19. (1927). fundur
19. (1927). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
19.05.2020
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1911304
01
Kynning starfshóps um stafræna framþróun og þjónustu Garðabæjar.
Á fund bæjarráðs mættu Arndís Thorarensen og Þórhildur Gunnarsdóttir, ráðgjafar frá Parallel ásamt Sunnu G. Sigurðardóttur, verkefnastjóra. Gerðu þær grein fyrir vinnu starfshóps um stafræna þjónustu og framþróun hjá Garðabæ og nánari greiningu á verkefnum sem komu til umfjöllunar hjá starfshópnum. Í niðurstöðum starfshópsins er lagt er til að valin verði fjögur verkefni sem eru stafrænt Garðakort, umhverfisgátt, þjónustugátt fyrir eldri borgara og snjöll afgreiðsla leikskólaumsókna.
Bæjarráð vísar tillögum að verkefnum til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 og til kynningar í fastanefndum.
Ingvar Arnarson, bæjarfulltrúi, sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2, 3 og 4.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2005194
02
Bréf Strætó bs. varðandi drög að nýrri gjaldskrárstefnu, dags. 08.05.20.
Á fund bæjarráðs mættu Björg Fenger, formaður stjórnar Strætó bs. og Jóhannes Rúnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. og gerðu þau grein fyrir drögum að nýrri gjaldskrárstefnu Strætó. Í tillögu að nýrri gjaldskrá er m.a. gert ráð fyrir að einfalda og jafna afsláttargjöld þannig að bæði fastir og tilfallandi viðskiptavinir geti fundið fargjald við sitt hæfi.
Björg Fenger, bæjarfulltrúi, sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 2, 3 og 4.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2003449
03
Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir sviðsmyndum vegna áhrifa Covid19. Fjármálastjóri fór yfir tillögur að breytingum og tilfærslu fjárveitinga vegna breyttra aðstæðna.
Bæjarráð samþykkir tillögur um breytingar og tilfærslur fjárveitinga samkvæmt framlögðu skjali sem birt verður með fundargerð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka í þeim tilvikum sem við á.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1808087
04
Staða framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundum lykilstjórnenda þar sem verið er að ræða ágreining aðila um kostnað við grundun hússins.
Málsnúmer 2004426
05
Bjarnastaðavör 2A - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Valgeiri Páli Björnssyni, kt. 021091-3919, leyfi til að byggja einbýlishús að Bjarnastaðavör 2a.
Málsnúmer 2003439
06
Suðurhraun 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Reginn atvinnuhúsnæði ehf., kt. 521009-1010 leyfi til að byggja skrifstofuhúsnæði að Suðurhrauni 3.
Málsnúmer 2002347
07
Smiðsbúð 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita B&S invest ehf., kt. 680119-1470 leyfi fyrir innri breytingum húsnæðis að Smiðsbúð 2.
Málsnúmer 2005093
08
Hátún 13- Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Önnu Björk Hjaltadóttur, kt. 020877-5379, leyfi til að breyta glugga á suðurhlið í svalahurð að Hátúni 13.
Málsnúmer 2003477
09
Hagaflöt 20 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Smith, kt. 160172-4879, leyfi til breytinga á innra skipulagi einbýlishússins að Hagaflöt 20.
Málsnúmer 2004242
10
Holtsbúð 37 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Má Hreinssyni, 081269-5999, leyfi til stækkunar á viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Holtsbúð 37.
Málsnúmer 1711191
11
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi framkvæmd umbóta við Flataskóla, dags. 04.05.20.
Bæjarráð felur fræðslu- og menningarsviði að hlutast til um að ráðuneytinu berist upplýsingar um framkvæmd umbóta sem áætlaðar voru í umbótaráætlun.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2005168
12
Bréf kærunefndar húsamála varðandi ágreining um réttindi og skyldur eigenda að Hraunhólum 4, dags. 08.05.20.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2005197
13
Erindi Rjúpnavalla ehf. varðandi forkaupsrétt við sölu á fiskiskipi.
Bæjarráð samþykkir leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að falla frá forkaupsrétti vegna sölu á mb. Leifi RE220 414.
Málsnúmer 2005170
14
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguviða á höfuðborgarsvæðinu, 735. mál., dags. 12.05.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2005219
15
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um útlendinga og atvinnuréttindi útlendinga (alþjóðleg vernd, brottvísunartilskipunin, dvalar- og atvinnuleyfi), 717. mál., dags. 15.05.20.
Lagt fram.
Málsnúmer 2005130
16
Umsókn Plastlauss september 2020 um styrk, dags. 07.05.20.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.
Málsnúmer 2004427
17
Bréf Brynju hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag 2020, dags. 24.04.20.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindi Brynju Hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands um greiðslu stofnframlags vegna kaupa á einni íbúð. Áætlað kaupverð er 43,7 mkr. og nemur stofnframlag 12% eða 5,2 mkr.
Málsnúmer 2005205
18
Stefna Magna lögmanna varðandi kröfu um bætur vegna tjóns að völdum galla í fjölbýlishúsinu að Holtsvegi 45.
Bæjarráð felur Andra Árnasyni, lögmanni að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.