Beint í efni

8. (867). fundur

07.05.2020
Bæjarstjórn Garðabæjar

8. (867). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020

07.05.2020

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Guðfinnur Sigurvinsson
  • Almar Guðmundsson
  • Björg Fenger
  • Gunnar Einarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 16. apríl 2020 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2004020F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 21/4 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 18. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup 2019 og spurði hvenær fyrirhugað væri að endurskoða fjárhagsáætlun ársins.

Gunnar Einarsson, ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 9. tl., opnun tilboða í framkvæmdir við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Gunnar Einarsson, ræddi 9. tl., opnun tilboða í framkvæmdir við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.

Ingvar Arnarson, ræddi 6. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu til fjármála- og efnahagsráðherra varðandi stuðning við sveitarfélögin, 9. tl., opnun tilboða í framkvæmdir við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi 10. tl., opnun tilboða í endurnýjun á íþróttagólfi í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi og 15. tl., yfirlýsingu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um samstarf við rekstur vatns og fráveitu.

Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2004026F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 28/4 ´20.

Ingvar Arnarson ræddi 10. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um nýtingu úrræða vegna Covid19.

Gunnar Einarsson, ræddi 10. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um nýtingu úrræða vegna Covid19 og 8. tl., úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi margvíslegar aðgerðir til að styðja sveitarfélög.

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi margvíslegar aðgerðir til að styðja sveitarfélög.


Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi margvíslegar aðgerðir til að styðja sveitarfélög og 2. tl., aðgerðaráætlun sviða vegna úttektar á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Garðabæjar.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi margvíslegar aðgerðir til að styðja sveitarfélög.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi margvíslegar aðgerðir til að styðja sveitarfélög.

Björg Fenger, ræddi 3. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi margvíslegar aðgerðir til að styðja sveitarfélög.

Fundargerðin sem er 10 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2004035F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 5/5 ´20.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., sumarstörf ungmenna 2020.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., sumarstörf ungmenna 2020 og 23. tl., bréf Brynju Hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2020.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 15. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts og 16. tl. ? 20 tl., afgreiðslur skipulagsnefndar varðandi breytingar á ákvæðum skilmála um skjólveggi.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., sumarstörf ungmenna 2020 og sagði nánar frá undirbúningi umsóknar til Vinnumálastofnunar um fjárveitingu til nýrra skapandi sumarstarfa fyrir ungt fólk.

Almar Guðmundsson, ræddi 23. tl., bréf Brynju Hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2020.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., sumarstörf ungmenna 2020.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 23. tl., bréf Brynju Hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2020.

Gunnar Einarsson, ræddi, 23. tl., bréf Brynju Hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2020.

Fundargerðin sem er 26 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2004030F

04

Fundargerð fjölskylduráðs frá 29/4 ´20.

Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., lóð fyrir búsetukjarna. Almar sagði frá umræðu á fundinum um stöðu mála á tímum Covid19.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., lóð fyrir búsetukjarna.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2004022F

05

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 22/4 ´20.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., starfsemi safna á tímum Covid19, 5. tl., menningaruppskeruhátíð, 6. tl., val á bæjarlistamanni Garðabæjar 2020, 7. tl., hvatningasjóð ungra listamanna og 10. tl., verkefni menningar- safnanefndar og stöðu viðburða á árinu.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2004032F

06

Fundargerð skipulagsnefndar frá 30/4 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 10. tl., deiliskipulag Vetrarmýrar.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 10. tl., deiliskipulag Vetrarmýrar.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 10. tl., deiliskipulag Vetrarmýrar.

Ingvar Arnarsson, ræddi 10. tl., ræddi deiliskipulag Vetrarmýrar, 20. tl., stofnleiðir hjólreiða, 21.1 tl., skipulag við Hraunhóla.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 20. tl., stofnleiðir hjólreiða.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 10. tl., deiliskipulag Vetrarmýrar og 11. tl., deiliskipulag norðurhluta Hnoðraholts.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 20. tl., stofnleiðir hjólreiða.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 20. tl., stofnleiðir hjólreiða.

Sara Dögg Svanhildardóttir, 20. tl. stofnleiðir hjólreiða.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2004021F

07

Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 21/4 ´20.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., starfsemi grunnskólanna á tímum Covid19. Sigríður Hulda kom á framfæri þakklæti til starfsmanna skólanna og skólastjórnenda fyrir þeirra mikilvægu störf á erfiðum tímum. Þá ræddi Sigríður Hulda, 2. tl., þróunarsjóð grunnskóla.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., starfsemi grunnskólanna á tímum Covid19 og 2. tl., þróunarsjóð grunnskóla.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001009F

08

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 14/1 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., úttekt á húsnæði safnsins.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., úttekt á húsnæði safnsins.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., úttekt á húsnæði safnsins.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., úttekt á húsnæði safnsins.


Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001426

09

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 27/4 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001161

10

Fundargerðir stjórnar SSH nr. 485-494 frá 13/3 - 17/4 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi sóknaráætlun 2020-2024 og stjórnsýslu byggðasamlaganna.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., fg. frá 13/3, stöðu mála varðandi gerð nýrra kjarasamninga.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., fg. 7/4, sóknaráætlun 2020-2024 og 1. tl., fg. frá 17/4, stjórnsýslu byggðasamlaganna.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., fg. frá 17/4, stjórnsýslu byggðasamlaganna.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2003017

11

Fundargerð 22. eigendafundar Sorpu bs. frá 6/4 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001357

12

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 20/4 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001425

13

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 22/3, 3/4 og 17/4 ´20.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., allra fg., stöðumat vegna Covid19, 4. tl., fg. frá 17/4, greiðslukerfið, 2. tl., fg. frá 17/4, gjaldskrárstefnu, 3. tl., fg. frá 17/4, stefnumótun Strætó, 3. tl., fg. frá 3/4, áhættustýringu og 4. tl. fg. frá 17/4 ábendingar úr gæðakerfi.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl. fg. frá 3/4. leiðarkerfismál.

Ingvar Arnarson 2. tl. fg. 22/3 niðurstöður á rekstrakostnaði nýrra metanvagna hjá Strætó.

Björg Fenger, ræddi 2. tl. fg. frá 3/4 leiðarkerfismál 2. tl. fg. 22/3 niðurstöður á rekstrakostnaði nýrra metanvagna hjá Strætó og svaraði fyrirspurnum.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2005054

14

Tillaga um sérstaka eftirfylgni með hagsmunum barna og ungmenna í áhættuhópum.

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hann flytur ásamt bæjarfulltrúunum Hörpu Þorsteinsdóttur, Söru Dögg Svanhildardóttur og Sigríði Huldu Jónsdóttur.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að settur verði á fót tímabundinn starfshópur embættismanna, þvert á svið bæjarins, sem tryggi eftirfylgni með stöðu barna við breyttar þjóðfélagsaðstæður. Markmið hópsins er að fylgja eftir málefnum barna sem talist geta í áhættuhópum eða viðkvæmri stöðu og tryggja að starf bæjarfélagsins gagnvart hagsmunum þeirra sé markvisst og samstillt. Þessi vinna tengist áherslum Garðabæjar sem heilsueflandi samfélags og innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í Garðabæ.

Sviðsstjórum fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs verði falið að leiða starf hópsins. Skóla- og félagsmálayfirvöld vinni þannig saman að því að skilgreina og bregðast við stöðu barna sem hugsanlega búa við erfiðar aðstæður í samvinnu við skólastjórnendur, stjórnendur vinnuskóla og frístundastarfs og frjáls félög sem starfa með börnum. Áhersla verði lögð að meta þarfir barna og ungmenna sem standa höllum fæti í kjölfar COVID-19 þar sem áhersla verður lögð á snemmtæka íhlutun og stuðning ásamt því að tryggja eftirfylgni inn í komandi skólaár haustið 2020. Bæjarráði, skólanefnd grunnskóla og fjölskylduráði verði gerð reglulega grein fyrir stöðu mála og vinnu hópsins.“



Greinargerð:

Garðabær nýtir margs konar úrræði til að mæta stöðu barna og ungmenna sem eru í viðkvæmri stöðu og fjölskyldna þeirra. Má þar nefna m.a. ýmiskonar afslætti og fjárhagsaðstoð. Afleiðingar COVID-19 faraldursins á stöðu barna og fjölskyldna geta verið alvarlegar og á það sérstaklega við um börn sem tilheyra áhættuhópi eða eru í viðkvæmri stöðu. Garðabær hefur þegar brugðist við ástandinu með aðgerðum sem samþykktar voru í bæjarráði 31. mars. Tillögu þessari er ætlað að styðja enn frekar við þær aðgerðir með því að tryggja að allir þeir starfsmenn bæjarins sem hafa snertifleti við börn í viðkvæmri stöðu vinni á samræmdan hátt og í samvinnu að því að bæta stöðu þeirra og líðan. Þannig sé lögð áhersla á sveigjanleika, stuðning, faglega- og einstaklingsmiðaða nálgun með það að markmiði að barnið njóti öryggis og ásættanlegra lífsgæða.

Annað markmið tillögunnar er að tryggja góða yfirsýn á stöðuna þannig að hægt sé að bregðast við með viðeigandi lausnum á skjótan og öruggan hátt ef þörf þykir. Með því verði lagður góður grunnur fyrir komandi skólaár þar sem búast má við að skólahald verði með óhefðbundnu sniði og huga þarf að nemendum sem glíma við félags- eða námserfiðleika.

Verkefnið verði unnið í samvinnu við frjáls félög í bæjarfélaginu sem vinna með börnum og aðilum sem vinna að velferð barna og fjölskyldna þeirra. Sviðsstjórar fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs beri ábyrgð á verkefninu sem fellur m.a. að verkefninu Velferð barna í Garðabæ og áherslum sem lúta að Heilsueflandi samfélagi og innleiðingu heimsmarkmiða.

Tillögunni er ekki síst ætlað að stuðla að meira samstarfi milli fjölskyldusviðs, þ.á.m., barnaverndar annars vegar og Vinnuskólans/frístundastarfs í sumar þar sem börn og ungmenni gætu þurft meiri stuðning en áður. Tryggja þarf meiri yfirsýn yfir hópamyndanir unglinga í samstarfi við fulltrúa félagsmiðstöðva, forvarnarfulltrúa og starfsmanna barnaverndar og skilvirkari söfnun og greiningu á upplýsingum varðandi mætingu, hag og líðan barna og ungmenna á næstu vikum og mánuðum. Þá er mikilvægt að þau svið sem leiða starfshópinn taki á samstilltan hátt á velferð ungmenna við skólabyrjun á komandi hausti 2020.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.

Málsnúmer 2005059

15

Tillaga Garðabæjarlistans um verklagsreglur fyrir athugasemdir og kvartanir vegna þjónustu við fatlað fólk.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að unnar verði verklagsreglur fyrir athugasemdir og kvartanir vegna þjónustu við fatlað fólk þar sem athugasemdir og kvartanir eru skráðar formlega sem og úrvinnsla þeirra. Einnig samþykkir bæjarstjórn að verklag þetta verði birt á heimasíðu sveitarfélagsins gardabaer.is „

Greinargerð

Skýrar verklagsreglur eru mikilvægt lýðræðislegt tæki. Skýrar og formlegar verklagsreglur er varða athugasemdir og kvartanir vegna þjónustu við fatlað fólk eru mjög mikilvægar fyrir þá einstaklinga sem nýta þjónustuna til að tryggja að unnið sé skilmerkilega úr athugasemdum og formleg svör séu skráð.

Skýrar verklagsreglur eru ekki síður mjög mikilvægar fyrir stjórnsýsluna. Við í Garðabæjarlistanum tölum fyrir agaðri og faglegri stjórnsýslu og leggjum því fram þessa tillögu þar sem ekkert formlegt verklag er fyrir hendi er varðar kvartanir eða athugasemdir er varða þjónustu við fatlað fólk.

Gunnar Einarsson, tók til máls og lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Í lok fundar var fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundargerðin verður send fundarmönnum í tölvupósti en undirrituð þegar bæjarfulltrúar koma saman að nýju samkvæmt hefðbundnu fundarformi.