Urriðaholt norðurhluti 2 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
8. (867). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á ákvæðum skilmála um skjólveggi. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 1912218)
Bæjarráð Garðabæjar
03
17. (1926). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á ákvæðum skilmála um skjólveggi. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Norðurhluta 2 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á almennum lóðaskilmálum deiliskipulagsins hvað varðar ákvæði um sérnotafleti lóðar, girðingar og skjólveggi. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
3. fundur
Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 2 sem gerir ráð fyrir breyttum ákvæðum um skjólveggi á almennum skilmálum lögð fram að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
07
13. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2 þar sem gert er ráð fyrir breytingum á ákvæðum varðandi skjólveggi. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar þann 12.desember 2019 á tillögu sama efnis lítur skipulagsstjóri svo á að heimild til auglýsingar tillögunnar hafi verið samþykkt.