Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um verklagsreglur fyrir athugasemdir og kvartanir vegna þjónustu við fatlað fólk.

Málsnúmer 2005059

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

18. (1926). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að láta vinna drög að verklagsreglum fyrir ábendingakerfi á vef bæjarins þar sem allar ábendingar verði skráðar, flokkaðar og sendar til úrvinnslu og eftirfylgni á viðkomandi sviði. Við innleiðingu verði horft til þess að verkefnið verði hluti að framþróun stafrænnar þjónustu hjá Garðabæ. Einnig skal kannaður möguleiki á samstarfi við önnur sveitafélög.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

8. (867). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að unnar verði verklagsreglur fyrir athugasemdir og kvartanir vegna þjónustu við fatlað fólk þar sem athugasemdir og kvartanir eru skráðar formlega sem og úrvinnsla þeirra. Einnig samþykkir bæjarstjórn að verklag þetta verði birt á heimasíðu sveitarfélagsins gardabaer.is „

Greinargerð
Skýrar verklagsreglur eru mikilvægt lýðræðislegt tæki. Skýrar og formlegar verklagsreglur er varða athugasemdir og kvartanir vegna þjónustu við fatlað fólk eru mjög mikilvægar fyrir þá einstaklinga sem nýta þjónustuna til að tryggja að unnið sé skilmerkilega úr athugasemdum og formleg svör séu skráð.
Skýrar verklagsreglur eru ekki síður mjög mikilvægar fyrir stjórnsýsluna. Við í Garðabæjarlistanum tölum fyrir agaðri og faglegri stjórnsýslu og leggjum því fram þessa tillögu þar sem ekkert formlegt verklag er fyrir hendi er varðar kvartanir eða athugasemdir er varða þjónustu við fatlað fólk.

Gunnar Einarsson, tók til máls og lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.