Beint í efni

Urriðaholt norðurhluti 1 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 1912217

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (867). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á ákvæðum skilmála um skjólveggi. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 1912217)

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

8. (867). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

17. (1926). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á ákvæðum skilmála um skjólveggi. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Norðurhluta 1 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á almennum lóðaskilmálum deiliskipulagsins hvað varðar ákvæði um sérnotafleti lóðar, girðingar og skjólveggi. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

3. fundur

Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 1 sem gerir ráð fyrir breyttum ákvæðum um skjólveggi á almennum skilmálum lögð fram að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

1. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

07

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 1 þar sem gert er ráð fyrir breytingum á ákvæðum varðandi skjólveggi. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar þann 12.desember 2019 á tillögu sama efnis lítur skipulagsstjóri svo á að heimild til auglýsingar tillögunnar hafi verið samþykkt.