3. fundur
3. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
13.03.2020
Kl. 08:00 - 11:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti.
Skipulagsráðgjafar, Jóhanna Helgadóttir Eflu og Þráinn Hauksson Landslagi kynntu stöðu á mótun tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands og verður sett fram sem rammahluti aðalskipulags.
Tillögu vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og hjá tækni- og umhverfissviði.
Tillögu vísað til kynningar í umhverfisnefnd,íþrótta- og tómstundaráði, grunnskólanefnd og leikskólanefnd.
02
Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Skipulagsráðgjafar, Þráinn Hauksson Landslagi ehf og Björn Guðbrandsson Arkís ehf kynna drög að tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.
Drögum vísað til kynningar í umhverfisnefnd og íþrótta- og tómstundaráði. Drögin skulu kynnt landeigendum á Norðurnesi.
03
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Skipulagsráðgjafi, Þráinn Hauksson landslagi kynnti drög að tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem byggir á tillögu að deiliskipulagi Norðurness. Drögum vísað til kynningar í umhverfisnefnd og íþrótta- og tómstundaráði. Drögin skulu kynnt landeigendum á Norðurnesi.
04
Urriðaholt Norðurhluti 4 - deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 að lokinni auglýsingu. Umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Engar athugasemdir bárust innan tilskilins frests.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
05
Urriðaholt Viðskiptastræti - fellt úr gildi
Tillaga um niðurfellingu deiliskipulags Viðskiptastrætis í Urriðaholti lögð fram. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
06
Urriðaholt norðurhluti 1 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 1 sem gerir ráð fyrir breyttum ákvæðum um skjólveggi á almennum skilmálum lögð fram að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
07
Urriðaholt norðurhluti 2 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 2 sem gerir ráð fyrir breyttum ákvæðum um skjólveggi á almennum skilmálum lögð fram að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
08
Urriðaholt norðurhluti 3 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 3 sem gerir ráð fyrir breyttum ákvæðum um skjólveggi á almennum skilmálum lögð fram að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
09
Urriðaholt norðurhluti 3 - afmörkun svæðis - deiliskipulagsbreyting
Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 3 sem gerir ráð fyrir breyttri afmörkun deiliskipulagssvæðis til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
10
Urriðaholt austurhluti 1 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta 1 sem gerir ráð fyrir breyttum ákvæðum um skjólveggi á almennum skilmálum lögð fram að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
11
Urriðaholt austurhluti 1 - afmörkun svæðis - deiliskipulagsbreyting
Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta 1 sem gerir ráð fyrir breyttri afmörkun deiliskipulagssvæðis til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
12
Urriðaholt vesturhluti - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir breyttum ákvæðum um skjólveggi á almennum skilmálum lögð fram að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
13
Garðahraun efra-Fólkvangur, deiliskipulag
Lagfærður deiliskipulagsuppdráttur og greinargerð lögð fram ásamt umsögnum sem borist hafa frá því að deiliskipulagið var samþykkt í bæjarstjórn að lokinni auglýsingu. Einnig lögð fram tillaga að svörum við innsendum athugasemdum. Umsagnir kalla ekki á breytingu á samþykktri tillögu. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og svör við athugasemdum.
14
Bæjargarður, stígakerfi, dsk breyting.
Lagfærður deiliskipulagsuppdráttur lagður fram ásamt svörum við innsendum athugasemdum. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og svör við athugasemdum.
15
Langamýri 3 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir nokkrum innanhúsbreytingum íbúðarhússins. Sýnd er íbúð í kjallara sem til þessa hefur ekki komið fram á uppdráttum. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Löngumýri. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stoðíbúð í kjallara á meðan að húsið er óskipt eign. Skipulagsnefnd fellir grenndarkynningu niður þar sem að byggingarleyfið varðar ekki hagsmuni annara en umsækjanda og leyfisveitanda sbr. 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfið verði veitt.
16
Maríugata 2-24 - Lækkun hámarkshæðar
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta 1 sem gerir ráð fyrir því að mænishæð allra raðhúsa í Maríugötu sem liggja að opna svæðinu Miðgarði lækki um 1 metra, úr 6 metrum í 5. Húsin eru raðhús að gerð R1 og eru ákvæði um mænishæð sett fram í sérskilmálum þeirrar húsgerðar í kafla 4.8.4. í deiliskipulagsgreingargerð.
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir fundi með lóðarhöfum, deiliskipulagshöfundi og framkvæmdastjóra Urriðaholts ehf. Þar kom fram að skipulagshöfundur og Urriðaholt leggjast ekki gegn tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta 1 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annara en lóðarhafa og sveitarfélagsins.
17
Smiðsbúð 3 - skipulagsmál
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina Smiðsbúð 3 sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsstjóri vísaði tillögnni til grenndarkynningar sem er nú lokið. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Iðnbúðar/Smiðsbúðar.
18
Landsvæði til útikennslu og ræktunar
Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhvherfissviði.
19
Innleiðing Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi Garðabæ, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Lagt fram. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við val á verkefnum.
20
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og nýju dsk. fyrir Leiðarenda.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.
21
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 2
Fundargerð 2.afgreiðslufundar skipulagsstjóra lögð fram.
21.1 - 1902148 - Markarflöt 51, fyrirspurn um viðbyggingu
Fylgiskjöl
21.2 - 1911283 - Miðskógar 7 - Breyting á deiliskipulagi Miðskóga
Fylgiskjöl
21.3 - 2001498 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Kinnargata 18 - bílskúr
Fylgiskjöl
21.5 - 1912336 - Hraungata 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
21.6 - 1911186 - Víkurgata 4 -Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
21.7 - 2002320 - Boðahlein 20 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um byggingu 5,0 m2 smáhýsis á raðhúslóðinni. Lega þess er við lóðarmörk að opnum hluta lóðar. Skilmálar kveða á um að byggingarnefnd sé heimilt að veita leyfi fyrir smáhýsi allt að 6,0 m2. SKipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti leyfi fyrir umræddu smáhýsi.
Fylgiskjöl
21.8 - 2001370 - Dýjagata 2-6 - hæð handriða á bílskúr
Fylgiskjöl
21.9 - 1910394 - Þrastanes 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
SKipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við svalalokun enda í samræmi við deiliskipulag.