Sumarstörf ungmenna 2020.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
17. (1926). fundur
ÁÁ fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið voru Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og Auður Jóhannsdóttir, deildarstjóri kjaradeildar.
Mannauðsstjóri gerði grein fyrir hugmyndum að ýmsum nýjum sumarstörfum sem geta komið til greina í atvinnuátaki fyrir ungt fólk en í undirbúningi er að sækja um fjárveitingar til Vinnumálastofnunar til nýrra starfa. Að svo stöddu liggja ekki fyrir hvaða reglur munu gilda um umsóknir.
Deildarstjóri kjaradeildar fór yfir kostnaðarútreikninga en fram kom að 236 ungmenni sóttu um sumarvinnu í auglýstum umsóknarfresti. Opnað var fyrir að skrá sig á biðlista og alls eru nú skráðir 188 á biðlista.
Lagðir voru fram kostnaðarútreikningar sem gera ráð fyrir að ráða alla í vinnu sem sóttu um í umsóknarfresti og þá sem eru skráðir á biðlista. Sé miðað við óbreytt vinnutímabil er launakostnaður áætlaður 315 mkr en sé miðað við styttingu vinnutímabils um eina viku er launakostnaður áætlaður 276 mkr.
Í fjárhagsáætlun er launakostnaður áætlaður um 120 mkr.
Bæjarráð samþykkir að gera ráð fyrir að ráða öll ungmenni í sumarvinnu sem sótt hafa um og skráð verða á biðlista sem verður opinn til 31. maí. Við skipulag á fyrirkomulagi vinnu skal miða við að vinnutími verði styttur sem nemur einni viku. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá viðauka vegna aukins kostnaðar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
12. (1921). fundur
Lagðir fram kostnaðarútreikningar vegna umsókna um sumarstörf ungmenna 2020.
Bæjarráð samþykkir að ráða til sumarstarfa alla þá sem sóttu um starf í umsóknarfresti. Umsóknir sem borist hafa eftir að umsóknarfresti lauk skulu skráðar á biðlista. Bæjarráð leggur til að fyrirvari verði gerður varðandi fjölda vinnuvikna frá því sem fram kom í auglýsingu um sumarstörf.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa gerð viðauka vegna kostnaðarauka við sumarstörf ungmenna.