Beint í efni

12. (1921). fundur

24.03.2020
Bæjarráð Garðabæjar

12. (1921). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

Fjarfundur - Fundarboð inn á Skype fund kemur sérstaklega.

24.03.2020

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID19 neyðarstig almannavarna.

Á fjarfundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-4 sátu Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Vala Dröfn Hauksdóttir, deildarstjóri tölvudeildar.

Bæjarstjóri kynnti reglur um hertar takmarkanir á samkomubanni sem gera ráð fyrir að viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður og að fjarlægð milli manna verði yfir tveimur metrum.

Þessi fyrirmæli hafa áhrif á þjónustu sveitarfélaga:

Öllum sundlaugum, íþróttamiðstöðvum, söfnum og bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað frá þriðjudagsmorgninum 24. mars.

Skólar og leikskólar verða áfram opnir en þeir foreldrar eða forráðamenn sem af einhverjum ástæðum senda ekki börnin sín í skólann þurfa að tilkynna það til skólans líkt og um skólaleyfi sé að ræða.

Önnur þjónusta sveitarfélaganna mun áfram haldast órofin eins og kostur er.

Fyrirmæli þessi tóku gildi frá og með mánudeginum 23. mars kl. 24:00 og gilda þar til annað verður ákveðið.

Sviðstjórar gerðu grein fyrir aðgerðum og helstu áherslum sem verið er að vinna að varðandi starfsemi sem fellur undir þeirra svið. Upplýsingastjóri gerði grein fyrir að unnið er að sameiginlegri upplýsingamiðlun til almennings í samráði við aðgerðastjórn almannavarna ásamt því sem áhersla er lögð á að koma gagnlegum skilaboðum á framfæri við íbúa á vef Garðabæjar.

Upplýst var að á bæjarskrifstofunum þar sem starfa fleiri en 20 manns hefur vinnustaðnum verið skipt upp í tvö aðgreind svæði og þá eru margir starfsmenn að vinna heima.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir vinnu fjármálastjóra á höfuðborgarsvæðinu við að meta áhrifa Covid19 á efnahag sveitarfélaganna. Fyrir liggja drög að sviðsmyndum með áætlun um áhrif á fjárhag Garðabæjar þar sem fram kemur samdráttur í tekjum og áætlun um aukin útgjöld hjá félagsþjónustu og annars kostnaður vegna Covid 19. Í undirbúningi er að vinna að tillögum að til að mæta tekjutapi með hugmyndum um hagræðingu og lækkun útgjalda.

Málsnúmer 2003362

02

Ábendingar Sambands íslenskra sveitarfélaga að aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf.

Lagðar fram hugmyndir og ábendingar Sambands íslenskra sveitarfélaga að aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf.

Um er að ræða þætti sem snúa að fasteignagjöldum og gjaldskrám, framkvæmdum, markaðsátak í ferðaþjónustu og laga- og reglugerðarbreytingum varðandi skattheimtu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003391

03

Bréf SSH varðandi tillögur að fyrirkomulagi afslátta af þjónustugjöldum leik-, grunnskóla og frístundaheimila, dags. 23.03.20.

Bæjarstjóri kynnti tillögu SSH um um fyrirkomulag afslátta af þjónustugjöldum leik-, grunnskóla og frístundaheimila

Tillagan er svohljóðandi

„Í þeim tilvikum sem þjónusta leik- og grunnskóla fellur niður eða skerðist vegna verkfalls, samkomubanns, veikinda eða sóttkvíar starfsmanna eða af öðrum sambærilegum ástæðum verða gjöld fyrir viðkomandi þjónustu leiðrétt í samræmi við hlutfall skerðingarinnar.

- Í þeim tilvikum sem börn geta ekki nýtt sér þjónustu vegna sóttkvíar eða veikinda verða gjöld leiðrétt hlutfallslega. Ef foreldrar kjósa að nýta sér ekki þjónustu, t.a.m. með vísan til tilmæla yfirvalda um að foreldrar og forráðamenn haldi börnum sínum heima ef kostur er á hið sama við.

- Ofangreint nær til þjónustugjalda leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.

- Ákvörðunin er tímabundin og gildir til loka maí. Endurskoðun fer fram að teknu tilliti til aðstæðna og verður fyrirkomulagið auglýst að nýju eigi síðar en 15.maí n.k.“

Tillögunni fylgir nánari útfærsla og rökstuðningur.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að vinna að útfærslu hennar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003352

04

Leiðbeiningar Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi fjarfundi.

Málsnúmer 1908481

05

Miðhraun 24 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Smáragarði ehf., kt. 600269-2599, leyfi til að byggja verslunar-, skrifstofu- og lagerhúsnæði að Miðhrauni 24.

Málsnúmer 2002127

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og nýju deiliskipulagi fyrir Leiðarenda.

Lögð fram.

Málsnúmer 2003318

07

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir starfsemi veitingahúss. (Flatey)

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2003302

08

Tilkynning frá umhverfis-og auðlindaráðuneytinu varðandi breytingu á reglugerð um framkvæmdaleyfi í samráðsgátt, dags. 16.03.20.

Lögð fram og vísað til kynningar í skipulagsnefnd.

Málsnúmer 2003346

09

Bréf Alþingis varðandi tillögur um endurskoðun kosningalaga, dags. 19.03.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2003177

10

Ráðning sumarstarfsmanna 2020.

Lagðir fram kostnaðarútreikningar vegna umsókna um sumarstörf ungmenna 2020.

Bæjarráð samþykkir að ráða til sumarstarfa alla þá sem sóttu um starf í umsóknarfresti. Umsóknir sem borist hafa eftir að umsóknarfresti lauk skulu skráðar á biðlista. Bæjarráð leggur til að fyrirvari verði gerður varðandi fjölda vinnuvikna frá því sem fram kom í auglýsingu um sumarstörf.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa gerð viðauka vegna kostnaðarauka við sumarstörf ungmenna.

Málsnúmer 1912183

11

Bréf Íslensku lögfræðistofunnar f.h. umbj. varðandi kröfu um innlausn lóðar og skaðabætur, dags. 06.03.20.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003322

12

Bréf EBÍ varðandi umsókn í styrktarsjóð, dags. 16.03.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- og menningarsviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003340

13

Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 18.03.20.

Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 9.259.509 til greiðslu fasteignagjalda árið 2020.

Málsnúmer 2003255

14

Erindi Kópavogsbæjar varðandi breytingu á aðalskipulagi - Fannborgarreitur - Traðarreitur-vestur, dags. 13.03.20.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2003351

15

Erindi JMJ varðandi takmörkun á skólahaldi, dags. 19.03.20.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir þær reglur sem gilda um starfsemi leikskólanna. Leikskólabörnum hefur verið skipt upp í tvo hópa sem mæta annan hvorn dag og er það gert til að koma á móts við ákvæði í auglýsingu heilbrigðisráðherra um að börn séu í sem minnstu hópum og aðskilin eins og kostur er. Sviðsstjóri upplýsti að unnið væri að úrvinnslu umsókna samkvæmt forgangslista almannavarna.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara.

Málsnúmer 2003349

16

Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi ferðavenjukönnun fyrir höfuðborgarsvæðið 2019, dags. 19.03.20.

Lögð fram og vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd.

Málsnúmer 1811027

17

Tilboð í lóðir á miðsvæði Álftaness.

Tilboð voru lögð fram á fundi bæjarráðs 10. mars 2020.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og sagði frá viðræðum við aðila

Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

Málsnúmer 1911325

18

Ársreikningur Garðabæjar 2020 - stjórnsýsluskoðun og skýrsla endurskoðenda um innra eftirlit.

Lögð fram stjórnsýsluskoðun og skýrsla endurskoðenda um innra eftirlit.

Málsnúmer 2003364

19

Starfsmannamál

Sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs upplýsti að búið er að ráða Ólöfu Breiðfjörð í starf menningarfulltrúa Garðabæjar og Jóhann Skagfjörð Magnússon í starf skólastjóra Garðaskóla. Sviðsstjóri gerði nánari grein fyrir fjölda umsókna og ráðningarferlinu.

Þá upplýsti sviðsstjóri um vinnu við yfirferð umsókna um starf grunn- og tónlistarskólafulltrúa og sagði frá að staða skólastjóra Flataskóla hafi verið auglýst laus til umsóknar.

Í lok fundar var fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundargerðin verður send fundarmönnum í tölvupósti en undirrituð þegar bæjarráð kemur saman að nýju samkvæmt hefðbundnu fundarformi.