Beint í efni

Leiðréttingar á þjónustugjöldum vegna skerðingar á þjónustu af völdum Covid-19.

Málsnúmer 2003449

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

44. (1952). fundur

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu vegna leiðréttingar á gjöldum vegna skertrar þjónustu af völdum Covid-19.

„Í þeim tilvikum sem þjónusta leik- og grunnskóla fellur niður eða skerðist vegna verkfalls, samkomubanns, veikinda eða sóttkvíar starfsmanna eða af öðrum sambærilegum ástæðum verða gjöld fyrir viðkomandi þjónustu leiðrétt í samræmi við hlutfall skerðingarinnar.

Í þeim tilvikum sem börn geta ekki nýtt sér þjónustu vegna sóttkvíar eða veikinda verða gjöld leiðrétt hlutfallslega. Hægt er að fara fram á staðfestingu um sóttkví barns frá rakningateymi ef um er að ræða sóttkví sem ekki tengist viðkomandi starfsemi. Matargjald á leikskólum skal skert ef fjarvera barns varir lengur en 14 almanaksdaga. Sjálfskipuð sóttkví telst ekki til frádráttar.“

Ofangreint nær til þjónustugjalda leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. „

Bæjarráð Garðabæjar

02

34. (1942). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið. Fjármálastjóri lagði fram málaflokkayfirlit fyrir tímabilið janúar - júní 2020 og gerði grein fyrir helstu frávikum. Fjármálastjóri gerði grein fyrir stöðu framkvæmda.

Þá gerði fjármálstjóri grein fyrir samantekt sem unnin hefur verið um innheimt útsvar og aðrar tekjur sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu á fyrri hluta ársins.

Lögð fram greinargerð um helstu niðurstöður starfshóps um fjármál sveitarfélaga en um er að ræða sameiginlegan starfshóp ríkis og sveitarfélaga til að meta áhrif Covid-19 á fjármál ríkis og sveitarfélaga. Í niðurstöðum starfshópsins kemur fram að gera megi ráð fyrir mun lakari rekstrarniðurstöðu sveitarfélaga 2020 og að tekjur þeirra af útsvari muni dragast verulega saman.

Fjármálastjóri gerði nánari grein fyrir forsendum sem byggt er á í framangreindum gögnum.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

20. (1928). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir innheimtu staðgreiðslu útsvars í maí og eru tekjur um 8 - 10% lægri en áætlun gerði ráð fyrir. Á ársgrundvelli nemur áætlaður samdráttur útsvarstekna um 800 - 850 mkr.

Á fundi bæjarráðs 31. mars sl. var samþykkt aðgerðaráætlun að fyrstu viðbrögðum Garðabæjar sem gerði ráð fyrir viðbótarfjárveitingum til eftirfarandi framkvæmda.

Samveitur - verkframkvæmdir 100,0 mkr

Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk 100,0 mkr

Bæjarstjóri kynnti tillögur að frestun eftirfarandi framkvæmda.

Bæjargarður-útivistarstígur 50,0 mkr.

Garðatorg 100,0 mkr.

Minjagarður við Hofsstaði 50,0 mkr.

Bæjarráð samþykkir tillögur um breytingar á framkvæmdaáætlun og felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun.

Bæjarráð Garðabæjar

04

19. (1927). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir sviðsmyndum vegna áhrifa Covid19. Fjármálastjóri fór yfir tillögur að breytingum og tilfærslu fjárveitinga vegna breyttra aðstæðna.

Bæjarráð samþykkir tillögur um breytingar og tilfærslur fjárveitinga samkvæmt framlögðu skjali sem birt verður með fundargerð.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka í þeim tilvikum sem við á.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

05

18. (1926). fundur

Bæjarstjóri sagði frá því að upplýsingahópur almannavarna hefur gefið út samfélagssáttmála þar sem eru upplýsingar um ýmsar leiðbeiningar og hvatningu til almennings til að tryggja áfram góðan árangur. Samfélagssáttmálinn hefur verið kynntur á vef bæjarins og þar kemur fram að sáttmálinn gildir í vor og sumar.

Á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og fór yfir sviðsmyndir vegna áhrifa Covid19 á fjárhag bæjarins miðað við stöðuna í byrjun maí. Fjármálastjóri fór yfir innheimtu skatttekna og þjónustugjalda en þegar liggur fyrir skerðing á þjónustugjöldum og framlagi Jöfnunarsjóðs. Þá er innheimt staðgreiðsla undir áætlun og gera má ráð fyrir auknum samdrætti í staðgreiðslu þegar líður á árið.

Í undirbúningi er að endurskoða fjárhagsáætlun og er stefnt að því að drög geti legið fyrir í júní.

Sviðsstjórar fóru yfir starfsemina á sínum sviðum. Upplýsingastjóri sagði frá undirbúningi að auglýsingu nýrra sumarstarfa sem gert er ráð fyrir að verði birt á vef bæjarins 15. maí nk.

Bæjarráð samþykkir umsókn um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000 og felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun vegna viðbótarlántöku að fjárhæð kr. 275.000.000.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Harpa Þorsteinsdóttir, Ingvar Arnarson og Jóna Sæmundsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

6. (865). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að gjalddögum fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins verði fjölgað til að létta mánaðarlega greiðslubyrði íbúa og atvinnulífs.

Eftirstöðvum ógjaldfallinna fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði verður dreift á mánuðina apríl/maí til desember og mun því gjalddagi fasteignagjalda í apríl (eindagi 15. maí) færast til 15 maí 2020 (eindagi 15. júní). Þetta er gert til þess að létta undir með þeim aðilum sem nú þegar hafa fundið fyrir eða munu finna fyrir tekjufalli vegna þeirra efnahagsaðstæðna sem nú ríkja.

Eigendur atvinnuhúsnæðis sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi geta sótt um frestun allt að þriggja gjalddaga fasteignaskatta og fasteignagjalda sem færast þá á fyrstu mánuði ársins 2021. Með verulegu tekjutapi er átt við að minnsta kosti 25% tekjufalli milli sömu mánaða á árunum 2019 og 2020.

Bæjarráð Garðabæjar

07

13. (1922). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að aðgerðaráætlun varðandi fyrstu viðbrögð Garðabæjar vegna áhrifa Covid19.

1. Leiðrétting á þjónustugjöldum vegna skerðingar á þjónustu

Bæjarráð hefur samþykkt tillögu um leiðréttingu á þjónustugjöldum í leik- og grunnskólum vegna skerðingar á þjónustu.

„Í þeim tilvikum sem þjónusta leik- og grunnskóla fellur niður eða skerðist vegna verkfalls, samkomubanns, veikinda eða sóttkvíar starfsmanna eða af öðrum sambærilegum ástæðum verða gjöld fyrir viðkomandi þjónustu leiðrétt í samræmi við hlutfall skerðingarinnar.

- Í þeim tilvikum sem börn geta ekki nýtt sér þjónustu vegna sóttkvíar eða veikinda verða gjöld leiðrétt hlutfallslega. Ef foreldrar kjósa að nýta sér ekki þjónustu, t.a.m. með vísan til tilmæla yfirvalda um að foreldrar og forráðamenn haldi börnum sínum heima ef kostur er á hið sama við.

- Ofangreint nær til þjónustugjalda leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.

- Ákvörðunin er tímabundin og gildir til loka maí. Endurskoðun fer fram að teknu tilliti til aðstæðna og verður fyrirkomulagið auglýst að nýju eigi síðar en 15.maí n.k.“

Unnið er að útfærslu málsins og mun leiðrétting koma til framkvæmda í byrjun apríl.

Árskort t.d. sundkort og bókasafnskort af skerðingum opnunartíma og gildistími framlengdur sem því nemur.

Við innheimtu gjalda verður markmiðið að veita sveigjanleika varðandi gjaldfresti í einstaka tilvikum með það að leiðarljósi við núverandi aðstæður að innheimtan sé sanngjörn.

2. Frestun á greiðslum fasteignagjalda

Gjalddögum fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins er fjölgað til að létta mánaðarlega greiðslubyrði íbúa og atvinnulífs.

Eftirstöðvum ógjaldfallinna fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði verður dreift á mánuðina apríl/maí til desember og mun því gjalddagi fasteignagjalda í apríl (eindagi 15. maí) færast til 15 maí 2020 (eindagi 15. júní). Þetta er gert til þess að létta undir með þeim aðilum sem nú þegar hafa fundið fyrir eða munu finna fyrir tekjufalli vegna þeirra efnahags aðstæðna sem nú ríkja.

Eigendur atvinnuhúsnæðis sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi geta sótt um frestun allt að þriggja gjalddaga fasteignaskatta og fasteignagjalda sem færast þá á fyrstu mánuði ársins 2021. Með verulegu tekjutapi er átt við að minnsta kosti 25% tekjufalli milli sömu mánaða á árunum 2019 og 2020.

Nánari útfærslur verða lagðar fyrir bæjarráð sveitarfélaganna.

3. Sviðsmyndir - fjárhagsleg áhrif - fyrstu viðbrögð

V -leið 2020

a. Útvar kr. -800.000.000

b. Fasteignaskattur og gjöld kr.

c. Fasteignagjöld atv.h. (40%) kr. -123.000.000

d. Jöfnunarsjóður kr. -180.000.000

e. Gjaldskrár kr. -50.000.000

f. Hagræðing kr. 100.000.000

g. Covid19 útgjöld kr. -25.000.000

h. Félagsþjónusta kr. -190.000.000

Samtals: kr. -1.268.000.000

U -leið 2020 2020-2021

a. Útvar kr. -1.000.000.000 kr. -1.150.000.000

b. Fasteignaskattur og gjöld kr. kr.

c. Fasteignagjöld atv.h frestun kr -123.000.000

d. Jöfnunarsjóður kr. -180.000.000 kr. -210.000.000

e. Gjaldskrár kr. -50.000.000 kr. -50.000.000

f. Hagræðing kr. 100.000.000 kr. 130.000.000

g. Covid19 útgjöld kr. -25.000.000 kr. -25.000.000

h. Félagsþjónusta kr. -240.000.000 kr. -300.000.000

Samtals: kr. -1.518.000.000 kr. -1.605.000.000

Viðbrögð

a. Aukið aðhald í rekstri ? sviðsstjórar leggi fram tillögur (Sjá lið 5)

b. Tryggjum lánalínu hjá Arion banka allt að 2,0 ma.

c. Kanna möguleika á frestun gjalddaga lána hjá lánstofnunum og ríkinu

d. Kanna möguleika á skammtímalán og langtímafjármögnun hjá LS

4. Framkvæmdir

a. Búsetukjarni fyrir fatlað fólk kr. 200.000.000

b. Fráveituframkvæmdir kr. 200.000.000

c. Viðhaldsframkvæmd (rekstur) - flýtt kr. 50.000.000

Skoðaðir verði möguleikar á að flýta framkvæmdum sem rúmast innan samgöngusáttmálans.

5. Tillögur sviðstjóra til að mæta samdrætti og framkvæmd aðgerða samkvæmt tillögu HLH

Tillögur sviðsstjóra verða kynntar síðar.

Markmiðið er að ná fram hagræðingu í rekstri málaflokka að fjárhæð 100 ? 200 mkr.

6. Sala lóða og eigna

a. Sala lóðar við Garðahraun 1

b. Sala lóða á miðsvæði Álftaness

c. Sala lóða á Hnoðraholt og í Vetrarmýri

d. Sala lóða við Eskiás

e. Sala eigna sem ekki tengjast grunnstoðum bæjarins.

7. Eflum samfélagið

a. Velferð bæjarbúa - órofin þjónusta

Lögð verður áhersla á velferð bæjarbúa, afkomu þeirra og að halda úti órofinni grunnþjónustu bæjarins. Myndað verði samvinnuteymi með heilsugæslunni og Hrafnistu, Ísafold til að miðla upplýsingum til bæjarbúa og sérstaklega til þeirra sem falla undir að tilheyra viðkvæmum hópum. Lögð verður áhersla á mjög virka upplýsingamiðlun til bæjarbúa í gegnum vef bæjarins um aðgerðir og þjónustu. Þá verður og leitað eftir ábendingum bæjarbúa um atriði sem snúa að aðbúnaði og velferð barna og ungmenna og heimilisofbeldi.

b. Könnun á aðstæðum bæjarbúa

Fjölskyldusvið og fræðslu- og menningarsviði verður falið að safna saman gögnum um þróun aðstæðna hjá einstaklingum, fjölskyldum næstu mánuði til að leggja grunn að frekari tillögugerð í samráði við hagsmunaaðila. Stofnaður verður faghópur innan sveitarfélagsins og milli sveitarfélaganna með sérstakri áherslu á börn, ungmenni og menntun þeirra, barnafjölskyldur, fatlað fólk, eldra fólk, atvinnulausa og viðkvæma og útsetta hópa.

c. Nýsköpun og tækni

Tækifæri verði nýtt til að auka nýsköpun og tækni á sviði velferðarþjónustu og óskað eftir samvinnu við félagsmálaráðuneytið. Jafnframt verði unnið með atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu að frekari eflingu skapandi greina í samstarfi við skóla bæjarins.

Vinnu við verkefni í tengslum við stafræna framþróun verði flýtt og lögð áherslu á að nýttir verði möguleikar til að bæta þjónustu Garðabæjar með stafrænum lausnum.

d. Leikskólar og grunnskólar

Stofnaður hefur verið faghópur skólastjórnenda í leikskólum og í grunnskólum til að vinna að forgangsröðun verkefna, miðla á ábyrgan hátt upplýsingum til foreldra og styðja og vernda nemendur á erfiðum tímum.

e. Íþróttir og menning

Samstarf við íþróttafélögin verði aukið og viðspyrna í íþrótta- og menningarmálum eflt í samstarfi við félögin og ÍSÍ. Sveigjanleiki skal ríkja varðandi að flýta greiðslum til íþróttafélaga innan ársins samkvæmt gildandi samstarfssamningum. Gildandi samstarfsamningar verði teknir til endurskoðunar við gerð næstu fjárhagáætlunar

Garðabær sem heilsueflandi samfélag leggur áherslu á að göngustígar og útisvæði séu aðgengileg almenningi og app um gönguleiðir og útvistarmöguleika í Garðabæ kynnt.

f. Málefni fatlaðs fólks

Eflum fræðslu og upplýsingar til fatlaðs fólks og tryggjum tengsl með eftirliti á aðstæðum hvers og eins til að koma í veg fyrir einangrun og skorts á þjónustu. Hugum sérstaklega að þeim sem eiga heimili á sambýlum.

g. Eldri borgarar

Fjölskyldusvið safnar saman upplýsingum um aðstæður eldri borgara til að kanna tengsl við ættingja og tryggja að allir búi við þær aðstæður að fá mat. Starfsmenn í Jónshúsi taki að sér að skipuleggja útihringi spjall við eldri borgara sem búa einir.

h. Sköpuð verði sumarstörf fyrir ungt fólk

Unnið verði að því að tryggja fjölbreytt og gagnleg sumarstörf fyrir öll ungmenni í Garðabæ.

8. Uppbygging nýrra svæða

a. Urriðaholt

Áframhaldandi uppbygging í Urriðaholti. Allar lóðir í austurhluta Urriðaholts eru að verða byggingarhæfar og þá er verið að vinna að gerð deiliskipulags fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts

b. Miðsvæði Álftaness

Uppbygging er hafin á svæðinu með framkvæmdum við gatnagerð í Breiðumýri þar sem gert er ráð fyrir að byggja 252 íbúðir. Vinna við gatnahönnun á svæði við Þórukot og í Kumlamýri er hafin og má gera ráð fyrir að gatnagerð verði boðin út á árinu og lóðum úthlutað síðari hluta ársins eða í byrjun næsta árs.

c. Eskiás

Tilboð liggja fyrir í framkvæmdir við gatnagerð við Eskiás og má gera ráð fyrir að uppbygging á svæðinu hefjist í sumar. Við Eskiás er gert ráð fyrir 276 íbúðum og þar af 42 íbúðum á lóðum í eigu Garðabæjar.

d. Garðahverfi

Verið er að vinna að gerð lóðarskilmála fyrir lóðir í Garðahverfi og stefnt er að því að þar geti komið til auglýsingar á lóðum í sumar. Í 1. áfanga væri um að ræða um 10 lóðir.

e. Hesthúsabyggð við Kjóavelli

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla hefur verið auglýst og í framhaldi af samþykkt hennar mun koma til úthlutunar hesthúsalóða og uppbyggingar á svæðinu.

Bæjarráð samþykkir tillögu að aðgerðaráætlun að fyrstu viðbrögðum Garðabæjar og vísar tillögunni til frekari úrvinnslu og framkvæmd bæjarstjóra.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að gjalddögum fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins er fjölgað til að létta mánaðarlega greiðslubyrði íbúa og atvinnulífs.

Eftirstöðvum ógjaldfallinna fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði verður dreift á mánuðina apríl/maí til desember og mun því gjalddagi fasteignagjalda í apríl (eindagi 15. maí) færast til 15 maí 2020 (eindagi 15. júní). Þetta er gert til þess að létta undir með þeim aðilum sem nú þegar hafa fundið fyrir eða munu finna fyrir tekjufalli vegna þeirra efnahags aðstæðna sem nú ríkja.

Eigendur atvinnuhúsnæðis sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi geta sótt um frestun allt að þriggja gjalddaga fasteignaskatta og fasteignagjalda sem færast þá á fyrstu mánuði ársins 2021. Með verulegu tekjutapi er átt við að minnsta kosti 25% tekjufalli milli sömu mánaða á árunum 2019 og 2020.