8. (1917). fundur
8. (1917). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
25.02.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Gilsbúð 7 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Palace ehf., kt. 430507-2300, leyfi fyrir stækkun atvinnuhúsnæðis að Gilsbúð 7.
02
Breiðabólstaðir - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Roger Joseph L Abéla, kt. 100136-2019, leyfi til að innrétta íbúð í húsnæði sem áður var nýtt sem hesthús að Breiðabólsstöðum.
03
Sveinskotsvör 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hafdísi Guðfinnsdóttur, kt. 210895-2219, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Sveinskotsvör 4.
04
Úrskurður yfirfasteignamatsnefndar dags. 18.02.20.
Lagður fram úrskurður yfirfasteignamatsnefndar þar sem staðfest er álagning fasteignaskatts vegna fasteignar að Iðnbúð 5 fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
05
Tilkynning frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu varðandi drög að reglugerð um héraðsskjalasöfn, dags. 18.02.20.
Lögð fram.
06
Bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi fjárfestingu á árinu 2019, dags. 10.02.20.
Í bréfinu er farið fram upplýsingar um fjárfestingar á árinu 2019, stöðu verkefna og samanburð við fjárhagsáætlun.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að svara bréfinu.
Fylgiskjöl
07
Bréf Golfklúbbsins Setbergs varðandi beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda 2020, dags. 20.02.20.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Setbergs styrk að fjárhæð kr. 423.933 til greiðslu fasteignagjalda árið 2020.
Fylgiskjöl
08
Erindi húsbílafélagsins o.fl. um tillögu að breytingu á lögum um náttúruvernd er varðar leyfi til að nota tjaldvagna o.fl. utan skipulagðra tjaldsvæða, dags. 18.02.20.
09
Tilkynning frá Umhverfisstofnun varðandi bráðabirgðayfirlit fyrstu vatnaáætlunar fyrir Ísland, dags. 18.02.20.
10
Bréf Samtaka iðnaðarins varðandi viðhald og endurnýjun götulýsingar í Garðabæ, dags. 20.02.20.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að svara bréfinu.
Fylgiskjöl
11
Fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.
Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála varðandi framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
12
Ársreikningur Garðabæjar 2019 - Tillaga um afskriftir.
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 2.320.272.
13
Framkvæmdaáætlun 2020.
Bæjarverkfræðingur kynnti tímaás framkvæmda á árinu 2020.
Fylgiskjöl
15
Aðgerðaráætlun sviða vegna úttektar á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Garðabæjar.
Lögð fram aðgerðaráætlun vegna tillagna sem bæjarstjórn hefur samþykkt í tengslum við úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins.
Í aðgerðaráætluninni kemur fram tímarammi, ábyrgðaraðili og lýsing á framgangi verkefna.
Fylgiskjöl
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt -bra 25.02.2020 - tækni.pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt -bra 25.02.2020 - fræðslu.pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt -bra 25.02.2020 - fjölsk.pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt -bra 25.02.2020 - fjármála.pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt -bra 25.02.2020 - bst.pdf