Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 vegna svæðis við Fannborgarreit - Traðarreit-vestri. Vinnslutillaga
Málsnúmer 2003255
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
7. fundur
Lögð fram tillaga að breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, Fannborgarreitur, þróunarsvæði fyrir íbúðarbyggð (reitur B1-1) og Traðarreitur-vestur, þróunarsvæði fyrir íbúðarbyggð (reitur B4) sem er nú til kynningar sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vinnslutillaga að breyttu aðalskipulagi er kynnt samtímis og vinnslutillaga II að deiliskipulagi svæðisins. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd en leggur áherslu á að meta áhrif framkvæmda á stofnvegakerfið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Kynna þarf betur hvaða áhrif tillagan hefur á flæði umferðar og almenningssamgangna.
Bæjarráð Garðabæjar
04
12. (1921). fundur
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.