20. (1928). fundur
20. (1928). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
26.05.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2005339
01
Greiðslur til sjálfstætt starfandi skóla - minnisblað SSH.
Á fund bæjarráðs mættu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH og Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur SSH. Hildigunnur gerði grein fyrir minnisblaði um greiðslur til sjálfstætt starfandi skóla vegna skertra greiðslna frá foreldrum vegna áhrifa Covid19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja við sjálfstætt starfandi skóla um greiðslur til skólanna vegna skertra greiðslna frá foreldrum á dvalargjöldum á þeim tíma sem takmörkuð þjónusta var í boði vegna áhrifa Covid19.
Málsnúmer 2003449
02
Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir innheimtu staðgreiðslu útsvars í maí og eru tekjur um 8 - 10% lægri en áætlun gerði ráð fyrir. Á ársgrundvelli nemur áætlaður samdráttur útsvarstekna um 800 - 850 mkr.
Á fundi bæjarráðs 31. mars sl. var samþykkt aðgerðaráætlun að fyrstu viðbrögðum Garðabæjar sem gerði ráð fyrir viðbótarfjárveitingum til eftirfarandi framkvæmda.
Samveitur - verkframkvæmdir 100,0 mkr
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk 100,0 mkr
Bæjarstjóri kynnti tillögur að frestun eftirfarandi framkvæmda.
Bæjargarður-útivistarstígur 50,0 mkr.
Garðatorg 100,0 mkr.
Minjagarður við Hofsstaði 50,0 mkr.
Bæjarráð samþykkir tillögur um breytingar á framkvæmdaáætlun og felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun.
Málsnúmer 2005266
03
Bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi Covid19 á fjárhag sveitarfélaga, dags. 14.05.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2003437
04
Hraunkot við Álftanesveg - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Nuno Alexandre Bentim Servo, kt. 240676-2069, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Hraunkoti við Álftanesveg.
Málsnúmer 2003173
05
Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Antoni Kristni Þórarinssyni, kt. 140379-4339, leyfi fyrir endurbyggingu og stækkun núverandi einbýlishúss að Haukanes 24.
Málsnúmer 2003195
06
Hraungata 52-Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnhildi Hlín Snorradóttur, kt. 260284-2239, leyfi fyrir byggingu parhúss að Hraungötu 52.
Málsnúmer 2003172
07
Hraungata 54 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Nönnu Bryndísi Snorradóttur, kt. 030588-2239, leyfi fyrir byggingu parhúss að Hraungötu 54.
Málsnúmer 2002219
08
Keldugata 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Ásmundssyni, kt. 090360-4509, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Keldugötu 6.
Málsnúmer 2005305
09
Keldugata 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Ásmundssyni, kt. 090360-4509, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Keldugötu 8.
Málsnúmer 2005304
10
Keldugata 10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Ásmundssyni, kt. 090360-4509, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Keldugötu 10.
Málsnúmer 2005303
11
Keldugata 12 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Ásmundssyni, kt. 090360-4509, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Keldugötu 12.
Málsnúmer 1907114
12
Gjaldskrá fyrir akstursþjónustu eldri borgara í Garðabæ.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2005309
13
Tilkynning Kópavogsbæjar um kynningu á breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Traðarreitur-eystri, þróunarsvæði fyrir íbúðarbyggð.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.