Beint í efni

18. (1926). fundur

12.05.2020
Bæjarráð Garðabæjar

18. (1926). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020

12.05.2020

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2003449

01

Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.

Bæjarstjóri sagði frá því að upplýsingahópur almannavarna hefur gefið út samfélagssáttmála þar sem eru upplýsingar um ýmsar leiðbeiningar og hvatningu til almennings til að tryggja áfram góðan árangur. Samfélagssáttmálinn hefur verið kynntur á vef bæjarins og þar kemur fram að sáttmálinn gildir í vor og sumar.

Á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og fór yfir sviðsmyndir vegna áhrifa Covid19 á fjárhag bæjarins miðað við stöðuna í byrjun maí. Fjármálastjóri fór yfir innheimtu skatttekna og þjónustugjalda en þegar liggur fyrir skerðing á þjónustugjöldum og framlagi Jöfnunarsjóðs. Þá er innheimt staðgreiðsla undir áætlun og gera má ráð fyrir auknum samdrætti í staðgreiðslu þegar líður á árið.

Í undirbúningi er að endurskoða fjárhagsáætlun og er stefnt að því að drög geti legið fyrir í júní.

Sviðsstjórar fóru yfir starfsemina á sínum sviðum. Upplýsingastjóri sagði frá undirbúningi að auglýsingu nýrra sumarstarfa sem gert er ráð fyrir að verði birt á vef bæjarins 15. maí nk.

Bæjarráð samþykkir umsókn um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000 og felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun vegna viðbótarlántöku að fjárhæð kr. 275.000.000.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Harpa Þorsteinsdóttir, Ingvar Arnarson og Jóna Sæmundsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2005064

02

Tilkynning Þóru Margrétar Hjaltested um úrsögn úr kjörstjórn Garðabæjar, dags. 05.05.20.

Lögð fram.

Bæjarráð færir Þóru Margréti þakkir fyrir störf hennar í kjörstjórn Garðabæjar frá árinu 2009 og sem formaður kjörstjórnar frá árinu 2014.

Bæjarráð vísar til bæjarstjórnar að kjósa nýjan fulltrúa í kjörstjórn í stað Þóru Margrétar.

Málsnúmer 2005082

03

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um svæðisbundna flutningsjöfnun, 734. mál., dags. 06.05.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2005074

04

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á barnalögum nr. 76/2003, 707 mál., dags. 06.05.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2005110

05

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir, 662. mál., dags. 08.05.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2005109

06

Bréf SSH varðandi greiðslu til samgöngusáttmála, dags. 06.05.20.

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1909330

07

Umsókn Bergsins um styrk, dags. 16.09.19.

Bæjarráð samþykkir að veita Berginu - Samtökum um stuðningssetur fyrir ungt fólk styrk að fjárhæð kr. 200.000.

Málsnúmer 2003252

08

Erindi Myndstefs varðandi meint brot á sæmdarrétti höfundar, dags. 11.03.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 2005107

09

Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar rekstrarleyfis fyrir veitingahús að Garðatorgi 4b.

Afgreiðslu frestað.

Málsnúmer 2005076

10

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2020, dags. 30.04.20.

Um er að ræða tvö bréf þar sem tilkynnt er um úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla til fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar að fjárhæð kr. 1.920.000 og til fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar fyrir hönd SSH að fjárhæð kr. 2.000.000.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2005106

11

Sumarlaun nemenda við tónlistarskóla Garðabæjar 2020.

Bæjarráð samþykkir tillögu Tónlistarskóla Garðabæjar um að eftirfarandi nemendur fái sumarlaun árið 2020.

Matthías Helgi Sigurðsson, kt. 210300-2360, gítarnemi og Sóley Björk Þorsteinsdóttir, kt. 220700-4450, þverflautunemi.

Málsnúmer 2005059

12

Tillaga Garðabæjarlistans um verklagsreglur fyrir athugasemdir og kvartanir vegna þjónustu við fatlað fólk.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að láta vinna drög að verklagsreglum fyrir ábendingakerfi á vef bæjarins þar sem allar ábendingar verði skráðar, flokkaðar og sendar til úrvinnslu og eftirfylgni á viðkomandi sviði. Við innleiðingu verði horft til þess að verkefnið verði hluti að framþróun stafrænnar þjónustu hjá Garðabæ. Einnig skal kannaður möguleiki á samstarfi við önnur sveitafélög.

Fylgiskjöl