Beint í efni

6. (865). fundur

02.04.2020
Bæjarstjórn Garðabæjar

6. (865). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

Fjarfundur

02.04.2020

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Björg Fenger
  • Gunnar Einarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. mars 2020 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1911325

01

Ársreikningur Garðabæjar 2019

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og ræddi niðurstöður ársreiknings. Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2019.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls. Gunnar Valur færði starfsfólki bæjarins þakkir fyrir þeirra þátt í

góðum og traustum rekstri Garðabæjar.

Björg Fenger, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju..

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2019 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður með rafrænni undirskrift af bæjarfulltrúum.

Málsnúmer 2003030F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 24/3 ´20.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., Covid19 - neyðarstig almannavarna og þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra þátt við halda úti órofinni starfsemi gagnvart viðkvæmum hópum. Nefndi Almar sérstaklega starfsmenn fjölskyldusviðs í þessu sambandi.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., Covid19 - neyðarstig almannavarna og 16. tl., tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi ferðavenjukönnun.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., Covid19 - neyðarstig almannavarna og færði starfsmönnum skólanna, skólastjórnendum og starfsmönnum á fræðslu og menningarsviði þakkir fyrir þeirra mikilvægu störf við að skipuleggja og halda úti starfsemi skólanna við þessar erfiðu aðstæður.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., Covid19 - neyðarstig almannavarna.

Fundargerðin sem er 19 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2003035F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 31/3 ´20.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir og tók undir þakklæti til starfsmanna bæjarins fyrir þeirra störf við þessar erfiðu aðstæður.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir, 7. tl., tilboð í lóðir á miðsvæði Álftaness og 9. tl., umsókn um framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar við Breiðumýri.

Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., - Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 8. tl., opnun tilboða í gatnagerð í Eskiási og 4. tl., Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.

Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.

Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.

Gunnar Einarsson, ræddi að nýju 4. tl., Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 4. tl., Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 4. tl., Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir. Þá ræddi Gunnar Valur 8. tl., opnun tilboða í gatnagerð í Eskiási.

Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

3.10 - 2003451 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Eskiás. Gatnagerð og veitumannvirki.

Bæjarstjórn samþykkir að veita leyfi til framkvæmda fyrir gatnagerð ásamt lagningu veitumannvirkja við Eskiás. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 889/2019.

Fylgiskjöl

3.4 - 2003449 - Covid19 - fjárhagslegar aðgerðir Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir að gjalddögum fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins verði fjölgað til að létta mánaðarlega greiðslubyrði íbúa og atvinnulífs.
Eftirstöðvum ógjaldfallinna fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði verður dreift á mánuðina apríl/maí til desember og mun því gjalddagi fasteignagjalda í apríl (eindagi 15. maí) færast til 15 maí 2020 (eindagi 15. júní). Þetta er gert til þess að létta undir með þeim aðilum sem nú þegar hafa fundið fyrir eða munu finna fyrir tekjufalli vegna þeirra efnahagsaðstæðna sem nú ríkja.
Eigendur atvinnuhúsnæðis sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi geta sótt um frestun allt að þriggja gjalddaga fasteignaskatta og fasteignagjalda sem færast þá á fyrstu mánuði ársins 2021. Með verulegu tekjutapi er átt við að minnsta kosti 25% tekjufalli milli sömu mánaða á árunum 2019 og 2020.

Fylgiskjöl

3.9 - 2003450 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Breiðamýri. Gatna- og stígagerð og veitumannvirki.

Bæjarstjórn samþykkir að veita leyfi til framkvæmda fyrir gatna- og stígagerð ásamt lagningu veitumannvirkja í Breiðumýri. Einnig er um að ræða leyfi til framkvæmda fyrir losun allt að 6.000 m3 af jarðvegi í Glerhalladýi sem er svæði á landnotkunarreit 1.07 íþ í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2020.
Um er að ræða efnislosun þar sem gert er ráð fyrir 6.000 m3 á 6.100 m2 svæði þá er það ákvörðun bæjarstjórnar að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Vísast þar til 3. mgr. 4. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 en framkvæmdin fellur undir lið 2.04 í 1.viðauka laganna sem fellur í flokk C. Það er því í verkahring sveitarfélagsins að taka ákvörðun um matsskyldu.
Framkvæmdir í Breiðumýri eru í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 1235/2019.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001357

04

Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 17/2, 3/3, 13/3 og 23/3 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi hagræðingarverkefni og spurði nánar um stöðu málsins.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi hagræðingaverkefni og sagði að fyrirhugað er að kynna bæjarfulltrúum niðurstöður og tillögur. Þá sagði Jóna frá því að gas- og jarðgerðarstöðin væri tilbúin og nú væri verið prufukeyra stöðina.

Almar Guðmundsson, ræddi stöðu mála varðandi gas- og jarðgerðarstöðina og sölu á metani.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi stöðu mála varðandi flokkun á tímum Covid19.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sama mál. Þá ræddi Jóna stöðu mála varðandi gas- og jarðgerðarstöðina og sölu á metani.

Björg Fenger, ræddi stöðu mála varðandi gas- og jarðgerðarstöðina og sölu á metani.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2001425

05

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13/3 ´20.

Björg Fenger, ræddi 2. tl., ársreikning 2019.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2003480

06

Fundargerð 22. eigendafundar Strætó bs. frá 25/3 ´20.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., breytingar á þjónustu vegna áhrifa Covid19 á notkun Strætó.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1811108

07

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 11/3 ´20.

Fundargerðin er lögð fram.

Í lok fundar var fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundargerðin verður send fundarmönnum í tölvupósti en undirrituð þegar bæjarráð kemur saman að nýju samkvæmt hefðbundnu fundarformi.