Beint í efni

Ársreikningur Garðabæjar 2019

Málsnúmer 1911325

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (865). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og ræddi niðurstöður ársreiknings. Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2019.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls. Gunnar Valur færði starfsfólki bæjarins þakkir fyrir þeirra þátt í
góðum og traustum rekstri Garðabæjar.

Björg Fenger, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju..

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2019 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður með rafrænni undirskrift af bæjarfulltrúum.

Bæjarráð Garðabæjar

02

13. (1922). fundur

Svar við fyrirspurn lagt fram.

Magnús Jónsson, endurskoðandi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

13. (1922). fundur

Á fund bæjarráðs mættu Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri. Magnús gerði grein fyrir viðbótarskýringu nr. 21 í ársreikning er varðar atburð eftir lok reikningsskiladags. Þar er vakin athygli á óvissu vegna Covid19 en ljóst er að faraldurinn mun hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins m.a. vegna lægri skatttekna, frestun gjalddaga og aukinna útgjalda.

Ársreikningur Garðabæjar verður tekin til afgreiðslu við síðari umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar 2. apríl 2020.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Sigurður Guðmundsson, Ingvar Arnarson og Harpa Þorsteinsdóttir, voru viðstaddir fundinn undir dagskrárliðum 1-4.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-4.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

04

12. (1921). fundur

Lögð fram stjórnsýsluskoðun og skýrsla endurskoðenda um innra eftirlit.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

5. (864). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2019. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Gunnar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins.

Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Til máls tóku.

Sara Dögg Svanhildardóttir.
Gunnar Valur Gíslason
Almar Guðmundsson

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2019 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarráð Garðabæjar

06

11. (1920). fundur

Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mættu á fund bæjarráðs.
Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2019, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2019 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 19. mars 2020 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 2. apríl 2020.

Bæjarráð Garðabæjar

07

8. (1917). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 2.320.272.

Bæjarráð Garðabæjar

08

45. (1906). fundur

Lagt fram bréf KPMG um endurskoðun á ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2019. Stefnt er að því að ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2019 verði tekinn fyrir við fyrri umræðu í bæjarstjórn 19. mars 2019.

Fylgiskjöl