhluta 1 þar sem gert er ráð fyrir breytingum á ákvæðum varðandi skjólveggi. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar þann 12.desember 2019 á tillögu sama efnis lítur skipulagsstjóri svo á að heimild til auglýsingar tillögunnar hafi verið samþykkt.