Bréf SSH varðandi tillögur að fyrirkomulagi afslátta af þjónustugjöldum leik-, grunnskóla og frístundaheimila, dags. 23.03.20.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
12. (1921). fundur
Bæjarstjóri kynnti tillögu SSH um um fyrirkomulag afslátta af þjónustugjöldum leik-, grunnskóla og frístundaheimila
Tillagan er svohljóðandi
„Í þeim tilvikum sem þjónusta leik- og grunnskóla fellur niður eða skerðist vegna verkfalls, samkomubanns, veikinda eða sóttkvíar starfsmanna eða af öðrum sambærilegum ástæðum verða gjöld fyrir viðkomandi þjónustu leiðrétt í samræmi við hlutfall skerðingarinnar.
- Í þeim tilvikum sem börn geta ekki nýtt sér þjónustu vegna sóttkvíar eða veikinda verða gjöld leiðrétt hlutfallslega. Ef foreldrar kjósa að nýta sér ekki þjónustu, t.a.m. með vísan til tilmæla yfirvalda um að foreldrar og forráðamenn haldi börnum sínum heima ef kostur er á hið sama við.
- Ofangreint nær til þjónustugjalda leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.
- Ákvörðunin er tímabundin og gildir til loka maí. Endurskoðun fer fram að teknu tilliti til aðstæðna og verður fyrirkomulagið auglýst að nýju eigi síðar en 15.maí n.k.“
Tillögunni fylgir nánari útfærsla og rökstuðningur.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að vinna að útfærslu hennar.